
Sveinn skoraði á Gunnar Karl fyrir þessa viku og tók Gunnar að sjálfsögðu vel í áskorunina. Um val sitt segir Gunnar:
Þegar Sveinn skoraði á mig þá kom aldrei annað til greina en að velja lag með minni uppáhalds hljómsveit og bestu hljómsveit í heimi klárlega Iron Maiden. Valið var hins vegar ekki auðvelt en ég ákvað á endanum að velja eitt af þeirra allra bestu lögum Aces High enda mikið keyrslulag sem kikkstartar klárlega helginni hjá mér. Annars er sextettinn í Maiden miklir íslandsvinir og hafa spilað hérna á klakanum tvisvar á tónleikum árið 1992 í Laugardalshöll og 2005 í Egilshöll.
Þess ber þá hæst að geta söngvarans Bruce Dickinson sem var flugmaður hjá Iceland Express í nokkur ár upp úr aldamótum þegar hann var ekki að þenja raddböndin á tónleikum. Hápunktinum var síðan náð þegar þeir leigðu Boeing 747-400 jumbo þotu af Air Atlanta (Ed Force One) fyrir Book Of Souls heimsreisuna 2016 þar sem Bruce var að fljúga vélinni og áhöfnin var íslensk.
Hægt er að skoða mjög skemmtilegt innslag um reisuna á YouTube en til að gefa ykkur smá tölfræði þá tók túrinn 5 mánuði, 6 heimsálfur, 45 borgir, 123.000 km flognir og lengsta flugið var frá Perth til Cape Town, 11 tímar og 24 min:
Ég sá þá á tónleikum í tveimur af þessum borgum (Munchen og Berlin) og var að vonast til að sjá vélina á flugvellinum þegar ég var að lenda þar en án árangurs!
Þegar þeir skiluðu vélinni aftur til Íslands eftir túrinn í júní 2016 þá flaug hún eitt flug í viðbót merkt og innréttuð Iron Maiden til Marseille í Frakklandi með 350 íslendinga á vegum Air Atlanta til að sjá Ísland – Ungverjaland á EM. Þó ég hafi ekki verið það heppinn að vera í því flugi þá sá ég loksins vélina á flugvellinum í Marseille því ég var sjálfur að fara á leikinn og var það stór stund.
Þar sem Maiden er eitt besta tónleikaband í heimi enda hef ég séð þá 23 sinnum á tónleikum (nú síðast í sumar í Barcelona og Lissabon) þá varð ég klárlega að velja live útgáfu af laginu.
Fyrir valinu varð Rock In Rio 2019 þar sem þeir seldu upp alla 90þús miðana á innan við tveimur klukkutímum.
Gæsahúðin kemur strax í upphafi þegar intro-ið byrjar, hreyflarnir á Spitfire vélinni fara í gang og þrumuræða Winston Churchill fer í loftið enda fjallar lagið um sjónarhorn flugmanns í orustunni um Bretland í seinni heimstyrjöldinni
Fleiri orð eru óþörf, njótið og spilist HÁTT!
Ég skora á Snorra fyrir næsta föstudag!
UP THE IRONS