
Þann 15. maí 2023 verður nýtt tölvukerfi fyrir skipaskrá og lögskráningar sjómanna tekið í notkun hér hjá Samgöngustofu.
Vegna þessa verður lokað fyrir skráningar frá klukkan 12:00 föstudaginn 12. maí til klukkan 01:00 mánudaginn 15. maí.
Athygli útgerða og lögskráningaraðila er vakin á því að hægt er að lögskrá áhöfn þrjá daga fram í tímann. Þannig þarf að ganga þarf frá lögskráningu og/eða afskráningu fyrir lokun lögskráningarkerfisins klukkan 12.00 föstudaginn 12. maí ef skip heldur úr höfn á föstudegi, laugardegi eða sunnudegi á meðan lögskráningarkerfið er lokað.
Nánari upplýsingar og kynningarmyndband má nálgast á www.samgongustofa.is/skutan