Í föstudagskaffinu í morgun nutum við ljúfra jólatóna með söng og gítarundirspili Raven, en það er listamannsnafn söngkonunnar og lagahöfundarins Hrafnhildar Magneu Ingólfsdóttur.
Áhugasöm geta hlustað á tónlist hennar á Spotify, einnig er hægt að finna hana á Facebook, Instragram (@itsmusicbyraven) og Tiktok. Raven er með krúttlegt jóladagatal þar sem hún syngur eitt jólalag á dag, hægt að hlusta og horfa á Tiktok og í highligts á Instagramminu.
