
Hér á innri vefnum er yfirflokkur sem við nefnum Verkfærakistan. Þar er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar og leiðbeiningar, t.d. er þar að finna bóksafnssíðu:
Verkfærakistan => Bóksafn
Á þeirri síðu eru ýmsar gagnlegar upplýsingar eins og:
- Tengill á bókasafnskerfi Samgöngustofu þar sem hægt er að nálgast yfirlit yfir þær bækur sem stofnunin á.
- Yfirlit yfir þau tímarit og gagnagrunnum sem stofnunum er áskrifandi að og aðgangsorð að þeim. Dæmi: Snara, Morgunblaðið, Lögbirtingablaðið og IMDG og SOLAS.
- Tengingar á ýmsar síður og hjálpargögn varðandi íslenskt mál svo sem Málfarsbanka Íslenskrar málstöðvar, Orðabanka Íslenskrar málstöðvar, skrá yfir íðorðasöfn o.sfrv.
- Tengingar á orðasöfn í dönsku og ensku t.d. hugtakasafn um siglingamál.
- Upplýsingar um landsaðganginn Hvar.is en þar höfum við Íslendingar aðgang að yfir 20.000 tímaritum og yfir 10.000 rafbókum hvar sem við erum staðsett á landinu. Samgöngustofa borgar ásamt fjölda annarra stofnana fyrir þennan landsaðgang.
Kynnið ykkur endilega bókasafnssíðuna sem er í umsjón starfsfólks skjalastjórnunnar.