Fréttir af ráðningarmálum

Mikið er að gerast í ráðningum þessa dagana hjá Samgöngustofu. Hér fyrir neðan má sjá ráðningar sem búið er að ganga frá. Hlökkum til að taka á móti öllu þessu fólki.

Árni Elvar Emilsson var ráðinn sem skipaeftirlitsmaður og hefur nú þegar hafið störf. Árni Elvar er vélfræðingur frá Vélskóla Íslands. Hann starfaði hjá Viking Life á árunum 2018 – 2024 við skoðun á björgunarbúnaði fyrir skip. Þá starfaði hann á árunum 2015-2018 hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar við stálsmíði og viðhald skipa/vinnuvéla.

Dagný Björnsdóttir var ráðin sem fulltrúi í skráningar- og þjónustudeild. Hún mun hefja störf 1. ágúst nk. Dagný er með meistaranám í Hársnyrtiiðn og starfaði sem hársnyrtir á árunum 2005 – 2017. Frá árinu 2017 hefur hún starfað sem sölufulltrúi og vörustjóri hjá Gullskógum ehf.

Guðrún Birna Jóhannsdóttir var ráðin sem sérfræðingur í deild stjórnunarkerfa og alþjóðamála og mun hefja störf 12. ágúst nk. Guðrún Birna er með BA í mannfræði frá Háskóla Íslands og MA í þróunarfræði frá sama skóla. Auk þess er hún með diplóma í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Guðrún Birna starfaði síðast sem gæða- og ferlasérfræðingur hjá Embætti Ríkislögreglustjóra, þá hefur hún einnig reynslu sem gæðastjóri, teymisstjóri og verkefnastjóri hjá Menntamálastofnun.

Gyða Marín Bjarnadóttir var ráðin sem sérfræðingur í mannauðs- og launamálum og mun hefja störf 1. september nk. Gyða Marín er með BS gráðu í ráðgjöf og starfsþróun frá Norges teknisk-naturvidensk universitet og MA gráðu í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Undanfarin fimm ár hefur Gyða Marín starfað sem mannauðsfulltrúi hjá Þjóðkirkjunni.

Sólveig Nielsen var ráðin sem sérfræðingur í gæðamálum með áherslu á siglingar og mun hefja störf 1. október nk. Sólveig er með BA í sagnfræði frá Háskóla Íslands og stundar nú nám í verkefnastjórnun frá sama skóla. Frá árinu 2011 hefur Sólveig starfað hjá Háskóla Íslands sem verkefnastjóri á styrktarskrifstofu Vísinda- og nýsköpunarsviðs.

Hilmar Þór Pétursson var ráðinn sérfræðingur í skipatæknideild og mun hefja störf 1. október nk. Hilmar Þór er með BS í rafmagnstæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík og MSc gráðu í Entrepreneurship and Innovation Management frá KTH Royal Institute of Technology í Svíþjóð. Hilmar Þór hefur starfað frá mars 2023 sem rafmagnstæknifræðingur og verkefnastjóri hjá inContext / Scania í Svíþjóð. Auk þess hefur hann starfað hjá Össur sem Production Engineer og Bionics Technician og hjá Háskólanum í Reykjavík sem aðstoðarkennari.

Lárus Long var ráðinn sem deildarstjóri upplýsingatæknideildar. Lárus tók við starfi deildarstjóra í ágúst 2022 og var þá með tímabundna ráðningu hjá stofnuninni. Staðan var auglýst í maí sl. og sóttu sex um stöðuna. Að loknum viðtölum var það samhljóma mat þeirra sem komu að ráðningunni að Lárus félli best að hæfnikröfum starfsins.