
Sjöundi desember 2024 markar 80 ára afmæli undirritunar Chicago-samningsins um alþjóðaflug, sem fram fór í Chicago í Bandaríkjunum. Í átta áratugi hefur þessi tímamótasamningur verið grundvöllur þróunar á alþjóðaflugi til hagsbóta fyrir þjóðir heims. Til að fagna þessum mikilvæga áfanga skipulagði Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) viðburði dagana 4. og 5. desember á Hilton Chicago hótelinu, áður þekkt sem The Stevens Hotel, þar sem samningurinn var samþykktur og stofnunin á uppruna sinn. Þrátt fyrir að þessi viðburður gefi tækifæri til að líta til baka og meta mikilvæga áfangasigra síðustu áttatíu ára, þá er enn mikilvægara að hann skapi vettvang fyrir umræðu allra hagsmunaaðila um hvernig ICAO mun áfram styðja við þróun flugsins á komandi áratugum.
Í bókinni “Saga flugvalla og flugleiðsögu á Íslandi” eftir Arnþór Gunnarsson er eftirfarandi texti: Á árunum 1942–1944 hófu stjórnmála- og embættismenn markvissan undirbúning að almennu alþjóðaflugi að styrjöldinni lokinni. Mest var unnið að þessum málum í Bandaríkjunum, Bretlandi og Kanada. Árið 1944 tóku Bandaríkin af skarið og buðu 53 ríkjum ásamt fulltrúum tveggja annarra til alþjóðlegrar flugmálaráðstefnu í Chicago. Þáðu 52 boðið. Var ráðstefnan haldin á gömlu og virðulegu hóteli, Stevens Hotel, og hófst 1. nóvember 1944. Ætlunin var að ráðstefnan stæði í 25 daga en áður en yfir lauk urðu dagarnir 37.
Það er ótrúlegt að Ísland hafi tekið þátt og gerst í kjölfarið stofnaðili að Alþjóðaflugmálastofnuninni á þessum tímum stríðs og umróta, sama ár og þjóðin hlaut fullveldi. Síðan þá hafa ýmsir samningar verið staðfestir og má þar sérstaklega nefna samninga um stjórnun flugleiðsögu yfir Atlandshafinu sem enn eru í gildi. Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir fulltrúi Íslands hjá ICAO tók þátt í viðburðinum í Chicago fyrir Íslands hönd.