Gæðamoli vikunnar

Gömlu góðu bækurnar bjóða ekki upp á staðfestingu lesturs, bara lestur.

Heil og sæl kæru vinir og samstarfsfólk. Þessa vikuna langar mig að segja ykkur frá póstlistum, notendahópum og staðfestingu lesturs í CCQ.

Notendahópar eru skilgreindir af gæðateymi eftir þörfum og óskum. Þeir eru heppilegir til þess að skilgreina hópa eftir sviðum, deildum og öðru. Þegar fyllt er inn í lýsigögn óútgefins gæðaskjals er hægt að setja einstaklinga eða notendahópa á póstlista. Þegar skjalið er svo gefið út fá allir einstaklingar sem eru á póstlistanum meldingu í tölvupósti um að skjalið hafi verið gefið út. Þau sem eru að einhverju leyti ábyrg fyrir eða þurfa að þekkja ákveðið gæðaskjal eiga almennt að vera á póstlista gæðaskjalsins. Þessi virkni hentar vel til þess að sá til þess að deildir eða svið séu með á nótunum varðandi útgáfu nýrra gæðaskjala.

Staðfesting lesturs er annar svipaður fítus sem hægt er að skilgreina í lýsigögnum gæðaskjals. Hann virkar svipað eins og póstlistarnir, þar er hægt að skilgreina einstaklinga eða notendahópa og viðkomandi einstaklingar fá meldingu í tölvupósti um að gæðaskjal sé útgefið nema hér er farið fram á að notendurnir ýti á hnapp og staðfesti þar með lestur gæðaskjalsins. Stjórnendur geta fylgst með staðfestingu lesturs á þeim gæðaskjölum sem þau gefa út og passað að starfsfólk sé “up to date” í gæðamálum að hverju sinni.

Til þess að halda utan um staðfestingu lesturs á þeim gæðaskjölum sem starfsfólk þarf að hafa lesið mæli ég með því að stilla lesborðið þannig að það sýni hvaða skjöl á eftir að staðfesta lestur á. Hægt er að sjá leiðbeiningar til þess að stilla lesborð í síðasta gæðamola vikunnar. Fyrir nýtt starfsfólk eða aðra sem eiga eftir að staðfesta lestur á mörgum skjölum mælum við í gæðateyminu með því að lesa þau jafnt og þétt. Ef þú ætlar að borða fíl, þá er eins gott að taka marga litla bita. Eitt skjal á dag kemur skapinu í lag!

Eftir hverju eru þið að bíða? Lesið og staðfestið!

Spurning dagsins 11. des

Hér kemur hlekkur á spurningu daginsin: https://forms.gle/SAudKhx34CTUgWxs6

Jólaskreytingar ársins

Stoltir viðurkenningarhafar

Æsispennandi jólskreytingakeppni er nú lokið og liggja úrslitin fyrir. Dómnefndin veitti viðurkenningar í allskonar skemmtilegum flokkum, til dæmis fyrir jólalegasta starfsmanninn og bestu múturnar. Sigurvegari keppninnar er að þessu sinni jólamarkaðurinn á gangi 3b. Til hamingju!

Glæsilegur jólamarkaður á þriðju hæð.

Spurning dagsins

Hér er hlekkur á spurningu dagsins: https://forms.gle/4pxU3LCGCtHTqHNUA

Þekkir þú merkið? -Svarðu rétt og þú ert komin í pottinn!

Skrifað undir stofnsáttmála Eurocontrol

Með Sigurði Inga á myndinni er Raúl Medina, forstjóri Eurocontrol

Fyrir rúmlega ári skrifuðu Jón Gunnar og þáverandi forstjóri Eurocontrol undir aðlögunarsamning Íslands að stofnuninni. Þar með fengum við sæti áheyrnarfulltrúa og þátttökurétt í verkefnum og starfsemi Eurocontrol að sama marki og aðildarríki. Nú í vikunni skrifaði Sigurður Ingi innviðaráðherra svo undir stofnsáttmála stofnunarinnar. Eftir samþykktarferli íslenskra stjórnvalda mun Ísland því fá fulla aðild að Eurocontrol frá 1. janúar 2025 og verður þá 42. aðildarríkið.

