Föstudagslagið í boði Gunnars “Maiden”

Iron Maiden release Ed Force One documentary | Louder

Sveinn skoraði á Gunnar Karl fyrir þessa viku og tók Gunnar að sjálfsögðu vel í áskorunina. Um val sitt segir Gunnar:

Þegar Sveinn skoraði á mig þá kom aldrei annað til greina en að velja lag með minni uppáhalds hljómsveit og bestu hljómsveit í heimi klárlega Iron Maiden. Valið var hins vegar ekki auðvelt en ég ákvað á endanum að velja eitt af þeirra allra bestu lögum Aces High enda mikið keyrslulag sem kikkstartar klárlega helginni hjá mér. Annars er sextettinn í Maiden miklir íslandsvinir og hafa spilað hérna á klakanum tvisvar á tónleikum árið 1992 í Laugardalshöll og 2005 í Egilshöll.

Þess ber þá hæst að geta söngvarans Bruce Dickinson sem var flugmaður hjá Iceland Express í nokkur ár upp úr aldamótum þegar hann var ekki að þenja raddböndin á tónleikum. Hápunktinum var síðan náð þegar þeir leigðu Boeing 747-400 jumbo þotu af Air Atlanta (Ed Force One) fyrir Book Of Souls heimsreisuna 2016 þar sem Bruce var að fljúga vélinni og áhöfnin var íslensk.

Hægt er að skoða mjög skemmtilegt innslag um reisuna á YouTube en til að gefa ykkur smá tölfræði þá tók túrinn 5 mánuði, 6 heimsálfur, 45 borgir, 123.000 km flognir og lengsta flugið var frá Perth til Cape Town, 11 tímar og 24 min:

Ég sá þá á tónleikum í tveimur af þessum borgum (Munchen og Berlin) og var að vonast til að sjá vélina á flugvellinum þegar ég var að lenda þar en án árangurs!

Þegar þeir skiluðu vélinni aftur til Íslands eftir túrinn í júní 2016 þá flaug hún eitt flug í viðbót merkt og innréttuð Iron Maiden til Marseille í Frakklandi með 350 íslendinga á vegum Air Atlanta til að sjá Ísland – Ungverjaland á EM. Þó ég hafi ekki verið það heppinn að vera í því flugi þá sá ég loksins vélina á flugvellinum í Marseille því ég var sjálfur að fara á leikinn og var það stór stund.

Þar sem Maiden er eitt besta tónleikaband í heimi enda hef ég séð þá 23 sinnum á tónleikum (nú síðast í sumar í Barcelona og Lissabon) þá varð ég klárlega að velja live útgáfu af laginu.

Fyrir valinu varð Rock In Rio 2019 þar sem þeir seldu upp alla 90þús miðana á innan við tveimur klukkutímum.

Gæsahúðin kemur strax í upphafi þegar intro-ið byrjar, hreyflarnir á Spitfire vélinni fara í gang og þrumuræða Winston Churchill fer í loftið enda fjallar lagið um sjónarhorn flugmanns í orustunni um Bretland í seinni heimstyrjöldinni

Fleiri orð eru óþörf, njótið og spilist HÁTT!

Ég skora á Snorra fyrir næsta föstudag!

UP THE IRONS

Sigurður Ingi ávarpaði þing Alþjóðaflugmálastofnunarinnar

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, Jón Gunnar Jónsson forstjóri Samgöngustofu, Sigurbergur Björnsson sendiráðunautur og Hlynur Guðjónsson sendiherra Íslands í Kanada
Sigurður Ingi og Jón Gunnar á þingi Alþjóðaflugmálastofnunarinnar í gær

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, ávarpaði þing Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) í Montréal í gær. Ráðherra gerði að umfjöllunarefni sínu mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu á vettvangi stofnunarinnar, umhverfismál og mikilvægi alþjóðaflugs fyrir Ísland. Tilefni ávarps ráðherra er framboð Íslands til setu í aðalráði ICAO, en kosning fer fram næstkomandi laugardag. Alls 193 þjóðir eiga aðild að ICAO.

