Búbblur&Prjón

11. janúar nk verður handavinnu og búbblu seinnipartur. 

Við verðum í matsalnum í Ármúla 2, ”þáttökugjald” er 1 freyðivínsflaska á mann eða Töst/gos/hvaðsemer sem fer í púkk. Byrjum kl.16:00, verðrum ekki lengur en til kl.19:00

Ef þið hafið spurningar heyrið þá í Helgu og Thelmu.

Skráning hér

Jólakveðja Farsýslunnar

Stjórn Farsýslunnar sendir ykkur bestu óskir um gleði og frið um jólin og farsæld á komandi ári. Njótið jólahátíðarinnar með ykkar allra besta fólki.

Þökkum skemmtilegar stundir á liðnu ári og minnum á skiptimarkað jólakonfekts þann 3. janúar nk. Tökum með okkur allt afgangs konfektið, klárum þessa miklu át-hátíð með stæl og minnkum matarsóun um leið.

Vinningur að verðmæti yfir 100.000kr

Vinnur þú allt fyrir áramóta Karaoke partyið?

Kíktu á Instagram póstinn okkar til að sjá hvernig þú getur átt möguleika á að vinna þennan pakka í boði KFC!

🎄 JBL Partybox 310 ferðahátalara að verðmæti ca. 100.000 kr í boði KFC

🎄 2x Hljóðnema í boði KFC

🎄 2x KFC máltíðir

Síðasti dagur í jóladagatali Samgöngustofu

Síðasti séns til að vinna jólaglaðning í jóladagatali Samgöngustofu er í dag.

Hér er hlekkur á spurningar dagsins: https://forms.gle/dzccyALtHVb3FFCM7

Vinnur þú stærsta vinninginn?

Núna rétt í þessu kom út nýtt myndband í jóladagatali Samgöngustofu á Instagram. Umfjöllunarefnið í myndbandinu er mikilvægi þess að sleppa símanum undir stýri. Við fengum Lögregluna með okkur í lið til þess að fjalla um þetta mikilvæga málefni.

Það er komið að stærsta vinningnum, en í honum er allt fyrir Karaoke partýið eða áramóta partýið. Í vinning er JBL Partybox 310 ferðahátalari að verðmæti ca. 100.000 kr, 2x hljóðnemar og 2x KFC máltíðir. Þessi vinningur er í boði KFC.

Hér er hlekkur á myndbandið, endilega takið þátt í leiknum og hjálpumst að við koma þessum mikilvægu skilaboðum til sem flestra.

Spurningar dagsins

Hér er hlekkur á spurningar dagsins: https://forms.gle/qAvmC9a8nH8Y6qJ37

Jólaskreytingakeppnin í bundnu máli

Hirðskáldið okkar hún Þóra gat því miður ekki verið í dómnefndinni í ár en jólaskreytingakeppnin veitti henni þó innblástur að litlum kviðlingi:

Jólagangar – Keppni milli ganga hjá Samgöngustofu – 2023  

Á hæðum hússins birtir til, með heljarinnar sjowi,
þar kunna starfsmenn á því skil, að stilla upp á nói. 

Því skreytikeppni’er skollin á, og stríð er milli ganga.
Nú vilja allir verðlaun fá, og vinningstitil fanga. 

Um dyra gættir gaman er, að gægjast inn og skoða,
og metast um hver fremstur fer, í flokki jólaboða. 

Hvar metnaðurinn mestur er, má vart á milli skilja.
En úr því súper nefndin sker, með sínum góða vilja. 

Nú við erum spennt að sjá, hver sigrar þessa keppni.
Því alveg er það af og frá, að orsakist af heppni. 

(Höf.: Þóra Halldórsdóttir) 

Spurningar dagsins

Hér er hlekkur á spurningar dagsins: https://forms.gle/okTBsb7pbKhvHZJ77

Spurning dagsins

Hér er hlekkur á spurningu dagsins: https://forms.gle/1yVTj1BCYJhinpabA

Ljúfir jólatónar með Raven – föstudagskaffi 15.des

Í föstudagskaffinu í morgun nutum við ljúfra jólatóna með söng og gítarundirspili Raven, en það er listamannsnafn söngkonunnar og lagahöfundarins Hrafnhildar Magneu Ingólfsdóttur.

Áhugasöm geta hlustað á tónlist hennar á Spotify, einnig er hægt að finna hana á Facebook, Instragram (@itsmusicbyraven) og Tiktok. Raven er með krúttlegt jóladagatal þar sem hún syngur eitt jólalag á dag, hægt að hlusta og horfa á Tiktok og í highligts á Instagramminu.

