Föstudagslagið frá Köben


Áskorunarkeðjan er hvíld að þessu sinni og þess í stað setjum við tvö lög á fóninn tengd Danmörku. Hvað er danskara en Kim Larsen? Ekkert. Því skellum við laginu De smukke Unge Mennesker undir nálina, live 1988.

Svo er það ógleymanlegt lag úr kvikmyndinni Með allt á hreinu, Við erum búnir að meika það, þar sem drengirnir ætluðu að spila í Tívolí í Köben en enduðu í Osló. Nú er spurning hvort árshátíð Samgöngustofu endi í Osló í stað Köben…

Bjarklind veislustjóri velur svo lagið fyrir næstu viku og ákorunarkeðjan heldur áfram.




Okkar fólk komið á YouTube

Í júlí sögðum við frá gerð kynningarmyndar AWS Institute um stafrænt ökunám á Íslandi. Okkar frábæru Sigurjóna og Lárus voru þar meðal viðmælenda og leystu viðtölin með miklum sóma. Nú er myndin komin á vefinn svo allur heimurinn getur séð. Vel gert Sigurjóna og Lárus!

Samgöngustofa hlýtur viðurkenningu fyrir stafræn skref

Viðurkenningin var veitt við hátíðlega athöfn. Jón Gunnar tók við henni fyrir hönd Samgöngustofu.

Á föstudaginn hlaut Samgöngustofa sérstaka viðurkenningu Stafræns Íslands. Viðurkenningarnar voru veittar nokkrum stofnunum á ráðstefnunni Tengjum ríkið. Samgöngustofa er ein þeirra stofnana sem tekið hafa hvað flest stafræn skref síðustu misseri. Til hamingju við öll!

Tengjum ríkið er árleg ráðstefna Stafræns Íslands og var yfirskriftin að þessu sinni Stafrænt samfélag. Var hún haldin í tengslum við fund Norrænu ráðherranefndarinnar um stafræna þróun, þar sem Ísland fer með formennsku. Ráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna voru meðal gesta og ræddu stafrænt samstarf og forystu svæðisins. Sérstakur gestur var Clare Martorana sem stýrir upplýsingatæknimálum Bandaríkjaforseta. Fleiri málefni voru til umfjöllunar á þessari fróðlegu ráðstefnu og má þar nefna kjarnaþjónustur Stafræns Íslands, þróun þeirra, innleiðingu og virkni.

Umbótaátakið hefst 1. október

Sl. föstudag var farið yfir umbótamenningu hjá Samgöngustofu. Erindi umbótahópsins má finna hér.

Góð vinnustaðamenning verður ekki til í tómarúmi, heldur er hún að stórum hluta uppskera þess sem við sjálf sáum, með viðhorfum okkar, orðum og gjörðum. Við viljum vera samferða í að skapa hér umhverfi frumkvæðis og nýsköpunar. Með því bætum við samskipti og aukum virkni, árangur og starfsánægju. Fyrsta áþreifanlega skrefið er umbótaátak sem hefst 1. október og stendur í mánuð. Hikum ekki við að senda inn góðar tillögur gegnum ábendingakerfið Bendil, því fleiri því betra!

Októberfest og hugmyndabanki

Nýskipuð stjórn Farsýslunnar er að leggja drög að dagskrá vetrarins sem verður kynnt fljótlega eftir heimkomu frá Kaupmannahöfn. Það er þó auðvitað umbótahugur í stjórn Farsýslunnar eins og öðrum starfsmönnum SGS svo við viljum biðja ykkur að smella á linkinn og setja inn hugmyndir að viðburðum:

https://forms.gle/2bNhwtpSairDXD116

Við viljum þó biðja ykkur að taka 20. október frá því þá ætlum við að hafa Októberfest í matsalnum hér í Ármúla eftir vinnu. Í boði verða veitingar sem hæfa tilefninu.

Stefán Pálsson, sagnfræðingur og bjóráhugamaður, mætir á svæðið og hressir upp á bjórþekkingu okkar. Nánari tímasetning auglýst síðar.

Athugið að það kostar 1000 krónur inn á viðburðinn (dregið af launum). Ástæða þess að ákveðið var að rukka þetta lágmarksgjald er að Farsýslan hefur tapað talsverðum fjármunum vegna viðburða sem verslað hefur verið aðföng fyrir, samkvæmt skráningu, en alltof margir hafa afboðað sig á síðustu stundu eða gleymt að afboða sig og ekki komið.  