Framboð Íslands er undir merkjum NORDICAO, samstarfs Norðurlandanna, Eistlands og Lettlands hjá Alþjóðaflugmálastofnuninni til áratuga. Samvinnan felur m.a. í sér að ríkin skiptast á að sinna aðal- og varafulltrúastöðum í aðalráði stofnunarinnar. Undanfarin þrjú ár hefur Ísland átt varafulltrúa í ráðinu. Hljóti Ísland kosningu á laugardaginn mun íslenski fulltrúinn taka við stöðu aðalfulltrúa af Finnlandi, til næstu þriggja ára.

Sigurður Ingi ávarpar þing Alþjóðaflugmálastofnunarinnar - mynd
Sigurður Ingi ávarpar þingið í gær

Ráðherra gerði einnig að umfjöllunarefni sínu ýmis aðkallandi málefni þingsins. Má þar nefna umhverfismál tengd flugi og fyrirætlanir ríkja um að draga úr losun, vaxandi áherslu á netöryggi og gildi samvinnu og samhæfingar þjóða heimsins í þágu endurreisnar almannaflugs eftir heimsfaraldur.

Ísland hefur verið aðildarríki að Alþjóðaflugmálastofnuninni ICAO frá stofnun hennar árið 1944. Auk ráðherra eru þátttakendur Íslands á þinginu fulltrúar frá innviðaráðuneytinu og Samgöngustofu.

Sendinefnd Íslands
Á myndinni sjást m.a. Sigurður Ingi, Jón Gunnar, Kristín Helga og Valdís

Sjá frétt á vef innviðaráðuneytisins

Drög að frumvarpi um smáfarartæki í samráðsgátt


Drög að frumvarpi um breytingar á umferðarlögum hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila umsögn er til og með 6. október 2022. Þetta kemur fram í frétt á vef innviðaráðuneytisins.

Í frumvarpsdrögunum eru ýmis ný ákvæði sem hafa það markmið að auka öryggi vegfarenda á smáfarartækjum í umferðinni en nýta jafnframt kosti þeirra. Breytingarnar byggja á tillögum starfshóps um smáfarartæki sem skilaði skýrslu í júní sl. Helstu tillögur frumvarpsins sem varða smáfarartæki eru:

  • Mælt er fyrir um að heimilt sé að aka smáfarartæki á vegi þegar leyfilegur hámarkshraði er ekki meiri en 30 km á klst. en veghaldara sé þó heimilt að leggja bann við umferð þeirra á einstökum vegum eða vegarköflum.
  • Börnum yngri en 13 ára er bannað að aka smáfarartækjum og kveðið er á um hjálmaskyldu barna yngri en 16 ára við akstur slíkra farartækja.
  • Sett er hlutlægt viðmið um ölvun ökumanns smáfarartækis sem fela í sér sömu mörk og eiga við akstur vélknúinna ökutækja og jafnframt um viðurlög við slíkum brotum.
  • Mælt er fyrir um að óheimilt sé að eiga við rafmagnsreiðhjól, smáfarartæki eða létt bifhjól í flokki I svo að hámarkshraði þeirra verði umfram 25 km á klst. Sama á við um létt bifhjól í flokki II að undanskildu því að hámarkshraði þeirra má vera 45 km á klst.

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, sagði frá áformunum á Umferðarþingi 2022 á föstudaginn en eitt meginviðfangsefni þingsins var öryggi óvarinna vegfarenda í umferðinni: „Með því að ferðast stuttar vegalengdir gangandi, hjólandi eða með strætó drögum við úr losun gróðurhúsaloftegunda, stuðlum að betri loftgæðum í þéttbýli og vinnum að bættri lýðheilsu. Það stafa þó ýmsar hættur að óvörðum vegfarendum. Því er nauðsynlegt að gera breytingar á regluverki umferðar til að auka öryggi þeirra sem nýta þennan fararmáta, m.a. á smáfarartækjum,“ sagði ráðherra.

