Léttum á vinnurýminu okkar

Metþátttaka í Umferðarskólanum

Í ár voru það rúmlega 200 leikskólar sem tóku þátt í Umferðarskóla Samgöngustofu og skráðu til þátttöku rúmlega 4000 börn. Umferðarskólinn er hugsaður fyrir elsta hóp leikskólabarna en þar er m.a. fjallað um öryggi barna í bílum, hvernig best sé að fara yfir götu, hvar öruggast sé að hjóla og leika sér úti.

Það kostar ekkert fyrir leikskólana að taka þátt. Þeir leikskólar sem skrá sig til þátttöku fá sendar ítarlegar leiðbeiningar, glærur, handrit, myndir, viðurkenningarskjal og litabækur fyrir hópinn. Í ár fengu leikskólarnir einnig Innipúka brúðu til að gera umferðarfræðsluna ennþá skemmtilegri.

Vorpartý Farsýslunnar

Skráning er hafin í vorpartý Farsýslunnar sem haldið verður með pompi og prakt þann 9. maí nk.

Skráningarhlekkur HÉR!

Skráningarfrestur er út mánudaginn 5. maí.

Dagskráin hér innanhúss er hugsuð fyrir starfsmenn eingöngu en mökum og vinum / fyrrum starfsmönnum er velkomið að hitta okkur á Ölver og taka nokkur lög í karókí.

Viltu koma í nefnd?

Nánari upplýsingar um Jafnréttisnefnd Samgöngustofu má finna hér

Hjólað í vinnuna

Hjólað í vinnuna hefst 7 maí n.k. og stendur til 27 maí.

Búið er að opna fyrir skráningu og hvetur umhverfishópurinn starfsfólk Samgöngustofu til þátttöku! 🚲
Markmið verkefnisins er að hvetja til daglegrar hreyfingar og vekja athygli á virkjum og sjálfbærum samgöngum. Hjólreiðar sameina útivist, líkamsrækt og ferskt loft – allt í einu!

Leiðbeiningar um skráningu er að finna hér og skráning fer fram á Hjólað í vinnuna
Innan umferðasviðs er liðið mótvindur
2. hæð er með lið sem heitir 2. hæð
Á fullri ferð er opið lið fyrir allt starfsfólk Samgöngustofu

Öll geta tekið þátt í Hjólað í vinnuna svo framarlega sem þeir nýta eigin orku til og frá vinnu þ.e. hjóla, ganga, hlaupa, nota línuskauta o.s.frv. Þau sem nýta almenningssamgöngur geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem gengin eða hjóluð er til og frá stoppistöð

Rafræn bókleg bifhjólapróf

Rafræn próftaka í bóklegum prófum fyrir bifhjólaréttindi (AM/A1/A2/A) hófst í dag, 23. apríl.

Um er að ræða tvö mismunandi próf, eitt fyrir AM flokk og eitt fyrir A flokka.

Prófin eru sett upp á sambærilegan hátt og önnur rafræn próf. Í stað 30 spurninga með 3 svarmöguleikum eru 50 fullyrðingar sem svarað er rétt/rangt. Hver fullyrðing gefur eitt stig og próftaki þarf að fá 45 stig til að standast prófið.

Ekki er lengur um A og B hluta að ræða heldur er prófið ein heild.

30 fullyrðingar tengjast umferðarmerkjum, forgangi, merkjum lögreglu o.s.frv. en 20 fullyrðingar eru almenns eðlis.

Próf fyrir A-flokka eru í boði á íslensku og ensku, próf fyrir AM flokk er í boði á íslensku.

Með þessu skrefi eru nær öll bókleg ökupróf komin á rafrænt form. Eingöngu próf fyrir dráttarvélaréttindi stendur eftir en það verður fært yfir á rafrænt form á allra næstu vikum.


Auglýst starf sérfræðings í flugöryggi og ráðning lögfræðinga

Staða sérfræðings í flugöryggi var auglýst í gær með umsóknarfresti til 6. maí nk. Auglýsingin hefur verið birt á Starfatorgi, Alfreð og á samfélagsmiðlum stofnunarinnar. Auglýsinguna má finna hér.

Fyrir páska var gengið frá ráðningu lögfræðinga í lögfræðideild stjórnsýslusviðs;

Berglind Gísladóttir hefur lokið Mag.Jur gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem lögfræðingur hjá Samgöngustofu frá árinu 2023. Áður starfaði hún sem lögfræðingur hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og Þjóðskrá Íslands.

Ludvig Árni Guðmundsson hefur lokið Mag.Jur gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur starfað sem lögfræðingur hjá Samgöngustofu frá árinu 2024. Áður starfaði hann sem laganemi hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og LOGOS lögmannsþjónusta.

Yngvi Hommersand hefur lokið Mag.Jur gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Auk þess hefur hann lokið MSc gráðu í Economics and Business Administration frá Hanken School of Economics. Hann starfar í dag sem lögfræðingur hjá Kærunefnd útlendingamála. Áður starfaði hann hjá KRST lögmenn, NEFCO og sendiráði Íslands í Finnlandi sem lögfræðingur. Yngvi mun hefja störf 1. júní nk.

Forvarnardagur Menntaskólans að Laugarvatni

Samgöngustofa þátt í forvarnadegi fyrir unga ökumenn sem haldinn var í Menntaskólanum að Laugavatni rétt fyrir páska. Dagurinn byrjaði á umferðarfræðslu frá Samgöngustofu, lögreglu og 112 og lauk þannig að slys var sviðsett þar sem nemendur fengu að fylgjast með viðbragðsaðilum bregðast við slysi.

