Vinnustofa Eurocontrol

Hópurinn tók sér stutt hlé og stillti sér upp fyrir myndatöku. Lélegur brandari myndasmiðs kallaði fram þessi líka fínu bros


Í síðustu viku var haldin vinnustofa hér í Ármúlanum á vegum Eurocontrol vegna hugsanlegrar aðildar Íslands að stofnuninni. Vinnustofuna sóttu fulltrúar Landhelgisgæslunnar, Isavia, CERT-IS, Samgöngustofu auk starfsfólks Eurocontrol sem stýrði vinnustofunni. Hópurinn tók sér tíma fyrir myndatöku og var að sjálfsögðu farið út enda viðraði vel þennan daginn.

Upplýsingar um Eurocontrol má nálgast á vef stofnunarinnar.


Frá vinnustofunni