Tillögur starfshóps um smáfarartæki voru einnig kynntar sérstaklega á Umferðarþingi í erindi Jónasar Birgis Jónasson, sérfræðings í innviðaráðuneytinu.

Slysum vegna smáfarartækja fjölgað mikið
Í kynningu um frumvarpið í samráðsgátt segir að umferð smáfarartækja, sérstaklega rafhlaupahjóla, hafi aukist og slysum hafi fjölgað mikið á síðustu árum. Breytingar á umferðarvenjum hafa leitt til þess að 17% þeirra sem slösuðust alvarlega í umferðinni á síðastliðnu ári voru á rafhlaupahjólum, en umferð þeirra er þó innan við 1% af allri umferð. 42% alvarlega slasaðra í umferðinni á síðasta ári voru gangandi, hjólandi eða á rafhlaupahjóli og stór hluti fyrrgreindra slysa átti sér stað seint á föstudögum eða laugardögum.

Í hópi óvarinna vegfarenda sem slösuðust alvarlega í umferðinni á síðastliðnu ári voru ungmenni áberandi og komu mörg ung börn, allt niður í átta ára gömul á neyðarmóttöku Landsspítalans vegna slysa á rafhlaupahjólum. Framleiðendur mæla almennt fyrir um 14 til 16 ára aldurstakmark til notkunar rafhlaupahjóla sinna en ung börn má sjá á rafhlaupahjólum ætluðum eldri notendum. Þá er með einfaldri breytingu hægt að aka aflmiklum rafhlaupahjólum á mun meiri hraða en þeim er ætlað að ná, svo að þau eiga til dæmis enga samleið með umferð gangandi vegfarenda.

Skoða nánar í samráðsgátt stjórnvalda

Heima er pest

Töluvert er af veikindum þessa dagana og minnum við fólk á að halda sig heima þegar það er lasið.

Heilsugæslan hefur nýlega hleypt af stokkunum auglýsingaherferðinni „Heima er pest“, tilgangur herferðarinnar er að vekja athygli á þekkingarvefnum Heilsuveru og auka heilsulæsi landsmanna sem og draga úr álagi á heilsugæslustöðvar.

Á Heilsuveru er hægt að endurnýja lyf, eiga samskipti við heilbrigðisstarfsfólk auk þess sem þar er hægt að afla sér upplýsinga um helstu umgangspestir og upplýsingar um hvort og hvenær rétt er að leita til heilsugæslu eða bráðamóttöku.

Hér má t.d. lesa um kvef inná Heilsuveru:
https://www.heilsuvera.is/markhopar/sjukdomar-fravik-einkenni/kvef/

Samstarfsverkefni EASA og Samgöngustofu

Þær Rut Hreinsdóttir fjármálastjóri og Edda Björk fóru á vinnustofu EASA í Köln dagana 10.-12 september. Á henni voru þátttakendur víðsvegar úr Evrópu og starfsmenn EASA (um 60 manns) og var m.a. fjallað um verkferla og fyrirkomulag samstarfsins.

Samgöngustofa gerði í byrjun árs samkomulag við EASA um vinnu við eftirlit á viðhaldsfyrirtækjum loftfara víðs vegar um heiminn. Verkefnið er unnið af lofthæfideild Samgöngustofu sem Ómar Þór Edvardsson stýrir. EASA leitaði til Samgöngustofu með aðkomu íslenskra sérfræðinga í byrjun árs en við það að Bretland fór úr Evrópusambandinu jókst umsýsla EASA til muna þar sem u.þ.b 500 ný fyrirtæki bættust við í umfang EASA.

Samið var um að Samgöngustofu myndi taka að sér að vinna 240 klukkustundir á árinu 2022 og hafa nú þegar verið farnar fjórar ferðir á vegum EASA hjá sérfræðingum lofthæfideildar. Verkefnið hefur farið vel af stað og er þetta mjög gott tækifæri fyrir starfsfólk Samgöngustofu að kynnast nýjum aðstæðum og sérfræðingum á erlendri grundu.

