Matargatið

Matargatið hefur nú opnað inná ,,Stofunni”. Þar er hægt að koma með tillögur fyrir mötuneytið hjá Bjössa & Össa.

Endilega sendið inn ykkar tillögu hér. Tillögurnar eru nafnlausar þrátt fyrir að þú setur inn nafnið þitt.

Skyndihjálparnámskeið

Við bjóðum upp á skyndihjálparnámskeið frá Auðnast dagana 15.-18. september.

Upplýsingar um námskeiðið:

🕘 Tími: 9:00 – 11:00 (2 klst.)

📍 Staðsetning: Matsalur, Ármúla 2

👥 Hámarksfjöldi: 25 þátttakendur á hvert námskeið.

Skráning:

Skráning fer fram hér Veldu þann dag sem hentar þér best – athugið að aðeins er hægt að velja eitt námskeið.

Þú færð fundarboð sent í tölvupóstinn þinn eftir skráningu.

Ef öll námskeiðin verða uppbókuð verður fundinn annar tími og tilkynnt um hann síðar.

Leigubílamálin í Brennslunni

Í morgun var rætt við Þórhildi samskiptastjóra í útvarpsþættinum Brennslan á FM957 um leigubílamálin sem hafa verið talsvert í umræðunni síðasta sólarhringinn. Þar komu meðal annars fram upplýsingar um leyfismálin og að fólk þarf að uppfylla skilyrði til að fá og viðhalda leyfi. Viðtalið var jákvætt tækifæri til að upplýsa um okkar hlutverk og segja frá þeirri vinnu sem við tökum þátt í um að bæta gildandi regluverk.

Hægt er að hlusta á viðtalið hérna og hefst þegar ca 1 klst og 15 mínútur eru liðnar af þættinum

Úrslit EM leik Samgöngustofu ⚽

Samgöngustofa var með ,,halda á lofti” keppni í matsalnum frá fyrsta leik Íslands til dagsins í dag. Uppi stóðu 2 sigurvegarar, Erla Vinsý og Tómas Bent.
Fengu þau í verðlaun ,,Fyrir Ísland” fótbolta. Óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn 🎉

Stofan – nýr vettvangur hjá mannauði

Við viljum kynna fyrir ykkur nýtt og öflugt verkfæri sem við í mannauði erum farin að nýta – 50Skills Journeys. Kerfið gerir okkur kleift að setja upp sjálfvirka ferla fyrir ýmis mál tengd mannauðsmálum og styður við bæði skilvirkni og betri upplifun starfsfólks.

Þetta er ekki enn eitt kerfið sem þarf að læra á – hlekkur á Journeys er nú þegar aðgengilegur á innra netinu undir „Stofan“. Ferlið er einfalt og aðgengilegt, og nú þegar er hægt að sækja um heilsustyrki og fylla út beiðni um samgöngusamning.

Hvað gerir Stofuna (Journeys) gagnlega?

  • Sjálfvirkni – ferlar keyra sig sjálfir og minnka handvirka vinnu
  • Skýrleiki – starfsfólk fær leiðsögn í gegnum hvert skref
  • Yfirsýn – stjórnendur og mannauður hafa betri innsýn og eftirfylgni

Við munum smám saman bæta fleiri ferlum við, bæði fyrir starfsfólk og stjórnendur. Ef þið hafið spurningar eða hugmyndir að ferlum sem gætu nýst í starfi mannauðs, endilega sendið okkur línu á mannaudur@samgongustofa.is.

Sumarfólkið okkar

Vorboðarnir ljúfu, sumarstarfsfólkið er nú byrjað mæta til starfa. Aðkoma þeirra er nauðsynleg til að við getum tekið orlof og hlaðið batteríin.

Á myndinni eru, frá vinstri:
Kristinn Örn Gunnarsson, skráningar og þjónusta
Jakub Buraczewski, skráningar og þjónusta
Stefán Fannar Hallgrímsson, skráningar og þjónusta
Daníel Karl Þrastarson, skráningar og þjónusta
Sara Stefánsdóttir, skráningar og þjónusta
Eva Gísladóttir, skráningar og þjónusta
Karen Eva Ómarsdóttir, skráningar og þjónusta

Auk þeirra er Alex Breki Elmarsson staðsettur á Ísafirði, siglingasvið

Bjóðum þau velkomin til starfa hjá Samgöngustofu!

Dagpeningar innanlands – breytt upphæð frá og með 1.júní 2025

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti, til þess að endurspegla árstíðarsveiflu í kostnaði gistingar.

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 55.900
  2. Gisting í einn sólarhring kr. 38.600
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 17.300
  4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 8.650

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2025. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2024.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Fæðiskostnaður er uppreiknaður miðað við breytingar á viðeigandi vísitölu sem útgefin er af Hagstofu Íslands.

Uppfært skjal má finna inní CCQ og heitir ,,Ferðareikningur innanlands”

Páskar í vinnustund

Vor í lofti og starfsfólk á leið í páskafrí 🐣

Við viljum biða ykkur um að fara yfir vinnustund og passa sérstaklega að allt tímabilið sé útfyllt þar sem það klárast í dymbilviku 🌷

Gleðilega páska og njótið súkkulaðisins 🍫 

VPN Breytingar

Sæl öll,

Við vorum að gera breytingar á vpn til að tryggja meira öryggi.

