Gæðamoli vikunnar

Einelti og önnur áreitni er ólíðandi og við hjá Samgöngustofu leggjum okkur fram við að öllu starfsfólki líði vel í vinnunni. Dæmið á myndinni er því vonandi bara theorískt en ef ske kynni að slíkt atvik kæmi upp er gott að hafa fyrirframskilgreinda verkferla fyrir slík atvik.

Í gæðamola þessarar viku vil ég vekja athygli á Stefnu og áætlun Samgöngustofu gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi og annarri ótilhlýðilegri háttsemi (STE-0015). Í fullkomnum heimi væri þetta stefnuskjal óþarft en þangað til heimurinn batnar styðjum við okkur við stefnuna.

Nær allar stofnanir hafa svokallaða EKKO-stefnu en EKKO stendur fyrir einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundið áreiti og ofbeldi. EKKO-stefnur eru mikilvægar til þess að tryggja góða verkferla þegar samskipti starfsfólks eru ekki nógu góð. Okkur langar auðvitað öllum að líða vel í vinnunni og þessi stefna aðstoðar okkur við að uppfylla það markmið.

Ég er viss um að allt starfsfólk hefur gagn af því að renna fljótlega yfir stefnuna – í það minnsta fyrstu 4 kaflana. Gildismat hvers tíma er auðvitað breytilegt og samskipti sem þóttu eðlileg áður fyrr þykja ekki endilega eðlileg núna. Því er um að gera að eyða öllum vafa um hvort samskipti manns séu boðleg m.v. stefnuna og lesa hana yfir. Markmiðið um góða vinnustaðamenningu og að öllum líði vel í vinnunni er auðvitað á ábyrgð okkar allra og því mikilvægt að fólk kynni sér “leikreglurnar” (stefnuna í þessu tilviki) vel og vandlega. Vöndum okkur í samskiptum og verum góð við hvort annað! 🙂