Á dögunum var haldinn fundur hjá EASA í Köln þar sem voru samankomnir starfsmenn eftirlitsstofnana víðs vegar að, að ræða fjármálahluta verkefnisins. Á fundinn mættu Rut og Edda frá Samgöngustofu og kynntu þær fyrir þátttakendum hvernig það er að vera nýliði á þessum vettvangi. Við getum verið stolt af aðkomu okkar að þessu alþjóðlega verkefni sem gerir störf okkar fjölbreyttari og skemmtilegri.




Föstudagslagið í boði Sveins

Það er hann Sveinn Ólafsson sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt skrifar Sveinn:

Ég hlusta á alls kyns tónlist en er langt frá því að vera alæta. Undanfarið hefur Radio 6 hjá BBC verið í sérstöku uppáhaldi, enda með kynna á borð við Iggy Pop, Huey Morgan og Lauren Laverne. Ég hlusta á það í BBC Sounds appinu (hér í app store). Þar er hægt að stilla á Radio 3 til að hlusta á klassíkina eða Radio 1 Relax til að róa sig. Allar stöðvarnar eru bara með tónlist, örfá fréttainnslög og engar auglýsingar.

Föstudagar eru öðruvísi. Þá er maður farinn að hlakka til helgarinnar og er líklega kominn hálfa leið eða lengra í huganum. Þá er tími til að hlusta á eitthvað einfalt, gamaldags, hallærislegt sem sendir mann hinn helminginn af leiðinni í helgarfrí. Föstudagslagið er af þeirri gerðinni. Það kom fyrst fram fyrir 70 árum, hét Pretend og var sungið af Nat King Cole. Tíu árum seinna var það farið að heyrast í mun hraðari rokkútsetningum, til dæmis með Gerry and The Pacemakers. Það er líklega fyrirmyndin að íslensku útgáfunni. Silkimjúk rödd Nat King Cole hafði vikið fyrir vaggi og veltu.

Margir í húsinu kannast við höfund íslenska textans, sem er Ómar Ragnarsson. Í hans útgáfu fær lagið heitið Því ekki að taka lífið létt. Það er enginn að látast neitt í þeim texta heldur að njóta þess sem lífið býður upp á. Lúdó og Stefán eru eldhressir, slá ekkert af rokkinu og skila þessu ákalli á rúmum 2 mínútum.

Ég skora á Gunnar Karl að velja næsta föstudagslag.

Hópeflið í dag

Team Building vs Team Bonding: What's the Difference? - Team Music SG

Hópeflið hefst kl. 15:00 í dag og ætlum við að hittast öll í afgreiðslunni til að byrja með. Starfsfólki hefur verið skipt upp í tvo hópa, annar hópurinn verður áfram í afgreiðslunni en hópur 2 fer upp á aðra hæð. Skiptingin er miðuð við svörun við fundarboðinu sem sent var út. Ef þið eruð ekki á listanum þá megið þið endilega senda á Ólöfu og hún bætur ykkur við listann.

Hópaskiptingin:





































Þórhildur í Reykjavík Síðdegis

Þórhildur Elín var til útvarps í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í gær. Umræðuefnið var rafhlaupahjól og umræða sem spratt upp eftir að Kjartan Magnússon borgarfulltrúi vakti athygli á hraðakstur á göngustígum á höfuðborgarsvæðinu.

Eins og áður kemur fram verður Umferðarþing haldið á morgun og er einmitt áherslan að þessu sinni á gangandi og hjólandi, bæði á reiðhjólum og hinum ýmsu smátækjum (þar á meðal rafhlaupahjólum) og samspil þeirra við aðra umferð.

Bíllausi dagurinn er í dag -þekkið þið manninn?

