
Samgöngustofa mun í haust hefja að mæla inngildinu (e. inclusion) á vinnustaðnum í samstarfi við íslenskt tæknifyrirtæki sem heitir Alda.
Alda hefur þróað hugbúnað sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að mæla upplifun starfsfólks á vinnustaðamenningu og hversu inngildandi vinnustaðurinn er fyrir ólíka hópa. Úr könnuninni munum við fá okkar inngildingarskor sem gefur til kynna hversu inngildandi vinnustaðurinn okkar er og hvar við stöndum samanborið við önnur íslensk fyrirtæki. Niðurstöður gefa góða mynd af inngildingu á íslenskum vinnumarkaði og verður inngildingarvísitalan kynnt á mannauðsdeginum 4. október nk.
Þann 20. ágúst nk. verður send út örstutt könnun frá Öldu sem heitir Inngildingarpúlsinn. Könnunin er unnin af sérfræðingum hjá Öldu ásamt samstarfsaðilum þeirra frá Háskóla Íslands, Samtökunum 78 og Þroskahjálp. Frekari upplýsingar koma síðar.