Það er fagnaðarefni þegar framhaldsskólar leggja mikinn metnað í umferðarfræðslu fyrir unga fólkið. Það er svo mikilvægt að ná til þeirra á þeim aldri þar sem mörg þeirra eru að taka bílprófið. Með degi sem þessum vonumst við til að auka skilning unga fólksins á mikilvægi þess að taka skynsamar ákvarðanir í umferðinni.

Svona flottir dagar verða ekki til án virkilega góðrar samvinnu margra ólíkra aðila. Við þökkum skólanum og viðbragðsaðilum fyrir frábært samstarf.

Kveikur í næstu viku

Þriðjudagskvöldið 15. apríl verða flugöryggismál til umfjöllunar í Kveik. Um er að ræða framhald nýlegrar umfjöllunar um flugslysið í Þingvallavatni. Fókusinn er á möguleg brot á reglum sem gilda um sölu á flugi í ábataskyni.

Kveikur hafði samband við undirbúning þáttarins til að afla svara við ýmsum tengdum spurningum. Einnig var tekið viðtal við Jón Gunnar um þessi mál og verður það að einhverju eða öllu leyti sýnt á þriðjudagskvöldið.

Páskar í vinnustund

Vor í lofti og starfsfólk á leið í páskafrí 🐣

Við viljum biða ykkur um að fara yfir vinnustund og passa sérstaklega að allt tímabilið sé útfyllt þar sem það klárast í dymbilviku 🌷

Gleðilega páska og njótið súkkulaðisins 🍫 

Bjargvætturinn Jóhannes Briem

Í gær heimsóttu nokkrir starfsmenn siglingasviðs og stjórnsýslusviðs, ásamt forstjóra, björgunarskipið Jóhannes Briem. Siglt var góðan hring um höfnina þar sem áhöfnin sýndi getu skipsins og kynnti tæknibúnaðinn sem er mikil breyting frá eldra skipi.

Jóhannes Briem er nýlegt skip sem kom til heimahafnar í Reykjavík haustið 2023. Það er í eigu Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sem rekur alls þrettán björgunarskip víðsvegar um landið. Fjögur þeirra hafa nú þegar verið endurnýjuð með fullkomnum tækjabúnaði og stefnt er það því að endurnýja þau öll. Von er á næsta skipi til heimahafnar í Höfn í Hornafirði nú í sumar.

Skiptæknideild og siglinga- og hafnaeftirlitsdeild gegna með vinnu sinni lykilhlutverki við að koma þessum nýju björgunarskipum, sem og öðrum nýjum skipakosti, í notkun við Íslandsstrendur.



Slöngubátar undir smásjá

Í síðustu viku fóru úttektarmenn frá skipaeftirlitsdeild í markaðseftirlit með skemmtibátum hjá fyrirtækinu Fraktlausnir. Þar voru fimm slöngubátar frá Kína teknir til skoðunar, með það að markmiði að ganga úr skugga um að bátarnir uppfylltu lögbundnar kröfur um öryggi, mengunarmörk og merkingar.

Markaðseftirlit með skemmtibátum snýst um að tryggja að bátar sem framleiddir, fluttir inn eða seldir á Íslandi uppfylli viðeigandi lög og reglur, til dæmis varðandi hönnun, byggingu, mengun og merkingar. Þetta eykur öryggi neytenda, verndar umhverfið og stuðlar að sanngjörnum viðskiptum. Neytendastofa, Samgöngustofa og tollayfirvöld hafa hvert sitt hlutverk í þessari keðju og vinna saman að því að tryggja öruggar og lögmætar vörur á markaði fyrir skemmtibáta.





Snertiskjáir í bílum

Það hefur verið skammt stórra högga á milli í banaslysum í umferð, eins og forsíða Morgunblaðsins sýndi í dag. Eru þau nú orðin sex talsins á árinu.

Í Kveik sl. þriðjudag var fjallað um farsímanotkun undir stýri. Í framhaldinu hafa þau á RÚV verið að velta fyrir sér snertiskjám sem eru hluti af stjórntækjum margra nýrra bíla. Skýrt er í umferðarlögum að snjalltæki má ekki nota við akstur nema handfrjálst. Í nýjum bílum þarf hins vegar að nota skjá til að stýra t.d. loftræstingu og rúðuþurrkum. Mikilvægt er þá fyrir ökumann að stilla það af sem hægt er að gera áður en haldið er af stað, s.s. tónlist og leiðsögutæki og vera meðvitaður um hættuna sem hlýst af því þegar athyglin fer af veginum. Samgöngustofa hefur tekið virkan þátt í þessari þörfu umræðu hjá RÚV og aðstoðað við umfjöllunina með t.d. samantekt margvíslegra gagna.


Stafræn eigendaskipti – öruggari og hraðari skráning 

Frá og með 1. maí mun Samgöngustofa beina  eigendaskiptum ökutækja yfir í stafrænt ferli. Markmiðið er að einfalda umsýslu og auka öryggi.  

Pappírsferlið verður áfram í boði en afgreiðsla þess getur tekið allt að 7 daga þar sem aukin áhersla verður lögð á að tryggja öryggi og áreiðanleika gagna.  Af þessum sökum hefur Samgöngustofa óskað eftir því að skoðunarstofur hætti að taka á móti eigendaskiptum á pappír frá og með 1. maí nk. 

Viðskiptavinir eru hvattir til að nota stafræna ferlið, sem er einfalt og öruggt  á heimasíðu stofnunarinnar.

Hér má sjá nýja frétt á vefnum okkar um stafræn eigendaskipti ökutækja frá 1. maí.