Í dag, 22. september, er bíllausi dagurinn og af því tilefni er frítt í strætó á höfuðborgarsvæðinu. Rafskútleigur eru einnig með tilboð á bíllausa deginum hjá HOPP fellur startgjaldið niður og ZOLO eru fyrstu 20 mínúturnar ókeypis. Bíllausi dagurinn er hluti af af árlegri evrópskri samgönguviku. Dagurinn er kjörinn til að endurskoða ferðavenjur til og frá vinnu og skóla. Þau sem hvíla bílinn eru líklegri til að hreyfa sig meira og almenn hreyfing minnkar líkur á hjartasjúkdómum og sykursýki, styrkir ónæmiskerfið og fækkar veikindadögum.

Tveir starfsmenn Samgöngustofu tóku sig til og hjóluðu í vinnuna af þessu tilefni. Á myndbandinu hér að neðan sést annar þeirra kátur og glaður. Hver er maðurinn? Sá sem sendir fyrstur/fyrst póst á vefur@samgongustofa.is fær lítinn glaðning að launum:





Fjölmiðlavaktin

Gunnar Geir var í viðtali í Morgunútvarpi Rásar tvö í morgun (mínúta 0:49:39) og var tilefnið þáttur Kveiks frá því gær þar sem fjallað var um sorglegt umferðarslys sem varð á brúnni við Núpsvötn árið 2018.

Forvarnarveggspjald 9 í röð 12 hnúta.

Í gær var svo viðtal við Einar Magnús í Morgunblaðinu um nýjasta forvarnarspjald sem gefið er út undir merkjum 12 hnúta og ætlað sjófarendum. Þar kemur m.a. fram að það má rekja um 43 skipsströnd við landið á tímabilinu 2000 til 2020 til þess að stjórnandi sofnaði.

Fyrir helgi var svo umfjöllun um undirskrift um aðlögunarsamning Íslands og Eurocontrol í Morgunblaðinu en samningurinn var undirritaður af Jóni Gunnari og Eamonn Brennan, forstjóra Eurocontrol. Samkvæmt skilmálum samningsins á Ísland sæti áheyrnarfulltrúa og getur tekið þátt í verkefnum og starfsemi Eurocontrol að sama marki og aðildarríki.




Heimsókn umhverfis- og samgöngunefndar


Í morgun kom umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis í heimsókn. Á fundinum kynnti Jón Gunnar stefnu og starfsemi stofnunarinnar og sagði frá ýmsum umbótaverkefnum sem hér eru í gangi. Fulltrúar nefndarinnar, þingmenn úr öllum flokkum, voru áhugasamir og spurðu margra spurninga. Leiddu þær til gagnlegra umræðna um þau fjölbreyttu verkefni sem hér er sinnt í þágu samfélagsins. Heimsóknin hingað var sú fyrsta í fundaröð nefndarinnar með stofnunum á málasviði hennar á þessu hausti.




Verkfærakistan – bókasafnið

Cartoon Library Images – Browse 49,917 Stock Photos, Vectors, and Video |  Adobe Stock

Hér á innri vefnum er yfirflokkur sem við nefnum Verkfærakistan. Þar kennir ýmissa grasa, t.d. er þar að finna Bóksafnssíðu:

Verkfærakistan => Bóksafn

Á þeirri síðu eru ýmsar gagnlegar upplýsingar eins og:

  • Tengill á bókasafnskerfi Samgöngustofu þar sem hægt er að nálgast yfirlit yfir þær bækur sem stofnunin á.
  • Yfirlit yfir þau tímarit og gagnagrunnum sem stofnunum er áskrifandi að og aðgangsorð að þeim. Dæmi: Snara, Morgunblaðið, Lögbirtingablaðið og IMDG og SOLAS.
  • Tengingar á ýmsar síður og hjálpargögn varðandi íslenskt mál svo sem Málfarsbanka Íslenskrar málstöðvar, Orðabanka Íslenskrar málstöðvar, skrá yfir íðorðasöfn o.sfrv.
  • Tengingar á orðasöfn í dönsku og ensku t.d. hugtakasafn um siglingamál.
  • Upplýsingar um landsaðganginn Hvar.is en þar höfum við Íslendingar aðgang að yfir 20.000 tímaritum og yfir 10.000 rafbókum hvar sem við erum staðsett á landinu. Samgöngustofa borgar ásamt fjölda annarra stofnana fyrir þennan landsaðgang. 

