Ný loftferðarlög

heildarlög um loftferðir tóku gildi þann 13. júlí síðastliðinn en þau voru samþykkt á Alþingi 16. júní. Þau koma í stað eldri loftferðalaga sem að grunni til voru frá árinu 1998.

Samkvæmt frétt á vef innviðáðuneytisins eru markmið laganna er að stuðla að og tryggja öruggar, greiðar og skilvirkar flugsamgöngur í samræmi við stefnu stjórnvalda að teknu tilliti til neytendaverndar, umhverfissjónarmiða og þjóðréttarlegra skuldbindinga Íslands. Er það afar mikilvægt til að tryggja frekari vöxt og framgang samkeppnishæfrar flugstarfsemi hér á landi með umhverfisvænum hætti.

Skipta má helstu breytingum sem lögin fela í sér í tvo flokka:

Annars vegar eru breytingar er varða stjórn flugmála og eftirlit. Helgast þær fyrst og fremst af breytingum sem orðið hafa á síðastliðnum árum í tengslum við aðild Íslands að Flugöryggisstofnun Evrópusambandsins, EASA. Nú er með skýrari hætti kveðið á um verkaskiptingu Samgöngustofu og EASA í lögunum. Þessi verkaskipting á rót sína að rekja til nýrrar grunngerðar Evrópusambandsins á sviði flugs, reglugerðar (ESB) nr. 2018/1139 um almenningsflug og stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins o. fl., sem tekin verður upp í EES-samninginn á haustmánuðum. Umfang þessarar gerðar er mikið en hún tekur til nær allra þátta í flugstarfsemi, bæði einstaklinga og lögaðila í almenningsflugi, sem og verkefna og eftirlits yfirvalda.

Hins vegar breytingar á efnisákvæðum loftferðalaga til samræmis við þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands, bæði alþjóðlega samninga á sviði flugmála og EES-gerðir sem þegar hafa verið teknar upp í EES-samninginn eða bíða upptöku. Í lögunum eru heimildir til setningar reglugerða á þessu sviði styrktar. Tekið er tillit til samnings um sameiginlega Evrópska flugsvæðið sem Ísland gerðist aðili að 2006 og tók gildi hvað afmarkaða þætti varðar í desember 2017. Samningurinn kveður á um frjálsan markaðsaðgang, staðfesturétt, jöfn skilyrði til samkeppni og sameiginlegt regluverk. Jafnframt er tekið tillit til nýs viðauka um öryggisstjórnunarkerfi við Chicago-samninginn um alþjóðaflugmál. Loks er Montreal-samningurinn frá 1999, alþjóðasamningur um skaðabótaábyrgð flugrekenda, lögfestur.

Að auki fela lögin í sér ýmsar breytingar á öðrum lögum. Meginþorri þeirra varða leiðréttingu hugtaka og tilvísana, en einnig eru fáeinar efnisbreytingar. Veigamestu breytingar á lögum um rannsókn samgönguslysa varða skyldur nefndarinnar til að rannsaka flugslys og alvarleg flugatvik. Þá eru afmarkaðar breytingar gerðar á tekjuskattslögum og lögum um friðhelgi og forréttindi alþjóðastofnana, m.a. í því skyni að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA.

Nánar um helstu breytingar:

