
Á morgun, miðvikudaginn 18. janúar frá 9-10, stendur Vegagerðin fyrir morgunfundi um vetrarþjónustu. Fyrirkomulag vetrarþjónustu og starfsemi vaktstöðvar Vegagerðarinnar verða til umfjöllunar og fulltrúar ferðaþjónustufyrirtækja lýsa reynslu sinni af starfseminni um vetur á Íslandi.
Morgunfundurinn verður haldinn í húsnæði Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 í Garðabæ. Opið er á meðan húsrúm leyfir og það verður heitt á könnunni.
Fundinum verður einnig streymt á vef Vegagerðarinnar, www.vegagerdin.is og á Facebook. Streymt verður á eftirfarandi slóð: https://livestream.com/accounts/15827392/events/10739920
Hægt verður að senda inn fyrirspurnir á Slido.com . Lykilorðið er Vetur
Dagskrá fundarins
- Opnun fundar Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar.
- Á vaktinni – starfsemi vaktstöðvar. Árni Gísli Árnason, forstöðumaður vöktunar og upplýsinga hjá Vegagerðinni.
- Fyrirkomulag vetrarþjónustunnar. Einar Pálsson, forstöðumaður vegaþjónustu Vegagerðarinnar.
- Vetrarþjónusta – Hópbifreiðar. Harald Teitsson, framkvæmdastjóri Teits Jónassonar og formaður hópbílanefndar SAF, heldur erindi.
- Vetrarþjónusta – Eru bílaleigubílar fyrir? – Ingi Heiðar Bergþórsson, framkvæmdastjóri þjónustu- og starfsmannasviðs Hertz – Bílaleigu Flugleiða.
Fundarstjóri: G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar.
Sjá nánar á vef Vegagerðarinnar