Kynnið ykkur endilega bókasafnssíðuna sem er í umsjón starfsfólks skjalastjórnunnar.




Úttekt EASA á SYS

Hópurinn fyrir framan anddyrið í morgun, starfsfólk Samgöngustofu og eftirlitsfólkið frá EASA

Eins og þið hafið kannski tekið eftir þá hefur úttekt staðið yfir hér í Ármúlanum í vikunni. Eftirlitsmenn á vegum EASA hafa verið að taka út SYS (Systemic enablers for Aviation Safety), sem er kerfisbundin öryggisstjórnun í flugi. Úttektin fól m.a. í sér víðtæka skoðun á frammistöðu okkar gagnvart t.d. mönnun, þjálfun, tilkynningaskyldu og innri úttektum. Úttektinni lau formlega í dag og var myndin tekinn eftir lokafundinn.




Dagur íslenskrar náttúru

Brúarfoss

Í dag er dagur íslenskrar náttúru en hann er haldinn 16. september ár hvert. Einstaklingar, skólar, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök hvött til að hafa daginn í huga í starfsemi sinni. Þeir sem nýta sér samfélagsmiðla í tengslum við daginn eru minntir á myllumerkin #íslensknáttúra og #DÍN.

Tilvalið að fara eftir vinnu í stuttan göngutúr og njóta þeirrar frábæru náttúru sem er hér í nokkurra mínútna fjarlægð við höfuðborgarsvæðið. Fyrir þau ykkar sem drífið ekki út er tilvalið að lesa sér aðeins til um náttúru Ísland og má þá benda á frábæran Fuglavef þar sem hægt er að afla sér upplýsinga um alla fugla landsins, hlusta á hvernig hljóð þeir gefa frá sér, hvar þeir verpa o.sfrv. Einnig má benda á ýmislegt efni á vef RÚV um náttúru Íslands eins og Fjársjóð framtíðar, þættina Náttúran mín og Hvað getum við gert?

Föstudagslagið í boði Díönu

Why working nine to five is no longer a way to make a living | Work &  careers | The Guardian

Föstudagslagið þessa vikuna er í boði Díönu. Um val sitt segir hún:

Ég vel lagið 9 to 5 með Dolly Parton.

Þrátt fyrir styttri vinnuviku þá er þetta lag vel við hæfi. Haustið skollið á með yndislegu veðri og tilheyrandi rútínu. Lagið er ekki síður skemmtilegt fyrir þá sem eru lagvísir í karaoke.

Ég skora á Svein Ólafsson fyrir næsta föstudag.

Góða helgi 🙂



Undirskrift aðlögunarsamnings Íslands að EUROCONTROL

Hópurinn fyrir framan Samgöngustofu í morgun. Jón Gunnar og Eamonn fyrir miðju. Auk þeirra eru á myndinni fulltrúar Eurocontrol, Samgöngustofu, innviðaráðuneytisins og Isavia.

Samningur var undirritaður í morgun af Jóni Gunnari Jónssyni, forstjóra Samgöngustofu og Eamonn Brennan, forstjóra Eurocontol hér í Samgöngustofu. Samkvæmt skilmálum hans á Ísland sæti áheyrnarfulltrúa og getur tekið þátt í verkefnum og starfsemi Eurocontrol að sama marki og aðildarríki.

Eurocontrol er evrópsk milliríkjastofnun sem hefur allt frá stofnun árið 1960 haft markmið um stuðning við flug og flugleiðsögu í Evrópu. Ef frá eru talin fáein smáríki sem ekki sinna verkefnum sem tengjast loftrýminu er Ísland nú eina Evrópulandið utan aðildar en mun frá 1. janúar 2025 verða 42. aðildarríkið. Viðræður um hugsanlega aðild hafa staðið yfir um árabil en aðlögunarsamningurinn nú var undirritaður að fenginni heimild innviðaráðuneytisins.

