
Samgöngustofa tekur þátt í Grænum skrefum fyrir ríkisstofnanir og dregur þannig úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfseminni og eflir umhverfisvitund starfsfólks. Samgöngustofa hefur lokið öllum skrefum sem falla undir Græn skref.
Loftlagsstefna Samgöngustofu er aðgengileg bæði í CCQ sem og á ytri vef.
Loftlagsstefnu fylgir ítarlegri Aðgerðaáætlun Loftlagsstefnu
– athugasemdir óskast sendar á umhverfishopur@samgongustofa.is
Netfang umhverfishópsins er: umhverfishopur@samgongustofa.is

Umhverfishóp skipa:
Gyða Marín Bjarnadóttir
Hilmar Þór Pétursson
Nína Dís Ólafsdóttir
Sólveig Nielsen
Markmiðin með grænum skrefum eru eftirfarandi:
- Draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi ríkisins
- Efla umhverfisvitund starfsfólks
- Auka vellíðan starfsmanna og bæta starfsumhverfi þeirra
- Draga úr rekstrarkostnaði
- Innleiða áherslur í umhverfismálum sem þegar hafa verið samþykktar
- Stofnanir, ráðuneyti og annar ríkisrekstur fái viðurkenningu fyrir metnað sinn í umhverfismálum
- Stofnanir, ráðuneyti og annar ríkisrekstur geti innleitt aðgerðir á mismunandi hátt eftir umfangi og eðli starfsseminnar
- Aðgerðir stofnana í umhverfismálum séu sýnilegar
Eitt af grænu skrefunum felst í því að hvetja þátttakendur í viðburðum og fundum á okkar vegum til þess að nýta sér umhverfisvæna samgöngumáta. Það er t.d. hægt að gera með því að setja eftirfarandi texta í kynningarefni eða tölvupóstum sem sendir eru út vegna funda/viðburða:
„Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn/til okkar. Strætó stoppar á Háaleitisbraut, spölkorn frá húsnæði Samgöngustofu. Þar stansa strætisvagnar 4 og 11., einnig eru hér góðir hjólabogar og rafhleðsla fyrir bíla.“
Nokkur góð ráð
Fróðleikur og góð ráð um sjálfbæra viðburðarskipulagningu
Gátlisti um sjálfbæra viðburðarskipulagningu
Fróðleikur og góð ráð um val á gistirýmum og fundarstöðum