  • Gildissvið útvíkkað. Gildissvið loftferðalaga er útvíkkað í samræmi við víðtækt gildissvið reglna Evrópusambandsins á sviði flugssamgangna, svo sem með tilliti til eftirlitshlutverks Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins með loftförum, aðilum og starfsemi í þriðju ríkjum og veitendum samevrópskrar þjónustu á sviði flugleiðsögu. Einnig taka lögin til annarra tækja og hluta sem ferðast geta um loftið en eru ekki loftför og sem ógnað geta öryggi loftferða.
  • Ómönnuð loftför. Fjallað er um ómönnuð loftför og starfrækslu þeirra. Kveðið er á um skyldu til skráningar ómannaðra loftfara, að tilteknum skilyrðum uppfylltum og skráningarskyldu flugrekenda og umráðenda ómannaðra loftfara.
  • Íslenskt yfirráðasvæði. Uppfærð hafa verið ákvæði er varða aðgang að íslensku yfirráðasvæði, m.a. með tilliti til ómannaðra loftfara, ríkisloftfara og flugréttinda, þ.e. réttar til flugs í ábataskyni um íslenskt yfirráðasvæði. Einnig er kveðið á um skyldu flugrekenda frá þriðju ríkjum til að afla sér flugöryggisvottunar Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins sem forsendu til flugs til, frá og innan Íslands.
  • Verkaskipting um eftirlit. Í lögunum eru skýrð nánar og afmörkuð verkefni og eftirlit annars vegar Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins og hins vegar Samgöngustofu, samstarf þessara tveggja stofnana og möguleika á tilfærslu eftirlits. Jafnframt eru settar fram almennar kröfur til stjórnsýslu Samgöngustofu með vísan til fyrirliggjandi krafna sem þegar hafa verið innleiddar.
  • Nýjar skrár. Samgöngustofu er falið að halda tvær nýjar skrár, auk fyrirliggjandi skrár um íslensk loftför. Annars vegar skrá um þá einstaklinga og fyrirtæki hér á landi sem starfrækja ómönnuð loftför og hins vegar skrá um tæki og hluti sem geta ferðast um loftið en eru ekki loftför.
  • Lofthæfi. Á sviði lofthæfis eru nokkur nýmæli varðandi starfsemi sem háð er vottun á sviði hönnunar og framleiðslu framleiðsluvara á þessu sviði. Allt eru þetta efnisatriði sem þegar er fjallað um í fjölda EES-gerða sem þegar eru hluti EES-samningsins og hafa verið innleiddar í landsrétt.
  • Neytendavernd. Á sviði neytendaverndar eru gerðar breytingar á afgreiðslu kvartana neytenda og kæruréttur til ráðherra er felldur niður. Þess í stað eru úrskurðir Samgöngustofu bindandi með aðfararheimild, nema sá flugrekandi eða rekstraraðili flugvallar sem kvörtun beinist gegn tilkynni innan 30 daga að hann hyggist ekki vera bundinn við úrskurð stofnunarinnar.
  • Bótaábyrgð flugrekenda (Montreal-samningur). Með lögfestingu Montreal-samningsins frá 1999 um bótaábyrgð flugrekenda er jafnframt leitast við að skapa samningsákvæðum hans traustari grundvöll.
  • Vinnuvernd flugverja. Ákvæði um vinnuvernd flugverja í áhöfn hafa verið styrkt einkum hvað varðar vinnu- og hvíldartíma og almenna umgjörð eftirlits.
  • Flugvellir. Í kafla um flugvelli eru nokkur nýmæli. Kveðið er á um vottun öryggistengds flugvallarbúnaðar og þeirra sem veita flugafgreiðslu- og hlaðstjórnunarþjónustu.
  • Samráð um skipulag flugvalla. Ný ákvæði eru um samráðsskyldu sveitarfélaga og rekstaraaðila flugvallar um vöktun flugvallarumhverfis. Þá eru ákvæði um skipulagsreglur yfirfarin og uppfærð, og kveðið er á um tilkynningarskyldu vegna hindrana og merkingar hindrana.
  • Flugleiðsaga. Á sviði flugleiðsögu er nánar kveðið á um vottun starfsemi sem veitir flugumferð þjónustu. Gætir þar ýmsa nýmæla svo sem svonefnda u-rýmisþjónustu og samræmda upplýsingaþjónustu sem veitt er ómönnuðum loftförum. Einnig er nánar kveðið á um vottun kerfa og kerfishluta sem miðla upplýsingum til loftfara og frá þeim og bætt er við efnisákvæðum er varða þá þjónustuþætti sem falla þar undir.
  • Skipulag loftrýmis. Ný ákvæði eru um skipulag og hönnun loftrýmisins, m.a. til að tryggja víðtækt samráð um þau atriði er varða nýtingu loftrýmisins sem ætlað er að gilda ótímabundið og tryggja miðlun upplýsinga um loftrýmismál.
  • Bann við geðvirkum efnum. Kveðið er á um víðtækt bann við neyslu geðvirkra efna og Samgöngustofu veittar heimildir til eftirlits með því.
  • Opinbert markaðseftirlit. Samgöngustofu er falið opinbert markaðseftirlit með vörum sem undir lögin falla, þ.m.t. ómönnuðum loftförum.
  • Eftirlits- og valdheimildir. Í lögunum eru almennar eftirlits- og valdheimildir styrktar og Samgöngustofu fengið vald til að leggja á stjórnvaldssektir.
  • Skoða ný heildarlög um loftferðir í Stjórnartíðindum

