Vorhreingerning vefsins 2022


Þann 6. apríl 2021 var samþykkt í framkvæmdastjórn verklag við yfirferð efnis á ytri vefjum Samgöngustofu (www.samgongustofa.is og www.icetra.is ). Ábyrgð á efni einstakra vefsíðna er skilgreint og mun vefstjóri senda viðkomandi ábyrgðaraðilum og deildarstjórum lista yfir þeirra síður á næstu dögum. Ábyrgðaraðilar fara svo yfir efni sinna síðna og annaðhvort staðfesta að engar úreldar upplýsingar séu þar að finna eða senda vefstjóra ábendingar um efni sem þarf að uppfæra. Sendur verður út tékklisti með þessum tölvupóstum. Ábyrgðaraðilar hafa frest til 24. júní til þess að fara yfir efni sinna síðna og senda á vefstjóra stöðuna hjá sér.

Þetta er hið formlega ferli en einnig er mikilvægt að allt starfsfólk hjálpist að við að tryggja að efni á vefnum sé rétt og vel uppfært. Við viljum hvetja ykkur til þess að fara yfir það efni sem snertir ykkar starfsvið á www.samgongustofa.is og www.icetra.is og senda ábendingar í gegnum ábendingakerfi vefsins en þær ábendingar skila sér á netfangið vefur@samgongstofa.is. Neðst á hverri síðu á vefnum er sem sagt ábendingakerfi, þið veljið Var efnið hjálplegt: Nei. Sjá hér:


Þá kemur upp form þar sem þið skrifið hvað þurfi að laga á viðkomandi síðu. Þið ráðið hvort þið setjið netfangið ykkar með (betra upp á eftirfylgni) eða hvort þið viljið hafa ábendinguna nafnlausa:


Einn af kostunum við það að nota ábendingakerfið er að þá fylgir ábendingunni bein slóð á viðkomandi síðu. Einnig má senda ábendingar beint á netfangið vefur@samgongustofa.is ef fólki þykir það þægilegra.

Vinnum saman og bætum upplýsingarnar á vefnum okkar. Vefurinn er andlit stofnunarinnar út á við og mjög mikilvægt er að upplýsingar sem þar eru séu réttar og uppfærðar reglulega.