
Samgöngustefna Samgöngustofu er aðgengileg í CCQ, samgöngusamningurinn er viðhengi við stefnuna.
Starfsfólk sem hefur tök á að ferðast með vistvænum samgöngumáta til vinnu getur skrifað undir samgöngusamning, skilað honum til mannauðdeildar og fengið greiddan samgöngustyrk.
Samgöngustyrkur fyrir árið 2025 er 132.000 kr., 11.000 kr. á mánuði eða 5.500 kr. fyrir hálfan styrk
Uppfylla þarf eftirfarandi:
- Fullur styrkur: Ferðast til og frá vinnu með vistvænum ferðamáta að jafnaði 80% tilvika (fjóra daga vikunnar).
- Hálfur styrkur: Ferðast til og frá vinnu með vistvænum ferðamáta að jafnaði 40% tilvika (tvo daga vikunnar).
Að ferðast á rafmagnsbíl telst ekki til vistvænna ferðamáta skv. skattmati.
Athugið að endurnýja þarf alla samninga, þau sem ætla að hafa samgöngustyrk 2025 þurfa því að skila inn nýju skjali.
Heilsustyrkur
Upphæð heilsustyrks árið 2025 getur að hámarki orðið 81.000 kr.
Heilsustyrkur er greiddur með launagreiðslum, gegn innsendingu rafrænna reikninga úr viðurkenndu bókhaldskerfi með tölvupósti á laun@samgongustofa.is. Á reikningi skal koma fram nafn og kennitala starfsmanns og gildistími kortsins/námskeiðsins. Reikningur og gildistími korts/námskeiðs skal eiga við það ár sem sótt er um styrk fyrir. Ekki er hægt að greiða styrki aftur í tímann.