Við Nauthólsvík standa tveir braggar í eigu Samgöngustofu sem kallast Flugröst. Í öðrum þeirra er funda- og veislusalur. Forstofa er í bragganum þar sem eru tvö klósett, frá forstofu er gengið inn í veislusal og þaðan inn í eldhús og litla setustofu, þar eru sófar og hægindastólar. Hægt er að ganga út á pall fyrir aftan.
Flugröst hentar vel sem fundarsalur fyrir lengri fundi eða námskeið á vegum Samgöngustofu, panta má veitingar eða kaffi hjá mötuneytinu. Kerfisrekstur aðstoðar með tæknimál ef þarf.
Salurinn tekur ca. 60 manns í sæti, í eldhúsinu er kaffivél (uppáhellt), tveir kæliskápar, uppþvottavél og allt helsta leirtau og borðbúnaður er til staðar.
Starfsfólki Samgöngustofu býðst að leigja salinn fyrir viðburði á eigin vegum, ekki er heimilt að framselja leigunni eða selja inn á viðburði í Flugröst. Greitt er þrifagjald, 25.500 kr., greiða skal fyrir viðburð. Leigutaki ber ábyrgð á salnum, sér um uppvask ef eitthvað er og fer út með rusl.
Mannauðsdeild sér um bókanir, bæði fundi og viðburði á vegum stofnunarinnar og einkaviðburði.
Lyklar að Flugröst eru afhentir hjá mannauðsdeild.
Hér eru nokkrar myndir frá Flugröst



