Fréttir af ráðningarmálum

Mikið er að gerast í ráðningum þessa dagana hjá Samgöngustofu. Hér fyrir neðan má sjá ráðningar sem búið er að ganga frá. Hlökkum til að taka á móti öllu þessu fólki.

Árni Elvar Emilsson var ráðinn sem skipaeftirlitsmaður og hefur nú þegar hafið störf. Árni Elvar er vélfræðingur frá Vélskóla Íslands. Hann starfaði hjá Viking Life á árunum 2018 – 2024 við skoðun á björgunarbúnaði fyrir skip. Þá starfaði hann á árunum 2015-2018 hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar við stálsmíði og viðhald skipa/vinnuvéla.

Dagný Björnsdóttir var ráðin sem fulltrúi í skráningar- og þjónustudeild. Hún mun hefja störf 1. ágúst nk. Dagný er með meistaranám í Hársnyrtiiðn og starfaði sem hársnyrtir á árunum 2005 – 2017. Frá árinu 2017 hefur hún starfað sem sölufulltrúi og vörustjóri hjá Gullskógum ehf.

Guðrún Birna Jóhannsdóttir var ráðin sem sérfræðingur í deild stjórnunarkerfa og alþjóðamála og mun hefja störf 12. ágúst nk. Guðrún Birna er með BA í mannfræði frá Háskóla Íslands og MA í þróunarfræði frá sama skóla. Auk þess er hún með diplóma í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Guðrún Birna starfaði síðast sem gæða- og ferlasérfræðingur hjá Embætti Ríkislögreglustjóra, þá hefur hún einnig reynslu sem gæðastjóri, teymisstjóri og verkefnastjóri hjá Menntamálastofnun.

Gyða Marín Bjarnadóttir var ráðin sem sérfræðingur í mannauðs- og launamálum og mun hefja störf 1. september nk. Gyða Marín er með BS gráðu í ráðgjöf og starfsþróun frá Norges teknisk-naturvidensk universitet og MA gráðu í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Undanfarin fimm ár hefur Gyða Marín starfað sem mannauðsfulltrúi hjá Þjóðkirkjunni.

Sólveig Nielsen var ráðin sem sérfræðingur í gæðamálum með áherslu á siglingar og mun hefja störf 1. október nk. Sólveig er með BA í sagnfræði frá Háskóla Íslands og stundar nú nám í verkefnastjórnun frá sama skóla. Frá árinu 2011 hefur Sólveig starfað hjá Háskóla Íslands sem verkefnastjóri á styrktarskrifstofu Vísinda- og nýsköpunarsviðs.

Hilmar Þór Pétursson var ráðinn sérfræðingur í skipatæknideild og mun hefja störf 1. október nk. Hilmar Þór er með BS í rafmagnstæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík og MSc gráðu í Entrepreneurship and Innovation Management frá KTH Royal Institute of Technology í Svíþjóð. Hilmar Þór hefur starfað frá mars 2023 sem rafmagnstæknifræðingur og verkefnastjóri hjá inContext / Scania í Svíþjóð. Auk þess hefur hann starfað hjá Össur sem Production Engineer og Bionics Technician og hjá Háskólanum í Reykjavík sem aðstoðarkennari.

Lárus Long var ráðinn sem deildarstjóri upplýsingatæknideildar. Lárus tók við starfi deildarstjóra í ágúst 2022 og var þá með tímabundna ráðningu hjá stofnuninni. Staðan var auglýst í maí sl. og sóttu sex um stöðuna. Að loknum viðtölum var það samhljóma mat þeirra sem komu að ráðningunni að Lárus félli best að hæfnikröfum starfsins.

Ertu á leið í sumarfrí?

Mundu að skrá orlofið í Vinnustund og stilla á sjálfvirka svörun í tölvupóstinum áður en farið er í fríið.

Góð ráð:

  • Ef þú skráir sumarfríið í Vinnustund þarftu ekki að lagfæra orlofsdagana í lok tímabilsins
  • Mundu að stilla Out of office í dagatalinu í Outlook
  • Taktu fram í sjálfvirka svarinu hvenær þú kemur til baka

Hafðu það sem allra best í sumarfríiinu!


Tökum inngildingarpúlsinn

Samgöngustofa mun í haust hefja að mæla inngildinu (e. inclusion) á vinnustaðnum í samstarfi við íslenskt tæknifyrirtæki sem heitir Alda.

Alda hefur þróað hugbúnað sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að mæla upplifun starfsfólks á vinnustaðamenningu og hversu inngildandi vinnustaðurinn er fyrir ólíka hópa. Úr könnuninni munum við fá okkar inngildingarskor sem gefur til kynna hversu inngildandi vinnustaðurinn okkar er og hvar við stöndum samanborið við önnur íslensk fyrirtæki. Niðurstöður gefa góða mynd af inngildingu á íslenskum vinnumarkaði og verður inngildingarvísitalan kynnt á mannauðsdeginum 4. október nk.

Þann 20. ágúst nk. verður send út örstutt könnun frá Öldu sem heitir Inngildingarpúlsinn. Könnunin er unnin af sérfræðingum hjá Öldu ásamt samstarfsaðilum þeirra frá Háskóla Íslands, Samtökunum 78 og Þroskahjálp. Frekari upplýsingar koma síðar.

Skyndibiti og ekkert föstudagskaffi

Vegna sumarleyfa í mötuneyti fellur föstudagskaffið niður núna 5. júlí. Leiðinlegt, en við lifum það af.

Af sömu ástæðu verður annar matseðill í hádeginu fimmtudag og föstudag. Þá munum við reiða okkur á ljúffengan skyndibita: Pizzur á fimmtudag og samlokur og djús frá Lemon á föstudag. Hvert og eitt greiðir fyrir sig með skráningu á skjá í matsal – eins og venjulega. Maturinn verður klár kl. 11:30 báða dagana.


Samstarf við Bylgjuna í sumar

Nú í sumar er Samgöngustofa í samstarfi við Bylgjuna og fleiri aðila um umferðaröryggisvitundarvakningu. Vefborðar með umferðaröryggisskilaboðum hafa verið birtir á visir.is og víðar og sömuleiðis hafa verið spilaðar stuttar auglýsingar á Bylgjunni þess efnis. Að auki fjallar dagskrárgerðarfólk Bylgjunnar, FM957 og X977 daglega um átakið og kemur þannig mikilvægum skilaboðum til skila í allt sumar.

Sérstakar reglur um smáfarartæki

Sérstakar reglur um smáfarartæki voru nýlega lögfestar á Alþingi og hafa þegar tekið gildi. Markmiðið er aukið umferðaröryggi. Á meðal helstu nýjunga:

  • Börn yngri en 13 ára mega ekki stýra smáfarartækjum og börn yngri en 16 ára eiga að nota hjálm við akstur þeirra.
  • Smáfarartæki skulu ekki hönnuð til hraðari aksturs en 25 km/klst. Bannað að breyta.
  • Akstur smáfarartækja í almennri umferð er leyfður á vegum þar sem hámarkshraði er 30 km/klst eða lægri – nema það sé bannað sérstaklega.
  • Refsivert verður að stjórna smáfarartæki undir áhrifum áfengis. Varðar þó ekki sviptingu ökuréttinda.

Hér má sjá nánari upplýsingar um nýju reglurnar.


11 ára í dag

Samgöngustofa á ellefu ára afmæli í dag, 1. júlí. Að því tilefni býður Bjössi upp á eitthvað extra gott í hádeginu. Maturinn í dag verður í boði Samgöngustofu.

Til hamingju með afmælið!