Vorfagnaður bifhjólafólks á morgun


Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 20. apríl (á morgun), verður haldinn Vorfagnaður bifhjólafólks á svæði Ökuskóla 3 við Álfahellu í Hafnarfirði. Samgöngustofa stendur að þessu með Ökukennarafélaginu, Ökuskóla 3 og Sniglunum en einnig kemur Kvartmíluklúbburinn að undirbúningi dagsins. Fagnaðurinn hefst kl. 13 og stendur yfir til kl. 16.

Kynningarmyndband:


Dagurinn er fyrst og fremst til að tryggja öryggi bifhjólafólks sem best og búa það undir áskoranir sumarsins. Það gleymist margt og fólk fer úr æfingu á meðan hjólið stendur óhreyft yfir veturinn. Haldin verða fræðsluerindi og síðan farið í akstur um æfingasvæði Ökuskólans undir leiðsögn ökukennara. Í fyrra mættu á annað hundrað manns og meira að segja stærsti hluti bifhjóladeildar lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Samgöngustofa mun kynna slysatölfræði bifhjólafólks og þá þróun sem átt hefur sér stað í þeim efnum. Boðið verður upp á veitingar og eru allir velkomnir og þeir sem eiga mótorhjól eru hvattir til að koma á því. Við minnum svo alla hina vegfarendurna á að líta ætíð tvisvar til hliðar áður en ekið er af stað. Það gæti verið bifhjól að koma þvert á leið ykkar.