Samgöngumottan 2022

Í Mottumars tökum við höndum saman í vitundarvakningu um krabbamein hjá körlum og öflum fjár fyrir mikilvægri starfsemi. Í ár minnir Krabbameinsfélagið karlmenn sérstaklega á að kynna sér og þekkja hvaða einkenni geta bent til krabbameins og hvetur þá til að leita fljótt til læknis verði þeir varir við slík einkenni.

Hægt er að styrkja átakið á síðunni www.mottumars.is t.d. með kaupum á sokkum eða með því að styrkja einhverja af fjölmörgum sem taka þátt í Mottumars á síðunni safna.krabb.is.

Af þessu tilefni hvetjum við mottusafnara Samgöngustofu að senda okkur mynd af mottunni til birtingar hér á innri vefnum. Dómnefnd velur svo Samgöngumottuna 2022 og fær verðlaunahafinn heiðurinn ásamt verðlaunum sem verða sæt undir tönn (eða undir mottu kannski?). Sendið myndirnar á: vefur@samgongustofa.is.