
Það er hann Sveinn Ólafsson sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt skrifar Sveinn:
Ég hlusta á alls kyns tónlist en er langt frá því að vera alæta. Undanfarið hefur Radio 6 hjá BBC verið í sérstöku uppáhaldi, enda með kynna á borð við Iggy Pop, Huey Morgan og Lauren Laverne. Ég hlusta á það í BBC Sounds appinu (hér í app store). Þar er hægt að stilla á Radio 3 til að hlusta á klassíkina eða Radio 1 Relax til að róa sig. Allar stöðvarnar eru bara með tónlist, örfá fréttainnslög og engar auglýsingar.
Föstudagar eru öðruvísi. Þá er maður farinn að hlakka til helgarinnar og er líklega kominn hálfa leið eða lengra í huganum. Þá er tími til að hlusta á eitthvað einfalt, gamaldags, hallærislegt sem sendir mann hinn helminginn af leiðinni í helgarfrí. Föstudagslagið er af þeirri gerðinni. Það kom fyrst fram fyrir 70 árum, hét Pretend og var sungið af Nat King Cole. Tíu árum seinna var það farið að heyrast í mun hraðari rokkútsetningum, til dæmis með Gerry and The Pacemakers. Það er líklega fyrirmyndin að íslensku útgáfunni. Silkimjúk rödd Nat King Cole hafði vikið fyrir vaggi og veltu.
Margir í húsinu kannast við höfund íslenska textans, sem er Ómar Ragnarsson. Í hans útgáfu fær lagið heitið Því ekki að taka lífið létt. Það er enginn að látast neitt í þeim texta heldur að njóta þess sem lífið býður upp á. Lúdó og Stefán eru eldhressir, slá ekkert af rokkinu og skila þessu ákalli á rúmum 2 mínútum.
Ég skora á Gunnar Karl að velja næsta föstudagslag.