Eurocontrol er evrópsk milliríkjastofnun sem hefur frá stofnun árið 1960 haft markmið um stuðning við flug og flugleiðsögu í Evrópu. Samgöngustofa tekur þátt í starfinu fyrir Íslands hönd. Með aðild fáum við aðgang kerfum, gagnabönkum, greiningarvinnu, tæknilausnum, þjálfun og stuðningi við ýmsa þætti flugmála sem snúa að rekstrarstjórnun flugumferðar, rekstri flugvalla, skilvirkni, öryggi og netvernd svo nokkuð sé nefnt.

Alþjóðaflugmáladagurinn

Hinn 7. desember ár hvert er alþjóðaflugmáladagurinn hafður í heiðri í öllum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna. Tilgangur hans er að vekja athygli á mikilvægi almannaflugs fyrir félagslega og efnahagslega þróun ríkja og um leið hlutverk ICAO (Alþjóðaflugmálastofnunarinnar) um samvinnu þjóða í flugi. Í tilefni dagsins flöggum við fána ICAO hér í Ármúlanum.


Spurning dagsins

Hér er hlekkur á spurningu dagsins 7. desember: https://forms.gle/USZU9LobDeRiXjSy5

Við hvetjum þig til að taka þátt í jóladagatalinu. Möguleiki á vinningi á hverjum degi!

Spurning dagsins

Hér er hlekkur á spurningu dagsins: https://forms.gle/q836aXzKDNNjx2U58

Rætt um loftferðasamninga

Þessa dagana stendur yfir í Saudi-Arabíu ráðstefnan ICAO Air Services Negotiation (ICAN2023).  

Frá vinstri: Valgerður B. Eggertsdóttir frá IRN, Kristín Helga okkar kona og Pétur Thorsteinsson frá UTN.

Tilgangur ráðstefnunnar er að vinna í samstarfi við íslenska flugrekendur, að loftferðasamningum við önnur ríki þar sem þeir eru ekki til staðar og uppfæra eldri samninga. Ávinningurinn eru auknar heimildir til flugs sem geta komið Íslandi og íslenskum fyrirtækjum til góða. Þriggja manna sendinefnd sækir fundinn af hálfu íslenskra stjórnvalda.


Svefn og umferðin

Núna rétt í þessu kom út nýtt myndband í jóladagatali Samgöngustofu á Instagram. Þar fjallar Dr. Erla Björnsdóttir um mikilvægi þess að vera vel úthvíld þegar við erum undir stýri.

Hér er hlekkur á myndbandið, endilega takið þátt í leiknum og hjálpumst að við koma þessum mikilvægu skilaboðum til sem flestra.

Spurning dagsins

Hér er hlekkur á spurningu dagsins: https://forms.gle/QDdBXrz7GMozgmty9

4. des. Spurning dagsins

Hér er hlekkur á spurningu dagsins: https://forms.gle/46fbg1pgY8u7t4om8

Jóladagatal starfsmanna

Í dag hefst jóladagatal starfsfólks Samgöngustofu. Við hvetjum að sjálfsögðu öll til að taka þátt í því en það verður vinningshafi dreginn út á hverjum degi úr réttum svörum. Vinningshafi verður alltaf dreginn út næsta virka dag svo fyrir spurningu dagsins verður dregið út á mánudaginn. Hér er hlekkur á fyrstu spurninguna: https://forms.gle/4crEEPQpSrz5pTjr6

Hlekkur á spurningu dagsins mun svo birtast hér á innri vefnum á hverjum virkum degi. Svo það er mikilvægt að fylgjast vel með hér í desember til að geta tekið þátt.

Góða skemmtun!

1. desember

Við flöggum íslenska fánanum í Ármúla á fullveldisdaginn í dag.

Fullveldisdagurinn er svo nefndur til minningar um að þann 1. desember 1918, tóku gildi milli Íslands og Danmerkur Sambandslögin, sem voru lög um það hvernig Ísland stóð í sambandi sínu við Danmörku. Þann dag var íslenski fáninn dreginn að húni í fyrsta sinn. Veturinn 1918 var með eindæmum harður og oftast kallaður frostaveturinn mikli. Af öðrum harðindum þess tíma má nefna Kötlugos og spænsku veikina. Við vonum það besta fyrir komandi mánuði, enda eru vísbendingar um mildan vetur.