
Hirðskáldið okkar hún Þóra gat því miður ekki verið í dómnefndinni í ár en jólaskreytingakeppnin veitti henni þó innblástur að litlum kviðlingi:
Jólagangar – Keppni milli ganga hjá Samgöngustofu – 2023
Á hæðum hússins birtir til, með heljarinnar sjowi,
þar kunna starfsmenn á því skil, að stilla upp á nói.
Því skreytikeppni’er skollin á, og stríð er milli ganga.
Nú vilja allir verðlaun fá, og vinningstitil fanga.
Um dyra gættir gaman er, að gægjast inn og skoða,
og metast um hver fremstur fer, í flokki jólaboða.
Hvar metnaðurinn mestur er, má vart á milli skilja.
En úr því súper nefndin sker, með sínum góða vilja.
Nú við erum spennt að sjá, hver sigrar þessa keppni.
Því alveg er það af og frá, að orsakist af heppni.
(Höf.: Þóra Halldórsdóttir)