Sjá frétt innviðaráðuneytisins um nýju lögin

Nokkur lagafrumvörp kynnt í samráðsgátt

Birt hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda áform Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðherra, um frumvörp sem hann hyggst leggja fram á Alþingi næsta haust. Allir geta sent inn umsögn um áformin en frestur er mismunandi eftir einstökum áformum. Þau frumvörpu sem snerta Samgöngustofu á einhvern hátt eru eftirfarandi:

Opinbert hlutafélag um uppbyggingu og rekstur samgönguinnviða

Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu og rekstur samgönguinnviða. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að ráðist verði í skilgreindar þjóðhagslega arðsamar flýtiframkvæmdir í samgöngum á grundvelli fölbreyttari fjármögnunar og samstarfs við einkaaðila. Einnig að mótuð verði áætlun um uppbyggingu og fjármögnun jarðganga og opinbert félag stofnað um jarðgangagerð. Margvíslegur þjóðfélagslegur ávinningur fylgir því að flýta slíkum framkvæmdum, s.s. aukið umferðaröryggi, stytting leiða með þeim jákvæðu umhverfisáhrifum sem því fylgja og betri og öruggari tengingar byggða og atvinnusvæða.

Í samvinnu innviðaráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Vegagerðarinnar hefur verið unnið að mótun traustrar og hagfelldrar umgjarðar slíkra innviðaverkefna til framtíðar. Lykilþáttur í starfsemi félagsins er að halda utan um fjármögnun verkanna, þ.m.t. innheimtu notkunargjalda. Greiningar benda til þess að fýsilegast sé að halda utan um slík verkefni í opinberu hlutafélagi sem verði að fullu í eigu ríkisins. Þannig fæst skýr umgjörð og utanumhald um þessi verkefni. Eftir á þó að taka afstöðu til þess hvort rétt sé að það verði í einu slíku félagi eða fleirum.

Frestur til að skila umsögn í samráðsgátt er til og með 2. ágúst 2022.

Rekstur flugvalla og veiting flugleiðsöguþjónustu

Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og veitingu flugleiðsöguþjónustu. Er því ætlað að koma í stað þrennra laga sem nú gilda á þessu sviði um stofnun og starfsemi Isavia ohf. og þau verkefni sem félagið annast fyrir ríkið.

Ákvæði núgildandi laga um rekstur flugvalla og flugleiðsögu eru dreifð, takmörkuð og að einhverju leyti úrelt. Þá vantar skýr ákvæði um hlutverk flugvalla í heildarsamgöngukerfi landsins og hvernig stefnumörkun samgönguyfirvalda skuli framfylgt. Almennar kröfur til starfrækslu flugvalla, rekstrarstjórnunar flugumferðar og veitingu flugleiðsöguþjónustu falla hins vegar undir lög um loftferðir og varða áformin ekki þá löggjöf.

Ætlunin er að útfæra sérstaka heimild til töku varaflugvallagjalds í frumvarpinu í því skyni að efla þjónustu og uppbyggingu varaflugvalla fyrir millilandaflugið hér á landi. Við vinnslu frumvarpsins verður skoðað með hvaða hætti er best að útfæra slíka gjaldtökuheimild.

Frestur til að skila umsögn í samráðsgátt er til og með 29. júlí 2022.

Stefnumarkandi áætlanir innviðaráðuneytisins

Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála. Sú stefnumörkun sem fellur undir frumvarpið eru: Byggðaáætlun, landsskipulagsstefna, samgönguáætlun, stefnumótun á sviði húsnæðismála og stefnumótandi áætlun ríkisins um málefni sveitarfélaga.