Skráningu lýkur 18. október kl. 16. Rukkað verður skv skráningarlista eftir þann tíma.

Skráning hér

Föstudagslagið í boði Lalla

Það er hann Lárus Long (aka Lalli) sem velur föstudagslagið í þetta skiptið:

Það er lagið Never ever let you goRollo & King. Að sjálfsögðu veljum við danskt Eurovision lag síðasta föstudaginn fyrir Köbenferðina og Samgönguvision. Það var SKANDALL að þetta lag vann ekki í Parken 2001, enn og aftur náði pólitíkin yfir í stigagjöfinn, ég hef enn ekki jafnað mig.

Það er einfaldlega ekki hægt að dilla sér ekki þegar þetta lag kemur fóninn, og það mun svo sannarlega gerast í SAS höllinni næstkomandi föstudag.

Samgöngustofa, BYRJIÐ að hlakka til NÚNA!

Ég skora á nýju bestu vinkonu mína Bjarklindi að koma með næsta föstudagslag – vonandi eitthvað legendary úr Kaupmannarhafnarferðinni 🙂

https://youtu.be/H4dhS6f1kyw?si=xT1bD69XGVLkCCl2






Gamli vefurinn aðgengilegur

Fyrir ykkur sem viljið fara í nostalgíuferðalag um lendur gamla vefsins þá er hann nú aðgengilegur með öllum skjölum á eftirfarandi slóðum:

gamli.samgongustofa.is

og

old.icetra.is

Athugið að hann er einungis aðgengilegur hér innanhúss (svo efnið googlist ekki) fyrir utan nokkrar síður eins og skoðunarhandbók ökutækja og fræðsluefni og tölfræði sem unnið er að því að flytja yfir á næstu misserum.




Nýr og betri vefur Samgöngustofu á Ísland.is

Við höfum nú flutt vefinn okkar yfir á Ísland.is þar sem þarfir notenda eru hafðar í öndvegi. Markmiðið er að nýi vefurinn greiði götu fólks enn frekar, þar verði upplýsingum miðlað með skýrum hætti og þjónusta verði aðgengilegri.

Við fögnum þessum mikilvæga áfanga og þökkum fyrir frábæra samvinnu hér innanhúss og við samstarfsaðila hjá Stafrænu Íslandi og Stefnu. Nú væri frábært ef þið mynduð sem flest skoða ykkur um á nýja vefnum og senda okkur ábendingar á vefur@samgongustofa.is um það sem betur mætti fara.

Til hamingju með nýja vefinn!

Vefurinn á Ísland.is á morgun miðvikudag


Á morgun, miðvikudaginn, 20. september, ætlum við að opna nýja vefinn okkar á Ísland.is. Markmiðið er að nýi vefurinn greiði götu fólks enn frekar, þar verði upplýsingum miðlað með skýrum hætti og þjónusta verði aðgengilegri.

Það sem gerist á morgun er að www.samgongustofa.is mun beinast á island.is/s/samgongustofa og www.icetra.is mun beinast á island.is/en/o/transport-authority Gamli vefurinn verður áfram aðgengilegur um sinn og hægt að sækja þangað efni sem hugsanlega gæti vantað á slóðinni www.gamli.samgongustofa.is.

Með ákvörðun um flutning vefsins var um leið horft til samvinnu um miðlægt vefsvæði ríkisstofnana og hagkvæmri samnýtingu opinberra innviða. Efnið hefur verið endurskoðað og áhersla lögð á greiða og gagnlega miðlun. Verkefnið var unnið í mikilli samvinnu hér innanhúss og við Stafrænt Ísland sem hefur það hlutverk að styðja við stafræna vegferð opinberra stofnana.

Ef þið sjáið eitthvað sem betur má fara eða finnið ekki efni á nýja vefnum þá sendið okkur endilega ábendingar á vefur@samgongustofa.is. Við munum við bregðast við eins fljótt og auðið er.





Föstudagslagið í boði Haralds

Það er hann Haraldur Kristinsson Thorlacius sem velur föstudagslagið að þessu sinni:

Ég vel lagið Together in Electric Dreams með Phil Oakey & Giorgio Moroder. Þar sem ég er mikill 80‘s fantur kemur ekkert annað til greina ein 80‘s lag. Lagið sameinar einn af mínum uppáhalds lagahöfundum, uppháhalds hljómsveit og stafræna vegferð Samgöngustofu.

Ég skora á Lárus Long fyrir næstu viku.

