Jólastund í Guðmundarlundi – myndir

Í gær bauð Farsýslan upp á skemmtilega og notalega jólaskemmtun í Guðmundarlundi í Kópavogi. Skjóða mætti á staðinn og leiddi okkur í gegnum skóginn í lund þar sem hún og bróðir hennar buðu upp á skemmtilega jólasögu. Þegar jólasagan var búin læddust tveir dularfullir rauðklæddir menn í gegnum skóginn og slógust í för með Skjóðu og bróður hennar og fóru með gamanmál. Dansað var í kringum jólatré og helstu jólalögin tekin.

Að því loknu fórum við í halarófu að grillhúsi sem er innar í Guðmundarlundi þar sem boðið var upp á flatkökur með hengikjöti, kleinur og kakó. Kakóið var eitt það besta sem undirritaður hefur smakkað enda meistarakokkurinn Bjössi sem hafði lagað það fyrir okkur.

Það er ástæða til þess að þakka stjórn Farsýslunnar kærlega fyrir þessa virkilega vel heppnuðu jólastund. Góð gæðastund með samstarfsfólkinu, börnum og barnabörnum þeirra. Hér að neðan eru nokkrar myndir frá því í gær:

Skjóð tók á móti gestunum og leiddi okkur svo í gegnum skóginn þar sem hún sagði jólasögu. Anna Guðrún Sigfúsdóttir og Birta vinkona hennar eru með henni á myndinni.
Hluti lögfræðideildarinnar ásamt afkvæmum

Skjóða leiddi okkur í gegnum skóginn inn í lund þar sem hún sagði okkur jólasögu við undirspil bróður síns

Jólasveinarnir mæta á svæðið
Og svo var dansað í kringum jólatré og helstu jólalögin tekin
Sædís Birta ásamt eiginmanni og dóttur
Vefstjóri tekur sjálfu af sér og sinni heittelskuðu
Pósað með jólasveininum
Heitt kakó Bjössakakó svíkur engan
Sjálfa með Skjóðu