Bannsvæði dróna í vefsjá Landmælinga íslands

Settur hefur verið saman vinnuhópur verkefnis sem miðar að birtingu upplýsinga um gildandi bannsvæði fyrir dróna á vefsjá Landmælinga Íslands. Úrlausnarefni hópsins snúa að því að útfæra leiðir til miðlunar upplýsinga um takmarkanir í gildi fyrir drónaflug í kortaformi, bæði til lengri tími svo og um skyndilokanir.

Verkefnið verður unnið undir stjórn Samgöngustofu í samstarfi við Landmælingar Íslands, Isavia ANS, Isavia ohf og Isavia Innalands og einnig Lögregluna, Landhelgisgæsluna og Umhverfisstofnun en það eru m.a. þær stofnanir sem heimild hafa til að setja á bönn við flugi dróna.

Vel er hugsanlegt að fleiri tækifæri séu fyrir SGS að miðla upplýsingum á vefsjá og í samstarfi við LMÍ en um verkefnið Grunngerð stafrænna upplýsinga segir:

Grunngerð stafrænna landupplýsinga á Íslandi er verkefni sem felur í sér aðgengi og samtengingu við allar opinberar landupplýsingar á Íslandi. Grunngerð má því orða sem samræmt skipulag landupplýsinga. Undir þetta verkefni falla allar landupplýsingar sem stofnanir og sveitarfélög á Íslandi eiga. Með grunngerð landupplýsinga er þó ekki aðeins verið að tala um gögnin sjálf heldur nær hugtakið yfir alla tækni, stefnur, staðla og mannauð sem þarf til að afla, vinna úr, varðveita, miðla og auka nýtingu á landupplýsingum.

Fyrirmynd verkefnisins er evrópska tilskipunin INSPIRE (Infrastructure for Spatial Information in Europe) og eru aðgengismál opinberra landupplýsinga helsta ástæða þess að Evrópusambandið ákvað að gefa út tilskipun um að byggja upp grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar í Evrópu sem nefnd hefur verið INSPIRE. Verkefninu í Evrópu fer senn að ljúka og við tekur tilskipun sem heitir GreenData4All.

Markmið verkefnanna bæði hér á landi og í Evrópu er að auðvelda aðgengi að samræmdum landupplýsingum í þágu umhverfismála. En landupplýsingar hjálpa til við ákvarðanatöku í mismunandi samhengi, t.d. hvað varðar skipulagsmál, vernd, umferð, náttúrufar svo eitthvað sé nefnt.