Með því að samhæfa stefnur og áætlanir á verkefnasviði ráðuneytisins gefst kostur á að hámarka árangur og jákvæð áhrif stefnumótunarinnar enda verði tekið mið af tengdum málefnum og horft lengra en til sérstakra verkefna einstakra málaflokka. Byggt verður á skýrum áherslum með sameiginlegri framtíðarsýn, meginmarkmiðum og sameiginlegum verkefnum fyrir alla málaflokka sem ganga þurfa með samræmdum hætti í gegnum allar áætlanirnar. Takmarkið er að ná meiri árangri fyrir samfélagið með aukinni samvinnu málaflokka, meira gagnsæi og hagkvæmari nýtingu fjármuna.

Frestur til að skila umsögn í samráðsgátt er til og með 2. ágúst 2022.

Breytingar á umferðarlögum

Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum nr. 77/2019 . Frumvarpinu er ætlað að veita EES-gerðum, sem til stendur að taka upp í EES-samninginn, nauðsynlega lagastoð, samhliða því að fella brott ósamrýmanleg ákvæði í gildandi löggjöf og tryggja að hún falli að þjóðréttarlegum skuldbindingum.

Einnig kemur til skoðunar að gera aðrar smærri breytingar, s.s. til að fylgja eftir tillögum starfshóps um smáfarartæki. 

Frestur til að skila umsögn í samráðsgátt er til og með 29. júlí 2022.

Breytingar á lögum um farþega- og farmflutninga

Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017. Frumvarpinu er ætlað að tryggja lagastoð til innleiðingar á samevrópskum reglugerðum er snúa að farmflutningum milli ríkja á ökutækjum yfir 2,5 tonn að heildarþyngd. Einnig er til skoðunar að gera breytingar til einföldunar á leyfafyrirkomulagi skv. lögunum.

Frestur til að skila umsögn í samráðsgátt er til og með 27. júlí 2022.

Sjá frétt á vef stjórnaráðsins

Drög að reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra í samráðsgátt

Drög að reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar samkvæmt frétt á vef innviðaráðuneytisins. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila umsögn er til og með 11. ágúst 2022.

Reglugerðardrögin innihalda lýsingar á umferðarmerkjum, umferðarljósum, hljóðmerkjum og öðrum merkjum á eða við veg til stjórnunar á eða leiðbeiningar fyrir umferð. Gerðar eru talsverðar breytingar á flokkunarkerfi umferðarmerkja, m.a. til einföldunar og í því skyni að samræma við alþjóðlega staðla.

Í drögunum er lagt til að tekin verði upp á fimmta tug nýrra umferðarmerkja, á annan tug nýrra yfirborðsmerkinga og tvenn ný umferðarljós. Þá er lagt til að gera breytingar á útliti á fimmta tug merkja og að fella á brott á sjöunda tug merkja. Markmiðið er að merking umferðarmerkja verði gerð skýrari, orðalag samræmt og tilmæli til veghaldara færð í viðauka. Í viðaukum er fjallað um hvernig veghaldari skuli nota umferðarmerki, þar á meðal um kröfur til tæknilegrar útfærslu og uppsetningar.

Innviðaráðherra skipaði starfshóp til að vinna reglugerðardrögin. Hópurinn var skipaður fulltrúa Vegagerðarinnar sem leiddi hópinn og fulltrúum ráðuneytisins, Samgöngustofu, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Við vinnuna hafði starfshópurinn m.a. hliðsjón af ákvæðum sáttmála Sameinuðu þjóðanna um umferðarmerki og umferðarljós frá 1968 auk þess sem litið var til regluverks á öðrum Norðurlöndum.

Flokkun umferðarmerkja og helstu breytingar

Viðvörunarmerki (100)

  • Fjögur ný merki eru kynnt; til að vara við holum, skertri sýn vegna veðurs, umferðartöfum og slysi.
  • Fleiri myndmerki verða í boði til að vara við dýrum í umferð, m.a. nýtt merki með kanínum.

Forgangsmerki (200)

  • Kynnt er nýtt merki fyrir fléttuakstur.

Bannmerki (300)

  • Flokkur bannmerkja tekur óverulegum breytingum frá gildandi reglugerð.


