Föstudagslagið – Gleðileg jól

The BMI Holiday Countdown: John Lennon, “Happy Xmas (War Is Over)” | News |  BMI.com

Við gerum hlé á föstudagslaginu yfir hátíðarnar en næsti föstudagslagspistill mun birtast þann 6. janúar á næsta ári. Í tilefni jólanna er þó ástæða til að setja inn eins og eitt jólalag. Lagið á vel við á þessum tímum sem við lifum; mannskepnan virðist aldrei ætla að læra og enn erum við að horfa upp á óþarfa stríðsátök víða í heiminum m.a. í Úkraínu.

Lagið Happy xmas (war is over) gáfu þau John Lennon og Yoko Ono út árið 1971 og var það samið m.a. sem mótmæli gegn Víetnamstríðinu sem stóð yfir frá 1959 til 1975. Vonandi næst þessi boðskapur einhverntímann í gegn og við náum takmarkinu um frið á jörðu.

Hafið það notalegt yfir hátíðarnar. Gleðileg jól!