
Alþjóðaflugmáladagurinn er í dag, 7. desember. Að þessu sinni er hann helgaður nýsköpun og þróun flugs á heimsvísu. Dagurinn er einn af árlegum alþjóðlegum dögum Sameinuðu þjóðanna (SÞ), sem opinberlega var lýst yfir af SÞ árið 1996 og haldinn hátíðlegur í öllum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna.
Af þessu tilefni er flaggað hér í Ármúlanum.