Boðmerki (400)

  • Flokkur boðmerkja tekur minniháttar breytingum frá gildandi reglugerð.


Sérreglumerki (500)

  • Þetta er nýr flokkur með merkjum sem ætlað er að mæla með bindandi hætt fyrir um sérstakar reglur eða takmarkanir fyrir umferð, aðrar en með forgangs, bann- eða boðmerkjum.
  • Ný merki eru kynnt fyrir göngugötur, annars vegar göngugata og göngugata endar.
  • Einnig lagt að skoða upptöku merkja fyrir hjólagötur, annars vegar hjólagata og hjólagata endar.
  • Nýtt merki er kynnt fyrir gjaldskyld bifreiðastæði og svæðismerkingar biðreiðastæða.


Upplýsingamerki (600)

  • Undir þessum flokki verða eingöngu merki til upplýsinga fyrir vegfarendur en kveða ekki á um skyldu eða bann við tiltekinni háttsemi. Af þeim sökum færast þó nokkur merki úr gildandi reglugerð í flokk sérreglumerkja.
  • Ný merki eru kynnt fyrir meðalhraðaeftirlit, eftirlitsmyndavél, rafræna gjaldtöku og neyðarútgang.
  • Fleiri útfærslur eru kynntar af merki fyrir botngötu.


Vegvísar og þjónustumerki (700).

  • Þessi merki sameinast nú í einum flokki.
  • Ný merki eru kynnt, t.d. ferðamannastaður með vörðu og staður á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna.


Undirmerki (800)

  • Nokkur ný merki kynnt, s.s. um ummferð hjólandi vegfarenda í báðar akstursáttir, umferð hópferðabifreiða í almenningsakstri úr báðum áttum og hált í bleytu.


Önnur merki (900)

  • Óverulegar breytingar eru gerðar á flokki annarra merkja.


Yfirborðsmerkingar (1000)

  • Gerðar eru tilllögur um nýjar yfirborðsmerkingar tengdar hjólreiðum, hjólabox, hjólaþverun og hjólavísar.


Umferðarljós og hljóðmerki (1100)

  • Lagt er til að taka upp ný umferðarljós fyrir hjólandi vegfarendur.
  • Veitt er heimild til að sýna bæði reiðhjól og mann saman á umferðarljósi.

Nánari upplýsingar



Frumvarp um leigubifreiðar með breytingum

Drög að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðaakstur hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila umsögn er til og með 27. júlí 2022.

Að meginstefnu til er um sama frumvarp að ræða og lagt hefur verið fram áður á Alþingi, en ekki náð fram að ganga. Til stendur að leggja það fram að nýju á 153. löggjafarþingi í haust með þeim breytingum sem lagðar voru til í nefndaráliti meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á 152. löggjafarþingi, auk annarra minniháttar breytinga.

Markmið með frumvarpinu er að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiðaþjónustu, neytendum og þjónustuveitendum til hagsbóta. Þá er frumvarpinu ætlað að tryggja að íslenska ríkið uppfylli þær þjóðréttarlegu skuldbindingar sem það hefur undirgengist samkvæmt samningnum um evrópska efnahagssvæðið, auk þess að færa lög og reglur um leigubifreiðar til nútímalegra horfs með öruggar og tryggar samgöngur að leiðarljósi.

Helstu breytingar sem gerðar hafa verið á frumvarpinu frá síðustu framlagningu eru eftirfarandi:

  • Sett hefur verið inn skilgreining á hugtakinu leigubifreiðastöð.
  • Rekstrarleyfi veitir rétt til reksturs einnar eða fleiri leigubifreiða í stað þess að leyfið veiti aðeins rétt til reksturs einnar bifreiðar.
  • Veita má einstaklingum og lögaðilum rekstrarleyfi í stað þess að aðeins megi veita einstaklingum slíkt leyfi.
  • Fellt er brott skilyrði um starfsstöð hér á landi til geta fengið útgefið rekstrarleyfi eða starfsleyfi leigubifreiðastöðvar.
  • Bætt hefur verið við almennri skyldu rekstrarleyfishafa til að hafa afgreiðslu á leigubifreiðastöð sem fengið hefur starfsleyfi Samgöngustofu. Þó er gert ráð fyrir að rekstrarleyfishafi geti rekið leigubifreiðastöð án þess að þurfa einnig að öðlast starfsleyfi leigubifreiðastöðvar.
  • Sérstaklega er nú tekið fram að sé samið fyrir fram um gjald fyrir ekna ferð megi gjaldið vera ýmist áætlað eða endanlegt. Eftir sem áður skal verðskrá og þær forsendur sem umsamið gjald byggist á vera aðgengilegar viðskiptavini.

