
Við flöggum íslenska fánanum í Ármúla á fullveldisdaginn í dag.
Fullveldisdagurinn er svo nefndur til minningar um að þann 1. desember 1918, tóku gildi milli Íslands og Danmerkur Sambandslögin, sem voru lög um það hvernig Ísland stóð í sambandi sínu við Danmörku. Þann dag var íslenski fáninn dreginn að húni í fyrsta sinn. Veturinn 1918 var með eindæmum harður og oftast kallaður frostaveturinn mikli. Af öðrum harðindum þess tíma má nefna Kötlugos og spænsku veikina. Við vonum það besta fyrir komandi mánuði, enda eru vísbendingar um mildan vetur.