EKKO stefna Samgöngustofu

Auðnast framkvæmdi áhættumat fyrir Samgöngustofu sl. vetur. Niðurstöður voru kynntar starfsfólki í júní sl. Eitt af verkefnunum sem kom fram var að uppfæra þurfti stefnu og viðbragðsáætlun Samgöngustofu varðandi EKKO (einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi). Jafnframt var bent á að þörf væri á að endurskoða og tryggja að starfsfólk hafi greiðan aðgang að upplýsingum um EKKO á innri vef stofnunarinnar.

Stefna og viðbragðsáætlun vegna eineltis, kynferðislegrar áreitni, kynbundinnar áreitni og ofbeldi (EKKO) hefur nú verið uppfært í CCQ og er starfsfólk hvatt til að lesa stefnuna. Stefnuna er að finna hér.

Í vinnslu er að uppfæra innri vef stofnunarinnar og gera hann aðgengilegri fyrir starfsfólk.

Auglýst starf fulltrúa í NorType og sérfræðings í deild ökutækja og innviða

Samgöngustofa auglýsir nú tvö störf laus til umsóknar.

Staða fulltrúa í Nortype var auglýst sl. fimmtudag með umsóknarfresti til 26. maí nk. Auglýsinguna má finna hér.

Staða sérfræðings í deild ökutækja og innviða var auglýst í dag með umsóknarfresti til 2. júní nk. Auglýsinguna má finna hér.

Auglýsingarnar hafa verið birtar á Starfatorgi, Alfreð og verða birtar fljótlega á samfélagsmiðlum stofnunarinnar.

Grillveisla og Eurovision stuð á föstudaginn!

Það er komið að því að fagna – Ísland er komið áfram í Eurovision og það er loksins komið gott veður 🎉

Við ætlum að gera okkur glaðan dag í hádeginu á föstudaginn með grillveislu í portinu á bak við hús.

Við hvetjum öll til að mæta í Íslands litunum – blátt, rautt og hvítt – hvort sem það er treyja, hattur, slaufa eða eitthvað skemmtilegt Eurovisionlegt. 

Látum sólina og Eurovision andann taka völdin, hlökkum til að sjá ykkur öll með bros á vör og stemninguna í botni!

Í næstu viku er svo frábær vika því þá hefst tiltektarvika 🙂

Auglýst starf sérfræðings í flugöryggi og ráðning lögfræðinga

Staða sérfræðings í flugöryggi var auglýst í gær með umsóknarfresti til 6. maí nk. Auglýsingin hefur verið birt á Starfatorgi, Alfreð og á samfélagsmiðlum stofnunarinnar. Auglýsinguna má finna hér.

Fyrir páska var gengið frá ráðningu lögfræðinga í lögfræðideild stjórnsýslusviðs;

Berglind Gísladóttir hefur lokið Mag.Jur gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem lögfræðingur hjá Samgöngustofu frá árinu 2023. Áður starfaði hún sem lögfræðingur hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og Þjóðskrá Íslands.

Ludvig Árni Guðmundsson hefur lokið Mag.Jur gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur starfað sem lögfræðingur hjá Samgöngustofu frá árinu 2024. Áður starfaði hann sem laganemi hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og LOGOS lögmannsþjónusta.

Yngvi Hommersand hefur lokið Mag.Jur gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Auk þess hefur hann lokið MSc gráðu í Economics and Business Administration frá Hanken School of Economics. Hann starfar í dag sem lögfræðingur hjá Kærunefnd útlendingamála. Áður starfaði hann hjá KRST lögmenn, NEFCO og sendiráði Íslands í Finnlandi sem lögfræðingur. Yngvi mun hefja störf 1. júní nk.

Fréttir af ráðningarmálum

Það sem af er ári hefur verið gengið frá nokkrum ráðningum hjá Samgöngustofu;

Hugrún Ósk Guðmundsdóttir var ráðin sem fulltrúi í skráningu umferðarslysa í deild öryggi og fræðslu. Hugrún Ósk starfar í dag sem fulltrúi í NorType hjá Samgöngustofu. Hún mun hefja störf með vorinu.

Svani Hauksson var ráðinn sem fulltrúi í notendaþjónustu upplýsingatæknideildar. Hann starfaði hjá Mannviti sem kerfisstjóri. Svani hefur nú þegar hafið störf.

Heiður Magný Herbertsdóttir var ráðin sem sérfræðingur í flugrekstrar- og skírteinadeild. Heiður starfar hjá Landhelgisgæslunni í dag sem öryggis- og gæðafulltrúi. Heiður Magný mun hefja störf 1. júní nk.

Bryndís Blöndal var ráðin sem sérfræðingur í skírteinamálum flugs í flugrekstrar- og skírteinadeild. Hún starfaði síðast hjá Icelandic Water Holdings. Bryndís mun hefja störf 25. mars nk.

Húsnæðismál – teikningar

Á starfsmannafundi í morgun kynnti Jón Gunnar teikningar af Ármúla 2. Forhönnun hússins liggur nú fyrir. Á teikningunum má sjá hvar svið verða staðsett í húsinu.

Fundarherbergjum fjölgar til muna en í dag erum við með í heildina 11 herbergi. Skv. teikningunum þá verðum við með í heildina 39 mismunandi herbergi fyrir fundi, næði og verkefnavinnu.