    Gildandi lög eru frá árinu 2001 en nokkrar breytingar hafa verið gerðar á lögunum frá gildistöku þeirra.

Sjá frétt á vef innviðaráðuneytisins

Fréttir af ráðningarmálum

Gengið hefur verið frá ráðningu deildarstjóri tæknimála ökutækja og innviða.
Ráðinn var Jón Hjalti Ásmundsson.
Jón Hjalti er menntaður vélaverkfræðingur og hefur leyfisbréf framhaldsskólakennara.
Síðastliðin ár hefur Jón Hjalti starfað sem skólastjóri skipstjórnar- og véltækniskólans. Þar áður starfaði hann í rúm 20 ár hjá Frumherja (og Bifreiðaskoðun Íslands) í fjölbreyttum verkefnu, lengst af í bifreiðaskoðunardeildinni og sem yfirmaður ökutækjasviðs Frumherja.

Jón Hjalti hefur störf 15. ágúst nk.

Fyrsta rafmagnsflugvélin komin með lofthæfivottorð

Þau tímamót urðu í flugsögu Íslands að við hjá Samgöngustofu skráðum fyrstu rafmagnsflugvélina þann 25. mars á þessu ári og hún fékk svo lofthæfivottorð þann 3. júní síðastliðinn. Morgunblaðið fjallaði um þessi tímamót í frétt á mánudaginn. Það verður áhugavert að fylgjast með þessari þróun og sjá hvernig þróunin verður í orkuskiptum í flugi í framtíðinni.

Frétt Morgunblaðsins:

Fyrsta rafmagnsflugvél Íslands

Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélagsins og starfsmaður hjá Icelandair, og Friðrik …

Fyrsta raf­magns­flug­vél Íslands hef­ur nú fengið flug­hæfis­skír­teini og mun senn hefja flugið, að því er fram kem­ur í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu frá Icelanda­ir, Isa­via, Lands­virkj­un, Hót­el Rangá, Lands­bank­an­um, Flug­skól­an­um Geir­fugli, Flug­skóla Reykja­vík­ur og Flugaka­demíu Íslands sem standa að fyrstu raf­magns­flug­vél­inni á Íslandi.

Seg­ir í til­kynn­ing­unni að um sé að ræða „mik­il­væg tíma­mót í ís­lenskri flug­sögu“

„Fé­lagið Raf­magns­flug ehf. flutti vél­ina til lands­ins með það að mark­miði að taka frum­kvæði í orku­skipt­um í flugi, þjálfa starfs­fólk í þess­ari nýju tækni og kynna hana fyr­ir lands­mönn­um,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni. 

Flug­vél­in ber heitið TF-KWH. Hún er tveggja sæta af gerðinni Pip­istrel og er fram­leidd í Slóven­íu. Vél­in er á stærð við þær vél­ar sem notaðar eru í flug­kennslu hér á landi. 

Rafmagnsknúna vélin mynduð á Reykjavíkurflugvelli.

Ómet­an­leg­ur vel­vilji 

„Með inn­flutn­ingi henn­ar er stigið mik­il­vægt fyrsta skref í orku­skipt­um í flugi. Fyrst um sinn er raun­hæft að horfa til orku­skipta minni flug­véla og því næst í farþega­flugi inn­an­lands. Til þess að gera orku­skipti mögu­leg er sam­starf lyk­ilaðila mik­il­vægt, svo sem flug­fé­laga, flug­valla og orku­fyr­ir­tækja,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

