Stafrænar skráningar ökutækja í mikilli sókn

Samgöngustofa hefur undanfarin misseri unnið markvisst að því að stafvæða skráningarferli ökutækja. Þetta nær til eigendaskipta, nýskráninga og afskráninga. Deild skráninga og þjónustu setti sér skýr markmið og gerði aðgerðaráætlun. Breytingarnar hafa þegar skilað verulegum árangri: Auknum hraða, bættu öryggi og betri þjónustu fyrir notendur. 

Stafræn eigendaskipti

Þann 1. maí sl. hættu skoðunarstöðvar að taka á móti eigendaskiptum á pappír að beiðni Samgöngustofu. viðskiptavinir eru þess í stað hvattir til að nýta stafræna þjónustu á Ísland.is. Eigendaskipti á pappír taka nú allt að viku, þar sem báðir aðilar fá tilkynningu í sitt stafræna pósthólf áður en breytingin er skráð, til að tryggja öryggi og koma í veg fyrir villur. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Hlutfall stafrænna eigendaskipta fór úr 87,6% í apríl í 92,9% í maí, sem er tæplega 6% aukning á einum mánuði.

Stafrænar nýskráningar

Flest bílaumboð nota nú stafræna vefþjónustu til nýskráninga. Í apríl var ákveðið að loka svokallaðri biðskrá, sem byggði á pappírsgögnum og handvirkri vinnslu. Þetta hafði þegar veruleg áhrif. Hlutfall stafrænna nýskráninga hefur aukist um rúm 20% síðan í mars, fór úr 76,1% í mars í 94,8% í apríl og náði 97,4% í maí.

Stafrænar afskráningar

Við eigum í samstarfi við Stafrænt Ísland og Úrvinnslusjóð um að auka stafrænar afskráningar þegar ökutæki fara til úrvinnslu. Ferlið hefur verið betrumbætt ásamt því að gefa minni móttökuaðilum eins og sveitafélögum kleift að skila inn stafrænum skilavottorðum.