Á næstu vikum verða dregin út afgangs páskaegg frá páskabingóinu en til að róa samviskuna hefur stjórn Farsýslunnar ákveðið að blása til hreyfibingós. Þegar þið klárið „allt spjaldið“ skilið þið því inn til einhverra okkar í stjórn Farsýslunnar og dregið verður út föstudaginn 19. apríl nk. Hugsanlega verða einhverjir aukavinningar í bland við páskaeggin.
Mikilvægt er að framkvæma hvert verkefni í vitna viðurvist og láta einhvern kvitta á spjaldið. Einnig spillir ekki fyrir að setja inn myndir á facebook síðu Farsýslunnar.
Þetta er frábært tækifæri til að hefja hreyfivorið, fá púlsinn aðeins upp og fylla á D-vítamín birgðirnar.