Hérna eru leiðbeiningar hvernig við tengjumst VPN (ath verður að nota fulla tölvupóstfang   fornafn.eftirnafn@samgongustofa.is)

DUO í Símtækinu

Sláið inn tölurnar sem birtist á tölvuskjánum hjá ykkur í DUO appið á GSM símanum ykkar og smellið á “verify”

Hvernig páskaegg vilt þú?

Það er ekki nema 5 vikur til páska og þá er tilvalið að fara velja sér egg því nú í ár vandast valið, því hægt verður að velja sér egg frá Góu 🎉

Ef ekkert er valið fyrir lok vinnudags, föstudaginn 7.mars þá færðu venjulegt egg 🐰

Hægt að velja sér egg á þessum link – https://forms.office.com/e/yHRiRNE0zH?origin=lprLink

Dagur sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna

Föstudaginnn 28. febrúar er dagur sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna.

EKKO Fræðsla

Í síðustu viku fengum við EKKO fræðslu frá Auðnast. Þetta er málefni sem varðar okkur öll og nauðsynlegt er að vera meðvituð um málaflokkinn í heild sinni.
Stefna og aðgerðaráætlum Samgöngustofu er að finna í CCQ (STE-0015) og í starfsmannahandbók má finna upplýsingar. Hér er stutt samantekt frá Auðnast.

paper icon
EKKO samantekt

Staðfesting á notkun fundarherbergja

Til að nýta fundarherbergin okkar sem best mun ný virkni taka gildi næstkomandi mánudag:  

Staðfesting á notkun

  • Þegar fundarherbergi er bókað þarf að staðfesta notkun þess á spjaldtölvu við innganginn í upphafi fundarins. 
  • Ef staðfesting er ekki gerð innan 15 mínútna frá upphafi fundar, verður herbergið sjálfkrafa afbókað. Skipuleggjandinn fær tölvupóst 5 mínútum áður sem viðvörun. 

Ljúka bókun fyrr ef fundur reynist styttri en áætlað var

  • Ef fundinum lýkur fyrr en til stóð, má ljúka bókuninni á spjaldtölvunni til að losa herbergið fyrir aðra. 

Bókanir til framtíðar

  • Framvegis verður hægt að bóka fundaraðir að hámarki sex mánuði fram í tímann, í stað tólf mánaða áður. 

Nýja fundarherbergið í matsalnum

  • Spjaldtölva verður sett upp við nýja fundarherbergið í matsalnum fljótlega, líkt og í öðrum fundarherbergjum. Eins og er þá er matsalurinn eitt bókanlegt rými í Outlook, en ef þörf reynist verður honum síðar skipt í tvö bókanleg rými. 

Þessar breytingar eru okkur öllum í hag með því að stytta þann tíma sem fundarherbergi eru frátekin en ónotuð. Förum vel með plássin okkar með því að bóka lítil herbergi fyrir litla fundi og stóru fundarherbergin helst aðeins fyrir stærri fundi. 

Takk fyrir samvinnuna, áfram Ísland! 

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum erlendis

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu ferðakostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum erlendis á vegum ríkisins sem tók gildi frá 1.janúar 2025.

Sjá nánar á stjornarradid.is

Uppfært excel skjal er komið inní CCQ.

Tökum vel á móti nýju fólki

Tveir hófu nýlega störf hjá Samgöngustofu.

Björn Vilberg Jónsson starfar sem eftirlitsmaður í flugrektardeild og er staðsettur á 2.hæð.

Lína María Ingólfsdóttir starfar sem fulltrúi í skráningar og þjónustudeild og er staðsett á 1. hæð.

Hrekkjavöku-skiptimarkaður!

Árlega hefðin heldur áfram að hafa lítinn hrekkjavöku skiptimarkað fyrir búninga hér í Ármúla 2. Það er frábært að geta nýtt áfram góða búninga, lengja líftíma flíkanna og hlutanna okkar og svo er þetta líka ein af aðgerðunum í Grænu skrefunum 🙂

Dagpeningar innanlands – breytt upphæð frá og með 1. október 2024

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti, til þess að endurspegla árstíðarsveiflu í kostnaði gistingar.

  1.  Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 40.000
  2.  Gisting í einn sólarhring kr. 23.400
  3.  Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 16.600
  4.  Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 8.300

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2024. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2024.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Fæðiskostnaður er uppreiknaður miðað við breytingar á viðeigandi vísitölu sem útgefin er af Hagstofu Íslands.

Uppfært skjal má finna inní CCQ og heitir ”Ferðareikningur innanlands”.

Hádegismatur 17-20.september

Gulur september

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Það er von undirbúningshópsins að gulur september, auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna, sé til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju.

10. september er gulur dagur

Öll sem geta eru hvött til að taka þátt og sýna þannig stuðning við geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir.

Á gulum degi klæðumst við gulu, skreytum með gulu, lýsum með gulu, borðum gular veitingar og tökum myndir af gulri stemmingu. Myndin getur verið sjálfa eða af vinum, fjölskyldu, samstarfsfólki, skreytingum eða gulum hlutum.

Til að vekja athygli sem víðast er lagt til að deila myndum á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #gulurseptember.

Frekari upplýsingar um verkefnið “gulur september” er að finna á heimasíðunni gulur september.