
Gunnar Geir, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar, er í viðtali í Morgunblaðinu í dag. Umfjöllunarefnið er m.a. mikil fjölgun slysa á rafmagnshlaupahjólum og í viðtalinu segir m.a.:
„Slysum á reiðhjólum, rafmagnsreiðhjólum og rafmagnshlaupahjólum fjölgaði mjög mikið í fyrra en það má að stærstum eða öllum hluta rekja til mikillar fjölgunar slysa á rafmagnshlaupahjólum. Alvarlegum slysum á þessum tækjum fjölgar einnig mikið á milli ára, eða úr 4 í 35 og segir sérfræðingur hjá Samgöngustofu að slys á þessum tækjum séu nú orðin stór hluti af heildarmyndinni þegar kemur að umferðarslysum. Stóran hluta þessara slysa má þó rekja til tveggja notendahópa og hægt eigi að vera að fyriyggja þau að miklu leyti.
„Í fyrra varð algjör sprenging í þessum slysum. Við sáum þetta fyrst árið 2020, en þetta margfaldaðist í fyrra,“ segir Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu, í samtali við Morgunblaðið. „Þetta er orðið stórt vandamál og áberandi hluti af heildarmyndinni varðandi umferðarslys.“ “
Viðtalið í heild má lesa hér.