Skrifað undir stofnsáttmála Eurocontrol

Með Sigurði Inga á myndinni er Raúl Medina, forstjóri Eurocontrol

Fyrir rúmlega ári skrifuðu Jón Gunnar og þáverandi forstjóri Eurocontrol undir aðlögunarsamning Íslands að stofnuninni. Þar með fengum við sæti áheyrnarfulltrúa og þátttökurétt í verkefnum og starfsemi Eurocontrol að sama marki og aðildarríki. Nú í vikunni skrifaði Sigurður Ingi innviðaráðherra svo undir stofnsáttmála stofnunarinnar. Eftir samþykktarferli íslenskra stjórnvalda mun Ísland því fá fulla aðild að Eurocontrol frá 1. janúar 2025 og verður þá 42. aðildarríkið.

Eurocontrol er evrópsk milliríkjastofnun sem hefur frá stofnun árið 1960 haft markmið um stuðning við flug og flugleiðsögu í Evrópu. Samgöngustofa tekur þátt í starfinu fyrir Íslands hönd. Með aðild fáum við aðgang kerfum, gagnabönkum, greiningarvinnu, tæknilausnum, þjálfun og stuðningi við ýmsa þætti flugmála sem snúa að rekstrarstjórnun flugumferðar, rekstri flugvalla, skilvirkni, öryggi og netvernd svo nokkuð sé nefnt.