„Raf­magns­flug ehf. var upp­haf­lega stofnað af Matth­íasi Svein­björns­syni og Friðriki Páls­syni í árs­lok 2021 en þeir hafa unnið að því síðastliðin þrjú ár að fá raf­magns­flug­vél­ina til lands­ins. Fjöl­marg­ir aðilar koma að verk­efn­inu en hlut­haf­ar og bak­hjarl­ar fé­lags­ins eru Icelanda­ir, Isa­via, Lands­virkj­un, Hót­el Rangá, Lands­bank­inn, Flug­skól­inn Geir­fugl, Flug­skóli Reykja­vík­ur, Flugaka­demía Íslands, ásamt Matth­íasi, Friðriki og Herjólfi Guðbjarts­syni. Þá er rétt að geta þess að Eim­skip lagði fé­lag­inu lið með því að flytja vél­ina til lands­ins því að kostnaðarlausu og trygg­inga­fé­lag flug­vél­ar­inn­ar Con­sello felldi niður iðgjöld. Sá vel­vilji, sem mætt hef­ur fé­lag­inu í öll­um und­ir­bún­ingi og inn­flutn­ingi vél­ar­inn­ar er ómet­an­leg­ur.“

Í til­kynn­ing­unni seg­ir að Ísland sé  í ein­stakri stöðu til þess að vera í far­ar­broddi í heim­in­um hvað orku­skipti í flugi varðar.

„Vegna stuttra flug­leiða inn­an­lands, góðs aðgeng­is að um­hverf­i­s­vænni raf­orku, auk þess sem lega lands­ins milli Evr­ópu og Norður-Am­er­íku get­ur til framtíðar skapað marg­vís­leg tæki­færi þegar kem­ur að orku­skipt­um í milli­landa­flugi.

Þjálf­un flug­manna mun hefjast á næst­unni og í kjöl­farið verður boðað til viðburðar þar sem fyrsta form­lega flugið fer fram.“

Elfis en ekki Elvis

Kvikmynd um Elvis er nú í sýningum í Sambíónum og er vel látið af henni. Á sama tíma erum við að sýna myndband um Elfis á samfélagsmiðlum og smærri brot úr myndinni er beint til erlendra ferðamanna hérlendis sem og þeirra erlendu aðila sem eru að stefna á ferð til Íslands.

Í þessu mynefni eru erlendir ökumenn upplýstir um sérstöðu íslenskrar umferðar og íslenskra aðstæðna. Einnig verður þeim birt auglýsing þar sem þeir eru hvattir til að nota bílbeltin.

Myndböndin tvö má nálgast hér að neðan:

Fræðslumynd um rafhlaupahjól

Eins og þið hafið kannski tekið eftir hefur fræðslumynd um rafhlaupahjól verið í birtingu á samfélagsmiðlum og víðar á vefnum að undanförnu. Einnig hefur sú mynd verið klippt niður í smærri brot (15-30 sek) þar sem hvert atriði er tekið fyrir sérstaklega og verða þau brot einnig birt með sama hætti.

Myndbandið má sjá hér að neðan en þið megi endilega vera dugleg að deila því áfram á Facebook og hjálpa okkur þannig að koma þessum mikilvægu skilaboðum á framfæri.

Á vefnum okkar er svo sérstök vefsíða, www.samgongustofa.is/rafhlaupahjol, þar sem allar helstu upplýsingar eru að finna, t.d. spurt og svarað.


https://www.youtube.com/watch?v=2dAK5MKM3As





Föstudagslagið í boði Egils

Föstudagslagið er að þessu í boði Egils Vignis. Þetta síðasta föstudagslagið fyrir sumarfrí en við tökum aftur upp þráðinn í áskorunarfyrirkomulaginu seinnipartinn í ágúst. Um val sitt segir Egill:

Lagið sem ég valdi er This is where i came in með Bee Gees. Þetta er titillagið á tuttugustu og annari og jafnframt síðustu plötu þeirra bræðra. Stíll lagsins minnir á rokkþemað sem oftast var að finna í lögum þeirra frá sjöunda og áttunda áratugnum. Þá má líka finna í laginu áhrif frá sjálfum Bítlunum. Ég skora á Gunnar Geir að koma með föstudagslagið þegar við höldum áfram í haust.