
Óskað er eftir áhugasömum aðilum til að sitja í umhverfishóp Samgöngustofu og taka þátt í gefandi og skemmtilegu starfi hópsins.
Markmið hópsins er að efla þekkingu og vitund starfsfólks á umhverfismálum og stuðla að því að gera rekstur og starfsemi Samgöngustofu umhverfisvænni.
Hlutverk hópsins eru m.a.:
- Móta umhverfis- og loftlagsstefnu stofnunarinnar
- Leggja til mælanleg markmið umhverfismála í samræmi við loftlagsstefnu og í samráði við sérfræðinga Samgöngustofu
- Skipuleggja fræðslu og kynningu umhverfismála innan SGS, t.d. föstudagsörerindi og kynnisferðir til annarra fyrirtækja
- Halda utan um vinnu og fylgja eftir verkefnum sem snúa að viðhaldi Grænna skrefa í ríkisrekstri
- Halda utan um gagnaöflun fyrir skil á Grænu bókhaldi
- Framfylgja verkefnum á sviði umhverfismála sem framkvæmdastjórn felur hópnum
- Koma með tillögur að umbótaverkefnum á sviði umhverfismála fyrir rekstur stofnunarinnar (innri umbótaverkefni)
- Koma með tillögur að samfélagslegum verkefnum á sviði umhverfismála (ytri umbótaverkefni)
Áhugasöm eru beðin að hafa samband við graen@samgongustofa.is