Öryggið í fyrsta sæti

Hinn árlegi alþjóðasiglingadagur er haldinn í dag. Þemað að þessu sinni er Navigating the future: safety first! Það gæti útlagst sem Öryggi í fyrsta sæti – til framtíðar! Dagurinn er haldinn til að vekja athygli á mikilvægi siglinga og áherslan minnir okkur á að öryggið skiptir öllu fyrir framtíð greinarinnar.

Siglingaöryggi hefur djúpstæð áhrif fyrir okkur sem fiskveiðiþjóð. Um miðja síðustu öld þótti nánast eðlilegt að missa jafnvel tugi manna í sjóslysum á hverju einasta ári. Með betra regluverki, menntun og þjálfun og tækniþróun, svo nokkuð sé nefnt, hefur orðið bylting í öryggisvitund sjófarenda. Undanfarna áratugi hafa þessir samverkandi þættir skilað stórstígum framförum í öryggismálum, svo dauðaslys á sjó eru sem betur fer orðin mjög fátíð.