Sjá einnig frétt á vef EUROCONTROL

Helsti ávinningur aðildar er full þátttaka í miðlægri flæðisstjórnun flugumferðar fyrir samevrópska loftrýmið og samræmdri krísustjórnun vegna t.d. eldgosa og heimsfaraldra. Henni fylgir einnig aðgangur að kerfum, gagnabönkum, greiningarvinnu, tæknilausnum, þjálfun og stuðningi við ýmsa þætti flugmála sem snúa að rekstrarstjórnun flugumferðar, rekstri flugvalla, skilvirkni, öryggi og netvernd svo nokkuð sé nefnt.

Frá undirskrift samningsins í morgun: Eamonn Brennan forstjóri Eurocontrol til vinstri og Jón Gunnar Jónsson forstjóri Samgöngustofu til hægri.  

Við undirritun samningsins sagði Jón Gunnar: „Eftir jákvætt samstarf við Eurocontol á undanförnum árum hefur með undirskrift samningsins verið stigið mikilvægt skref. Vegna landfræðilegrar legu Íslands eru flug og flugleiðsaga einstaklega mikilvæg til grundvallar efnahags og velmegunar þjóðarinnar. Samvinna þjóða á jafningjagrunni stuðlar að uppbyggingu og viðhaldi innviða á sviði flugmála. Með undirritun samningsins hafa stjórnvöld nú staðfest þá fyrirætlun að Ísland gerist fullgildur aðili að Eurocontol.“

Eamonn Brennan sagði: „Ég er ánægður með að undirritun þessa samning sem er mikilvægt skref í átt að samþættingu Íslands sem 42. aðildarríkis Eurocontrol 1. janúar 2025. Við höfum unnið náið með Íslandi í mörg ár og fögnum ákvörðun þeirra um að ganga í Eurocontrol og taka á sig öll réttindi og skyldur aðildarríkja okkar. Ísland er vaxandi áfangastaður í Evrópu – með yfir 150 flug daglega að meðaltali nú í sumar – þannig að frekari samþætting þeirra inn í evrópska netið mun nýtast bæði í rekstrarlegum og stefnumótandi tilgangi.“




Norðurlandafundur um siglingavernd – NMS 2022

Hópurinn fyrir utan innganginn í dag áður en haldið var í vettvangsferðina

Norðurlandafundur um siglingavernd (NMS 2022) er haldinn á vegum Samgöngustofu þessa dagana (13. – 15. september.). Í morgun var fundað í matsal Samgöngustofu en svo var haldið í vettvangsferð eftir hádegi og Faxaflóahafnir skoðaðar.

Þátttakendur eru frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Færeyjum auk Íslands en um er ræða fulltrúa þeirra stofnana sem fara með siglingaverndarmál fyrir hönd viðkomandi ríkja, alls 18 manns.

Þeir félagar Stefán Alfreðsson og Júlíus Einarsson halda utan um skipulagið fyrir okkar hönd.






Stolt siglir fleyið mitt

– öryggi og grænar lausnir í siglingum
May be an image of text that says 'IMO EVENTS IMO NEW TECHNOLOGIES FOR GREENER SHIPPING'

Alþjóðasiglingadagurinn er í ár helgaður öryggi og grænum lausnum í siglingum. Af því tilefni verður ráðstefna haldin fimmtudaginn 29. september undir yfirskriftinni Stolt siglir fleyið mitt á Grand hótel í Reykjavík frá kl. 13-16. Ráðstefnan er haldin af Innviðaráðuneyti og Siglingaráði í samstarfi við Samgöngustofu, Grænu orkuna.

Skráning á ráðstefnuna

Markmið ráðstefnunnar er að kynna nýsköpun og nýjar lausnir í sjósókn og siglingum sem draga úr umhverfisáhrifum og/eða auka öryggi sjófarenda, þ.m.t. orkuskipti, bætta orkunýtingu og siglingaöryggi. Fjölmörg fyrirtæki munu halda fyrirlestra um lausnir sínar og framtíðarsýn.