Öruggur flutningur á hættulegum farmi

Þessi tvö fremstu vinstra megin tóku óvirkan þátt í fundinum

Í vikunni fór fram fundur vinnuhóps innan Evrópu um flutning á hættulegum varningi í flugi. Þar var farið yfir alþjóðlegar kröfur sem gilda um málaflokkinn, innleiðingu þeirra og eftirfylgni reglugerða um umbúðir, merkingar og meðhöndlun hættulegra efna. Vinnuhópurinn hittist tvisvar á ári og miðlar upplýsingum og ræðir leiðir til að auka öryggisráðstafanir og bæta neyðarviðbrögð komi til slyss.

Spurningar dagsins

Hér er hlekkur á spurningar dagsins: https://forms.gle/fCqY4b77rhWi4kX36

Föstudagskaffi 15.desember

Spurning dagsins

Hér er hlekkur á spurningu dagsins: https://forms.gle/9uAJU8HyTsBjhzsHA

Fleiri loftferðasamningar í höfn

Kristín Helga og Pétur Thorsteinsson frá utanríkisráðuneytinu með samningafólki frá Haiti

Eins og fram kom í síðustu viku, tók Ísland þátt í árlegri samningaráðstefnu ICAO. Tilgangurinn er gerð tvíhliða samninga ríkja um flugsamgöngur og þar með aukinn markaðsaðgangur fyrir íslensk fyrirtæki í flugrekstri. Loftferðasamningar eru forsenda fyrir starfsemi þessara fyrirtækja erlendis. Misjafnt er hversu víðtæk réttindi er kveðið á um í samningum Íslands. Meira um það má lesa hér.

Á ráðstefnunni voru gerðir nýir samningar við nokkur ríki á borð við Antigva og Barbúda, Kosta Ríka og Úganda. Einnig voru undirritaðir samningar við nokkur ríki sem áður hafði náðst samkomulag við og samningaviðræður hafnar við önnur ríki.

Ísland hefur nú gert loftferðasamninga við vel yfir hundrað ríki. Samningaviðræður fara fram í samráði við íslenska flugrekendur.


Spurning dagsins

Hér er hlekkur á spurningu dagsins: https://forms.gle/PiYVoh7keDjvye1VA

Rafskútur í jóladagatali

Núna rétt í þessu kom út nýtt myndband í jóladagatali Samgöngustofu á Instagram. Umfjöllunarefnið í myndbandinu er mikilvægi þess að fara varlega á rafskútum. Við fengum m.a. Hjalta Má Björnsson yfirlækni bráðamóttöku Landspítala með okkur í lið til þess að fjalla um þetta mikilvæga málefni.

Hér er hlekkur á myndbandið, endilega takið þátt í leiknum og hjálpumst að við koma þessum mikilvægu skilaboðum til sem flestra.

Spurning dagsins

Hér kemur hlekkur á spurningu dagsins: https://forms.gle/QBKBq18BBcab6iCa6

Rétt svör og vinningshafar

Nú er jóladagatal Starfsfólks Samgöngustofu rétt hálfnað. Nóg af vinningum eru enn í pottinum og hvetjum við starfsfólk til að taka þátt. Hér koma rétt svör og vinningshafar hingað til!

Fyrst var spurt um hraða beltasleðans í Ökuskóla 3 en rétt svar var 5 km hraði. Vinningshafi fyrsta dagsins var hún Sædís Jónasdóttir en hún var dregin úr hópi þeirra sem svöruðu þessari spurningu rétt.

Næst var spurt út í umferðarmerki en það var hún Margrét Birna Björnsdóttir sem var vinningshafi þann daginn. Hún svaraði þeirri spurningu rétt, umferðarmerkið var Umferðarljós (viðvörunarmerki).

Afmælisdagur samgöngustofu er 1. júlí og urðum við 10 ára á þessu ári. Hún Gerður H. Sigurðardóttir svaraði þeirri spurningu rétt, komst í pottin og stóð uppi sem vinningshafi þess dags.

Hafdís Bára Ólafsdóttir svaraði því rétt að eftir 18 tíma erum við orðin jafn slæmir bílstjórar eins og einhver sem er undir áhrifum. Hún var dregin úr hópi þeirra sem svöruðu rétt og hlaut vinningin þann daginn.

Dröfn Gunnarsdóttir hlaut verðlaunin þegar spurt var um sigurvegara jólaskreytingarkeppninnar 2022. Rétt svar var gangur 3-A (gangurinn sem í ár er tene jól).

Á föstudaginn var svo aftur spurt um umferðarmerki og rétt svar er Hægri beygja bönnuð (Bannmerki – það eina sem er með skástrikið niður til vinstri í stað niður til hægri). Vinningshafi föstudagsins var hann Kolbeinn Arnarson.

Takk fyrir frábæra þátttöku, höldum áfram í stemmingunni fram að jólum!

Takk fyrir samveruna í Jólaskógi🎄

Farsýslan langar að þakka fyrir samveruna á laugardaginn í dásamlegu veðri í Guðmundarlundi. Gleðin skein úr hverju andliti og ungir sem eldri nutu sín í Jólaskógi með Skjóðu, Langlegg og jólasveinunum. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá skemmtuninni.

Jólakveðja,

Farsýslan