Samgöngustofa er á LinkedIn

Starfsfólk er hvatt til að fylgja Samgöngustofu á LinkedIn. Markmið okkar er að auglýsa fréttir, laus störf ofl. skemmtilegt úr starfsemi okkar á þessum skemmtilega miðli. Einnig gaman ef starfsfólk gæti bent vinum að fylgja okkur.

https://www.linkedin.com/company/samgongustofa

Fréttir af ráðningarmálum

Í lok desember sl. var gengið frá tveimur ráðningum hjá Samgöngustofu;

Berglind Ýr Jónasdóttir var ráðin sem deildarstjóri flugreksturs- og skírteinadeildar. Berglindi hefur undanfarin tvö ár starfað sem sérfræðingur í flugrekstrar- og skírteinadeild Samgöngustofu. Þar áður starfaði hún sem sérfræðingur á flugrekstrarsviði hjá Wow air. Auk þess hefur hún starfað sem flugkostnaðarstjóri og flugfreyja hjá Wow air og Iceland Express. Berglind Ýr tók við starfinu 1. janúar sl.

Benedikt G. Waage var ráðinn sem sérfræðingu í deild siglinga- og hafnaeftirlits. Benedikt starfar í dag sem sérfræðingur í gæðadeild Nox Medical. Auk þess starfaði hann hjá Neytendastofu sem tæknilegur ábyrgðarmaður í mælifræði í 14 ár. Benedikt mun hefja störf 1. mars nk.

Samgöngusamningur og heilsustyrkur

Samgöngustefna Samgöngustofu er aðgengileg í CCQ, samgöngusamningurinn er viðhengi við stefnuna.

Starfsfólk sem hefur tök á að ferðast með vistvænum samgöngumáta til vinnu getur skrifað undir samgöngusamning, skilað honum til mannauðdeildar og fengið greiddan samgöngustyrk.

Samgöngustyrkur fyrir árið 2025 er 132.000 kr., 11.000 kr. á mánuði eða 5.500 kr. fyrir hálfan styrk

Uppfylla þarf eftirfarandi:

  • Fullur styrkur: Ferðast til og frá vinnu með vistvænum ferðamáta að jafnaði 80% tilvika (fjóra daga vikunnar).
  • Hálfur styrkur: Ferðast til og frá vinnu með vistvænum ferðamáta að jafnaði 40% tilvika (tvo daga vikunnar).

Að ferðast á rafmagnsbíl telst ekki til vistvænna ferðamáta skv. skattmati.

Athugið að endurnýja þarf alla samninga, þau sem ætla að hafa samgöngustyrk 2025 þurfa því að skila inn nýju skjali.

Heilsustyrkur

Upphæð heilsustyrks árið 2025 getur að hámarki orðið 81.000 kr.

Heilsustyrkur er greiddur með launagreiðslum, gegn innsendingu rafrænna reikninga úr viðurkenndu bókhaldskerfi með tölvupósti á laun@samgongustofa.is. Á reikningi skal koma fram nafn og kennitala starfsmanns og gildistími kortsins/námskeiðsins. Reikningur og gildistími korts/námskeiðs skal eiga við það ár sem sótt er um styrk fyrir. Ekki er hægt að greiða styrki aftur í tímann.

Laust starf

Starf deildarstjóra flugrekstrar- og skírteinadeildar er laust til umsóknar, þekkir þú rétta einstaklinginn?

Deildarstjóri flugrekstrar- og skírteinadeildar | Ísland.is

Umsóknarfrestur er til 18. nóvember nk.

Tökum vel á móti nýju fólki

Í byrjun október hófu tveir nýir starfsmenn störf hjá Samgöngustofu.

Hilmar Þór Pétursson starfar sem sérfræðingur í skipatæknideild.

Sólveig Nielsen starfar sem sérfræðingur í deild stjórnunarkerfa og alþjóðamála.

Þau eru bæði staðsett á 3. hæð. Tökum vel á móti þeim 🙂

Fréttir af húsnæðismálum

Af húsnæðismálum er þetta helst: Í þessari viku er fyrsta vinnustofan þar sem fulltrúar sviða koma saman og vinna með arkitektunum Grétu og Grétari hjá Nordic. Er þetta hluti af þarfagreiningu og forhönnun í tengslum við endurbætur á húsnæðinu okkar. Seinni vinnustofan verður haldin 2. október nk. 

Fulltrúar sviða eru;
Skrifstofa forstjóra: Thelma Dögg og Hávarður
Stjórnsýsla: Egill Vignir, Berglind og Ísrael
Umferð: Sædís J. og Una Björg
Flug: Davíð Jón, Hlín og Þröstur
Siglingar: Bjarki og Ingólfur

Starf fulltrúa í NorType auglýst

Staða fulltrúa í NorType er laust til umsóknar. NorType er samstarfsverkefni Íslands, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands og varðar skráningar á tækniupplýsingum úr heildargerðarviðurkenningum ökutækja sem eru á ensku. Auglýsingin birtist á Starfatorgi, Alfreð og samfélagsmiðlum.

Fulltrúi í NorType | Ísland.is (island.is)

Bleikir rýmingarstjórar

Hlutverk rýmingarstjóra er m.a. að sjá til þess að allt starfsfólk á því svæði sem viðkomandi rýmingarstjóri er með, taki mark á brunabjöllunni og leggi af stað í átt að rýmingarsvæði. Rýmingarstjórar skulu klæðast sérmerktu vesti þegar húsnæði er rýmt.

Í vetur fengum við þá góðu umbótatillögu að merkja rýmingarstjóra Samgöngustofu á annan hátt en með gulum vestum. Í dag fengum við í hendurnar bleik vesti og hefur þeim verið dreift til rýmingarstjóra.

Hvetjum starfsfólk til að kynna sér rýmingaráætlun fyrir Ármúla 2. 

VER-0081 í CCQ.