Öll eru velkomin á ráðstefnuna en skráning fer fram á vef Samgöngustofu. Fundarstjóri er Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur í umhverfismálum hjá Samtökum i sjávarútvegi.

Dagskrá:

· Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku-, og loftslagsmálaráðherra, setur ráðstefnuna.

· Leiðin til orkuskipta.

Kristina Storegjerde Skogen, Ocean Hyway Cluster, Noregi.

· Kolefnisfríar fiskveiðar – Raunhæft markmið, hvernig og hvenær?

Hallmar Halldórs, Clara Arctic Energy.

· Ankeri – Gögn til gagns: Að finna hentugustu skipin fyrir alþjóðleg flutningaskipafyrirtæki.

Kristinn Aspelund, framkvæmdastjóri & einn stofnenda Ankeri Solutions.

· Grænna varaafl í öruggum skrefum.

Linda Fanney Valgarðsdóttir, framkvæmdastýra Alor ehf.

· Sidewind vindmyllugámar.

Óskar Svavarsson og María Kristín Þrastardóttir, stofnendur Sidewind ehf.

· Kaffihlé

· Ljósvarpan.

Torfi Þórhallsson, Optitog ehf.

· Umhverfisvænni veiðarfæri.

Einar Skaftason veiðarfærahönnuður hjá Hampiðjunni

· Leiðbeinandi siglingakerfi fyrir aukið öryggi og grænni siglingar.

Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri Hefring Marine

· Strandvari, fyrir öryggi og umhverfið.

Þórarinn Heiðar Harðarson, framkvæmdastjóri Strandsýn ehf.

· Straumhvörf á sjó – rafvæðing minni farþegabáta

Árni Sigurbjarnarson og Oddvar Haukur Árnason, Brim Explorer / Ocean e-Connect

· Framtíðin, umræður, samantekt og ráðstefnuslit.

Ásta Þorleifsdóttir, varaformaður fagráðs um siglingamál

Umferðarþing 2022

Umferðarþing verður haldið í lok evrópsku samgönguvikunnar, þann 23. september, og ber í ár yfirskriftina „Virkar samgöngur – betri hreyfing“. Áhersla þingsins í ár verður á virka vegfarendur – innan og utan akbrauta. Er þá helst átt við gangandi og hjólandi, bæði á reiðhjólum og hinum ýmsu smátækjum (þar á meðal rafhlaupahjólum) og samspil þeirra við aðra umferð.

UMFERDARThING.SkraningB.2022


Ítarlega dagskrá má nálgast hér

Ut22-dagskra_1661258011910

Föstudagslagið í boði Gunnars Geirs


Meat Loaf On Stage

Eftir sumarhlé er nú kominn tími á að halda áfram með Föstudagslagið. Fyrir sumarfrí skoraði Egill á Gunnar Geir að velja föstudagslagið að hausti. Um val sitt segir Gunnar:

Lagið sem ég valdi er Paradise by the dashboard light með Meatloaf ásamt Ellen Foley. Lagið er úr smiðju snillingsins Jim Steinman sem samdi öll lögin á plötunni sem lagið kom út á, Bat out of hell. Auk þess samdi Steinman lög fyrir fleiri tónlistarmenn, m.a. Total eclipse of the heart með Bonnie Tyler.

Lagið er einstaklega gott klassískt rokklag og fjallar um… tja, það er best að hlusta bara á textann. Lagið er óvenjulangt, skemmtilega kaflaskipt og er einmitt hluti af laginu hafnaboltalýsing en hafnir í hafnabolta er þekkt myndlíking meðal bandarískra unglinga. Að auki er einstaklega skemmtilegt að syngja lagið í karaoke 🙂

Að lokum skora ég á Díönu að gleðja okkur með föstudagslagi í næstu viku.