
Stjórn Farsýslunnar boðar til aðalfundar miðvikudaginn 6.september kl 16:30 í matsalnum í Ármúla 2. Að fundi loknum verður boðið uppá mat og drykk. Skráning fer fram HÉR
Tillögur að reglubreytingum þurfa að berast stjórn Farsýslunnar í síðasta lagi fyrir 12 á hádegi miðvikudaginn 30. ágúst. Reglurnar eru aðgengilegar á innri vef á meðfylgjandi hlekk:
https://samgongustofa.viska.dev/starfsmannafelagid-farsyslan/
Dagskrá fundarins:
- Skýrsla félagsstjórnar um starf s.l. árs.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins skulu lesnir og bornir upp til samþykktar.
- Reglubreytingar, ef fram koma.
- Ákvörðun um félagsgjald.
- Kosning stjórnar og endurskoðenda samkvæmt 4. gr.
- Önnur mál
Það eru laus sæti í næstu stjórn Farsýslunnar og við hvetjum öll sem hafa áhuga á því að bjóða sig fram í stjórn að hafa samband við einhvern núverandi stjórnarmeðlim.
Aron Freyr Jóhannsson
Anney Þórunn Þorvaldsdóttir
Berglind Magnúsdóttir
Díana Björk Eyþórsdóttir
Fanney Lára Sandholt
Gunnar Karl Gunnarsson
Una Björg Einarsdóttir