
Eitt af mörgum hlutverkum Samgöngustofu er greining, forvarnir og fræðsla um öryggi hjólandi vegfaranda.
Núna í maí erum við í samstarfi við Slysavarnafélagið Landsbjörg að framkvæma könnun við valda stíga á höfuðborgarsvæðinu. Undanfarin ár hefur umferð meðal ökumanna á akbrautum verið könnuð en með þessu samstarfsverkefni er ætlunin að fá sem besta mynd af stöðunni utan akbrauta á göngu- og hjólastígum. Farartæki sem fara um stíginn eru skráð og hvort ökumaður sé með hjálm. Einnig aldur og kyn skráð, hvort ökumaður horfi eða haldi á síma, hvort að það sé farþegi auk ökumanns á farartækinu og hvort að farþeginn sé með hjálm. Ætlunin er að framkvæma könnunina með sama hætti næstu árin til að geta fengið sem besta mynd af þróun hegðunar á göngu- og hjólastígum.
Það eru unglingadeildir Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu sem sjá um framkvæmd könnunarinnar en undanfarin ár hafa Samgöngustofa og Slysavarnafélagið Landsbjörg tekið höndum saman og lagt sérstaka áherslu á öryggi ungs fólks (15-20 ára) í umferðinni. Ráðstefnur, vinnustofur og málþing hafa verið haldin og sóttu fulltrúar Samgöngustofu og Landsbjargar, ásamt fjórum ungmennum, alþjóðlega ráðstefnu um umferðaröryggi sem haldin var í Svíþjóð árið 2020. Í aðdraganda ráðstefnunnar var vinnustofa fyrir ungmenni undir merkjum YOURS (Youth for Road Safety). Þar var lögð áhersla á að virkja unga fólkið til aðgerða með aukinni þátttöku og stefnumótun er varðar öryggi ungs fólks og með það að leiðarljósi að fræða jafnaldra um umferðaröryggi. Könnunin fer fram á sama tíma og verkefnið Hjólað í vinnuna stendur yfir þannig að það er mikil umferð um stígana.
Lokahóf samstarfsverkefnisins fer fram í Flugröst sal Samgöngustofu í Nauthólsvík, Nauthólsvegi 99. fimmtudaginn 19. maí kl. 19:00. Þar munu forsvarsmenn Samgöngustofu og Slysavarnafélagsins Landsbjargar m.a. veita unglingadeildum viðurkenningu fyrir störf sín í þágu umferðaröryggis í landinu.