Gulur september – geðveikur mannauður – Silja Björk

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka um að auka meðvitund um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna. Í föstudagskaffinu í morgun fengum við heimsókn frá Silju Björk, geðsjúkum rithöfundi, fyrirlesara og femínista. Silja Björk ræddi við okkur um andlega heilsu, geðrækt og mikilvægi þess að opna á samtalið um geðheilbrigði.

Hér að neðan (smellið á hlekkinn) eru upplýsingar um Silju Björk, erindið og margir góðir og hagnýtir tenglar.

Geðveikur mannauður

Skilaboð frá Silju Björk: fólki er alltaf frjálst að senda mér tölvupóst eða hafa samband á Facebook fyrir frekara samtal.

Föstudaglagið í boði Björns Vilbergs


Föstudagslagið er að þessu sinni í boði Björns Vilbergs í flugrekstrardeild:

Takk fyrir áskorunina Marteinn, mitt föstudagslag er fullkomið fyrir stofnunina og svona flugnörda eins og mig. Það er Learn to Fly með Foo Fighters. Frábært lag og frábært myndband með stórstjörnum í fararbroddi!

Ég skora svo á kollega minn og nágranna hann Garðar Árnason að koma með næsta lag. 

Góða helgi!





Gæðamoli vikunnar

Þessi starfsmaður heldur svo mikið upp á gæðaskjöl stofnunarinnar að hann prentar þau út áður en hann hefur lestur.

Við í gæðateymi Samgöngustofu höfum ákveðið að byrja með vikulega frétt þar sem við kynnum eitt gæðaskjal stofnunarinnar. Það eru mörg gæðaskjöl sem eru þess eðlis að allt starfsfólk Samgöngustofu ætti að hafa kynnt sér og því mikið tilefni til vikulegra gæðamola. Gæðakerfið okkar í CCQ er alltaf að taka á sig betri mynd eftir flutning úr Gæsku og því er núna kjörið tækifæri fyrir starfsfólk til þess kynna sér eða rifja upp gæðaskjöl sem eiga við um allt starfsfólk.

Fysta gæðaskjalið sem við í gæðateyminu viljum ólm kynna fyrir starfsfólki er ekki af verri gerðinni: STE-0001 Hlutverk og gildi Samgöngustofu (já, þið lásuð rétt, stefnuskjal númer EITT!). Hérna erum við auðvitað með gæðaskjalið sem þetta snýst allt um. Til hvers erum við? Stefnuskjalið vísar í lög um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála (nr. 119/2012) en þau eru valkvæð lesning (fyrir lengra komna). Stefnuskjalið er í sjálfu sér ekki langt plagg og því lítið tilefni til þess að kveinka sér yfir þeim grimmu örlögum að vera tilneydd/ur til lesturs. Segja mætti að STE-0001 sé viðeigandi upphitun fyrir lestur bitastæðari gæðaskjala sem þið megið gera ráð fyrir að kynna ykkur á næstunni.

Þá er lítið annað eftir en að sækja kaffibolla, tilla sér inn á skrifstofu, setja fætur upp á borð og hefja lestur (hér áður fyrr hefði þótt viðeigandi að kveikja sér í sígó með lestrinum en við skulum láta það eiga sig). Njótiði vel – það er aldrei að vita nema það verða skyndipróf fyrir heilu deildir Samgöngustofu úr gildum stofnunarinnar og þá er eins gott að vera undirbúin/n.

Aðalfundur og ný stjórn Farsýslunnar

F.v. Bjarki, Anney, Gunnar Karl, Kolbeinn, Berglind og Dröfn. Á myndina vantar Rannveigu

Miðvikudaginn 6. september fór fram aðalfundur Farsýslunnar. Aron Freyr fór yfir síðasta starfsár félagsins og lagði fram ársreikning til samþykktar með fyrirvara um endurskoðun. Ársreikningur var samþykktur og auk þess tillaga frá stjórn um breytingu á b lið 2. mgr. 3. gr. reglna Farsýslunnar um að hækka upphæð til stórafmælisgjafa um 5000 kr svo þær verði 20.000.
Þá var ný stjórn kjörin og fráfarandi formanni og stjórn þökkuð sín störf í þágu félagsins.

