Föstudagslagið – vinsælasta lag ársins 2022


Við höldum áfram með áskorendaröðina á föstudaginn í næstu viku en í upphafi árs er hinsvegar tilvalið að líta yfir árið 2022 og sjá hvaða lög voru vinsælust á því herrans ári. Samkvæmt samantekt Vísis á mest spiluðu lögunum á Spotify á síðasta ári var það Harry Styles sem var vinsælastur en lagið hans As it was af plötunni Harry´s House var stremt rúmlega 1,6 milljarð sinnum á árinu. Styles þessi er fæddur árið 1994 og sló upphaflega í gegn sem meðlimur strákasveitarinnar One Direction eftir þátttöku í breska X Factor árið 2010.

Lagið náði á toppinn í 35 löndum á árinu og náði m.a. þeim merka áfanga að vera 15 vikur samfellt á toppnum á hinum bandaríska Billboard lista. Magnaður árangur það!



Frétt í Morgunblaðinu um þróun umferðarslysa

Þann 30. desember birtist frétt í Morgunblaðinu eftir fyrirspurnir blaðamanns til okkar um fjölda slasaðra í umferðinni á síðasta ári og þróunina undanfarin ár. Fréttinna má nálgast á tenglinum hér að ofan en við skellum henni hér inn líka:

Rafhlaupahjól sjöfalt hættulegri en reiðhjól

Fækk­un bana­slysa í um­ferðinni er að tölu­verðu leyti töl­fræðisveifla sem alltaf má bú­ast við þegar töl­ur eru lág­ar, en bana­slys­um hef­ur al­mennt verið að fækka í Evr­ópu. Ekki síst vegna ör­ugg­ari bíla, stöðugra um­bóta í innviðum og stöðugr­ar viðleitni til að gera öku­menn ör­ugg­ari með því að fá þá til að hegða sér bet­ur í um­ferðinni.

Allt þetta á einnig við hér á landi, seg­ir í skrif­legu svari Sam­göngu­stofu við fyr­ir­spurn mbl.is um fækk­un bana­slysa í um­ferðinni.

Níu hafa lát­ist í um­ferðarslys­um hér á landi það sem af er ári og eru það jafn marg­ir og lét­ust í um­ferðinni á síðasta ári. Um er að ræða svipaðan fjölda og árin 2020 og 2019, en á ár­un­um 2015 til 2018 lét­ust tölu­vert fleiri.

Keyra hugs­an­lega minna sjálf­ir

Auk þeirra skýr­inga sem tald­ar eru upp að ofan hafði Covid-far­ald­ur­inn mik­il áhrif á um­ferð hér landi síðustu tvö ár, bæði ferðahegðun okk­ar Íslend­inga og fjölda ferðamanna hér á landi, sem voru nán­ast eng­ir.

„Nú eru ferðamenn­irn­ir komn­ir aft­ur en umræðan und­an­farið hef­ur ekki að jafn­miklu leyti og áður snúið að reynslu­leysi ferðamanna gagn­vart aðstæðum. Hugs­an­lega keyra ferðamenn sjálf­ir minna en áður eða stærra hlut­fall er reynd­ara í akstri í sam­bæri­leg­um aðstæðum og hér eru. Ein skýr­ing á fækk­un bana­slysa árið 2019 er að ekki voru jafnal­var­leg rútu­slys það árið eins og árin á und­an,“ seg­ir í svari Sam­göngu­stofu.

Ekki mik­il breyt­ing á fjölda slasaðra

Ekki hef­ur hins veg­ar orðið mik­il breyt­ing á fjölda slasaðra og al­var­legra slasaðra. Það að töl­ur yfir slasaða hafi lækkað árið 2020 má rekja til Covid og strangra sam­komutak­mark­ana því þá voru mun færri á ferðinni í eðli­legu ár­ferði. Far­ald­ur­inn var enn við líði árið 2021, en þá hækkuðu töl­urn­ar engu að síður aft­ur. Staðan var að breyt­ast; bólu­setn­ing­ar að hefjast og ein­kenni væg­ari.

„Vax­andi vilji til að leggja tak­mark­an­ir að baki og nokk­ur óþol­in­mæði gagn­vart ör­ygg­is­ráðlegg­ing­um hins op­in­bera sást m.a. í könn­un á akst­urs­hegðun al­menn­ings það ár. Auk þess komu raf­hlaupa­hjól­in til sög­unn­ar á þess­um árum. Má segja að slys á raf­hlaupa­hjól­um hafi að miklu leyti vegið upp á móti fækk­un slysa á er­lend­um ferðamönn­um.“

Fleiri slasast á raf­hlaupa­hjóli

Á síðustu fjór­um árum hef­ur al­var­leg­um slys­um og bana­slys­um á raf­hlaupa- og reiðhjól­um fjölgað mikið, en það er í sam­ræmi við aukna notk­un þeirra. Árið 2021 slösuðust 65 al­var­lega eða lét­ust í tengsl­um við notk­un slíkra far­ar­tækja en heild­ar­fjöldi þeirra sem slasaðist al­var­lega eða lést í um­ferðaslys­um það ár var 208.

Raf­hlaupa- og reiðhjóla­slys voru því rúm 31 pró­sent af öll­um al­var­leg­um um­ferðarslys­um árið 2021 en aðeins rúm 10 pró­sent árið 2018.

Fleiri slasast á raf­hlaupa­hjóli en venju­legu reiðhjóli þrátt fyr­ir að fjór­um eða fimm sinn­um fleiri nýti sér seinni ferðamát­ann, að seg­ir í svari Sam­göngu­stofu. Með ein­föld­um út­reikn­ing­um megi fá út að sex eða sjö­fald­ur mun­ur sé á hætt­unni sem fólk er í á raf­hlaupa­hjóli en reiðhjóli.

Töl­urn­ar aðeins skárri en á síðasta ári 

Ekki hef­ur verið lokið við skrán­ingu þessa árs en töl­urn­ar stefna í að verða svipaðar eða aðeins skárri en árið 2021.

Slösuðum ferðamönn­um fjölg­ar aft­ur eft­ir því sem ferðamönn­um fjölg­ar í land­inu en hver og einn ferðamaður virðist þó vera ör­ugg­ari held­ur en hann var fyr­ir Covid. 

Slösuðum á raf- og reiðhjól­um virðist einnig ætla að fjölga eitt­hvað en er sú fjölg­un virðist vera minni en á síðustu árum, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Sam­göngu­stofu.

Þá virðast ung­ir ung­ir öku­menn standa sig tölu­vert bet­ur en árið 2021 og einnig virðist hafa dregið úr frama­ná­keyrsl­um og útafa­kstri, þrátt fyr­ir fjölg­un ferðamanna.