
Eftir sumarhlé er nú kominn tími á að halda áfram með Föstudagslagið. Fyrir sumarfrí skoraði Egill á Gunnar Geir að velja föstudagslagið að hausti. Um val sitt segir Gunnar:
Lagið sem ég valdi er Paradise by the dashboard light með Meatloaf ásamt Ellen Foley. Lagið er úr smiðju snillingsins Jim Steinman sem samdi öll lögin á plötunni sem lagið kom út á, Bat out of hell. Auk þess samdi Steinman lög fyrir fleiri tónlistarmenn, m.a. Total eclipse of the heart með Bonnie Tyler.
Lagið er einstaklega gott klassískt rokklag og fjallar um… tja, það er best að hlusta bara á textann. Lagið er óvenjulangt, skemmtilega kaflaskipt og er einmitt hluti af laginu hafnaboltalýsing en hafnir í hafnabolta er þekkt myndlíking meðal bandarískra unglinga. Að auki er einstaklega skemmtilegt að syngja lagið í karaoke 🙂
Að lokum skora ég á Díönu að gleðja okkur með föstudagslagi í næstu viku.