Til að nýta fundarherbergin okkar sem best mun ný virkni taka gildi næstkomandi mánudag:
Staðfesting á notkun:
- Þegar fundarherbergi er bókað þarf að staðfesta notkun þess á spjaldtölvu við innganginn í upphafi fundarins.
- Ef staðfesting er ekki gerð innan 15 mínútna frá upphafi fundar, verður herbergið sjálfkrafa afbókað. Skipuleggjandinn fær tölvupóst 5 mínútum áður sem viðvörun.
Ljúka bókun fyrr ef fundur reynist styttri en áætlað var:
- Ef fundinum lýkur fyrr en til stóð, má ljúka bókuninni á spjaldtölvunni til að losa herbergið fyrir aðra.
Bókanir til framtíðar:
- Framvegis verður hægt að bóka fundaraðir að hámarki sex mánuði fram í tímann, í stað tólf mánaða áður.
Nýja fundarherbergið í matsalnum:
- Spjaldtölva verður sett upp við nýja fundarherbergið í matsalnum fljótlega, líkt og í öðrum fundarherbergjum. Eins og er þá er matsalurinn eitt bókanlegt rými í Outlook, en ef þörf reynist verður honum síðar skipt í tvö bókanleg rými.
Þessar breytingar eru okkur öllum í hag með því að stytta þann tíma sem fundarherbergi eru frátekin en ónotuð. Förum vel með plássin okkar með því að bóka lítil herbergi fyrir litla fundi og stóru fundarherbergin helst aðeins fyrir stærri fundi.
Takk fyrir samvinnuna, áfram Ísland!
