
Alþjóðasiglingamálastofnuninn IMO hefur ákveðið að 18. maí verði héðan í frá tileinkaður KONUM í SIGLINGUM og SJÁVARÚTVEGI og dagurinn er í fyrsta skiptið haldinn hátíðlegur í dag. Af þessu tilefni heldur IMO örráðstefnu í dag frá 13-15:30 (14-16:30 British Summer Time) sem ber heitið “Training-Visibility-Recognition: Supporting a barrier-free working environment for Women in Maritime”. Skráning fer fram hér. Sjá dagskrá hér.
Það er hvergi meiri kynjamunur í atvinnugreinum en í siglingum – en aðeins um 1% sjómanna eru konur. Það horfir þó nokkuð til bóta því heldur fleiri stelpur sækja nú nám í skipstjórn og vélstjórn, auk annarra siglinga – og sjávarútvegstengdra greina. Á undaförnum árum hefur orðið til sterkt tengslanet kvenna í siglingum og sjávarútvegi hér á landi þar sem konur hittast, miðla af þekkingu sinni og kynnast þeim fjölbreyttu nýjungum sem einkenna greinarnar, m.a. fullnýting þess sem áður var úrgangur en er nú nýtt í heilsu-, matvæla- og snyrtivörur.
Árið 2019 var í starfsemi IMO helgað konum í siglingum. Hérlendis var af því tilefni haldin góð ráðstefna síðla það ár með fjölda innlendra og erlendra fyrirlesara.