Ný stjórn Farsýslunnar fyrir starfsárið 2023-2024:

Anney Þórunn Þorvaldsdóttir – formaður
Berglind Magnúsdóttir- gjaldkeri
Dröfn Gunnarsdóttir- meðstjórnandi
Kolbeinn Arnarson – meðstjórnandi
Bjarki Sigþórsson – meðstjórnandi
Gunnar Karl Gunnarsson – meðstjórnandi
Rannveig Garðarsdóttir- meðstjórnandi

Aðalbókari:
Friðjón Axfjörð Árnason

Endurskoðendur:
Halldóra S. Sigurþórsdóttir og Erna Guðmundsdóttir

Fráfarandi stjórn Farsýslunnar starfsárið 2022-2023

Aron Freyr Jóhannsson – formaður
Hulda Finnsdóttir/Berglind Magnúsdóttir – gjaldkeri
Anney Þórunn Þorvaldsdóttir – meðstjórnandi
Díana Björk Eyþórsdóttir – meðstjórnandi
Fanney Lára Sandholt – meðstjórnandi
Gunnar Karl Gunnarsson – meðstjórnandi
Una Björg Einarsdóttir – meðstjórnandi

Aðalbókari:
Friðjón Axfjörð Árnason

Endurskoðendur:
Halldóra S. Sigurþórsdóttir og Erna Guðmundsdóttir

F.v. Gunnar Karl, Anney, Aron Freyr, Una, Berglind og Díana. Á myndina vantar Fanneyju.

Gulur september

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Það er von undirbúningshópsins að gulur september, auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna, sé til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju.

7. september er gulur dagur.

Öll sem geta eru hvött til að taka þátt og sýna þannig stuðning við geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir.

Á gulum degi klæðumst við gulu, skreytum með gulu, lýsum með gulu, borðum gular veitingar og tökum myndir af gulri stemmingu. Myndin getur verið sjálfa eða af vinum, fjölskyldu, samstarfsfólki, skreytingum eða gulum hlutum.

Til að vekja athygli sem víðast er lagt til að deila myndum á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #gulurseptember.

Einnig er bent á gular geðræktargöngur þennan dag, sjá dagskrá.

Frekari upplýsingar um verkefnið “gulur september” er að finna á heimasíðunni gulurseptember.is

Aðalfundur Farsýslunnar – lokaútkall!

colorful up hand background

Stjórn Farsýslunnar minnir á aðalfundinn 6. september kl. 16.30. Fundurinn verður haldinn í matsalnum í Ármúla. Að fundi loknum verður boðið uppá mat og drykk. Skráning fer fram HÉR

Dagskrá fundarins:

  1. Skýrsla félagsstjórnar um starf s.l. árs.
  2. Endurskoðaðir reikningar félagsins skulu lesnir og bornir upp til samþykktar.
  3. Reglubreytingar, ef fram koma.
  4. Ákvörðun um félagsgjald.
  5. Kosning stjórnar og endurskoðenda samkvæmt 4. gr.
  6. Önnur mál

Það eru 4 laus pláss í stjórn Farsýslunnar. Stjórn skipuleggur viðburði fyrir félaga og heldur utan um þá. Óskað er eftir framboðum í stjórn og hvetur stjórn sérstaklega þau sem ekki hafa áður átt sæti í stjórn til að stíga upp og hafa samband við einhvern núverandi stjórnarmeðlim:

Aron Freyr Jóhannsson

Anney Þórunn Þorvaldsdóttir

Berglind Magnúsdóttir

Díana Björk Eyþórsdóttir

Fanney Lára Sandholt

Gunnar Karl Gunnarsson

Una Björg Einarsdóttir

Föstudagslagið í boði Marteins


Það er hann Marteinn Guðjónsson sem velur föstudagslagið að þessu sinni og um val sitt skrifar hann:

Föstudagslagið að þessu sinni er með meistara Mugison. Mugison er í miklu uppáhaldi og eru mörg lög sem koma til greina en þó er eitt sem stendur uppúr og er ekkert lag betra á föstudegi til að koma sér í gírinn fyrir helgina. Lagið Murr Murr samdi Mugison árið 2004 og varð það fljótlega gríðarlega vinsælt og er líklega hans vinsælasta lag. Hann hefur flutt það í hinum ýmsu útgáfum og persónulega finnst mér hráa live útgáfan flottust en hljómgæðin koma ekkert alltof vel út í gegnum netið þannig að ég færi ykkur bara þessa venjulegu, sem er reyndar líka hrikalega flott. Gerið svo vel og takk fyrir mig 🙂

Ég skora á kollega minn Hilmar Baldursson að koma með næsta föstudagslag.