Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa – 20. nóvember

MINNINGARDAGUR_2017.-7674_original


Sunnudaginn 20. nóvember er alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa. Dagurinn er til að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni en ekki hvað síst að þakka þeim viðbragðsaðilum sem veita hjálp og björgun. Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á öryggi óvarinna vegfarenda. Einnig verður lögð áhersla á aðhlynningu þeirra sem verða valdir að umferðarslysum.

Nú sem fyrr kemur Samgöngustofa að undirbúningi þessa dags, þeirra athafna sem haldnar verða víða um land og miðlun efnis til fjölmiðla. Þær umfjallanar eru helst reynslusögur sem við höfum komið á framfæri og það sem einkennir þær núna í ár er að þarna segja ökumenn sem hafa orðið valdir að banaslysum sögu sína. Slíkar umfjallanir og umræða er mjög mikilvægur þáttur í þeim forvörnum sem við og fleiri vinnum stöðugt að. Á vefnum okkar er síða sem tileinkuð er minningardeginum og þar er hægt að nálgast allar upplýsingar, t.d. dagskrá dagsins víða um land.

Haldin verður athöfn kl. 14:00 þennan dag á þyrlupallinum við Landspítalann Fossvogi. Hér má sjá nánari upplýsingar um minningardaginn og hér að neðan er dagskrá athafnarinnar í Reykjavík.

  • 13:45 Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir
  • 13:45 til 14:00 þátttakendur safnast saman við þyrlupallinn og stilla upp farartækjum og fólki
  • 14:00 Minningarathöfnin sett – Ragnhildur Hjaltadóttir
  • 14:05 Ráðherra heldur ræðu
  • 14:15 Forseti Íslands heldur ræðu
  • 14:25 Ræðumaður dagsins segir reynslusögu sína
  • 14:35 Formlegri athöfn slitið
  • 14:35 Boðið upp á kaffi, kakó og með því
  • 14:35 Forseti Íslands færir starfsfólki Bráðamóttökunnar veitingar – þakklætisvott.
  • 14:40 Myndataka – viðbragðsaðilar ásamt forseta framan við ökutæki og þyrlu LHG.
  • 14:40 Viðvera og ýmis frágangsatriði
MINNINGARDAGUR_2017.-7731_original

Að undirbúningi minningardagsins standa ásamt okkur innanríkisráðuneytið, Landsbjörg, lögreglan, Sjálfsbjörg og Vegagerðin. Auk þess taka þátt í þessu með okkur Landhelgisgæslan, Landsamband slökkviliðsmanna og bráðaliða, Landspítalinn, Neyðarlínan, rannsóknarnefnd samgönguslysa og Rauði krossinn. Þarna koma saman viðbragðsaðilar, aðstandendur og aðrir gestir.

Lagið Englar með KK og Ellen er orðið að segja má einkennsilag minningardags um fórnarlömb umferðarslysa. Lagið samdi KK um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Hér má sjá kynningu fyrir minningaraginn 2021:

Upprunalega myndbandið:

https://youtu.be/AGqt4Om66NY





Ríkisbumbubolti

Þættinum hefur borist bréf:

Sæl öll,

Við hjá Hagstofu Íslands erum að setja saman reglulegan fótbolta fyrir starfsmenn helstu ríkisstofnana í bænum (“Ríkisboltinn”):

Fólk frá ýmsum stofnunum er nú þegar byrjað að skrá sig svo búast má við að þetta verði spennandi vettvangur þar sem fólk úr ýmsum áttum getur tengst og brotið upp vinnuvikuna með skemmtilegum hætti.

Spilað verður í Sporthúsinu á miðvikudögum kl. 16-17. *

Ef þú hefur áhuga sendu email á stefan.a.stefansson@hagstofa.is

Hlökkum til að heyra frá ykkur!





Breyting á reglugerð um siglingaleiðir fyrir Reykjanes

Tekið hefur gildi breyting á reglugerð um afmörkun siglingaleiða, svæði sem ber að forðast og tilkynningaskyldu skipa fyrir Suðvesturlandi (nr. 524/2008) sem heimilar stærri skipum að sigla svonefnda innri leið fyrir Reykjanes.

Skipum allt að 30.000 brúttótonnum er nú heimilt að sigla innri leið fyrir Reykjanes allt árið í stað 20.000 brúttótonna hámarks áður. Sem fyrr eru skilyrði um að skipið flytji ekki hættuleg efni eða eiturefni og að skipstjóri hafi reynslu af siglingum á þessu svæði. Til viðbótar verður nú gerð krafa um tilkynningaskyldu til vakstöðvar siglinga áður en siglt er um innri leið.

Reglugerðin var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í apríl.

Sjá frétt á vef innviðaráðuneytisins





Vefur Samgöngustofu á ísland.is


Eins og kom fram í kynningu í morgunkaffinu á föstudaginn og í pósti frá forstjóra sama dag, hefur nú verið tekið ákvörðun um að hefja samstarf við Stafrænt Ísland um flutning vefs Samgöngustofu yfir á island.is.

Um skeið hefur verið ljóst að huga þyrfti að endurskoðun á vefnum okkar. Fyrir því eru aðallega tvær ástæður. Í fyrsta lagi hefur Hugsmiðjan sem sér um vefumsjónarkerfið okkar (Eplicu) hætt þróun þess og hefur tilkynnt þeim aðilum sem nota hana að finna þurfi aðra lausn fyrr en síðar. Í öðru lagi er vefurinn okkar orðinn átta ára gamall sem er mjög langur tími í vefheimum. Því er orðið tímabært að endurskoða efnið, uppsetningu og innleiða þær nýjungar sem komið hafa fram á þessum tíma.

Undanfarin misseri höfum við því verið að skoða þá möguleika sem koma til greina varðandi framtíð vefsins. Tveir kostir komu til greina eftir skoðun:

  1. Annars vegar er það að fara í nýjan vef á okkar eigin vegum. Helstu kostir þeirrar leiðar eru mikill sveigjanleiki, við myndum ráða okkur alfarið sjálf t.d. hvað varðar útlit, virkni og annað. Helstu gallar eru að slíkt verkefni er mjög kostnaðarsamt, tímafrekt og krefst mikillar vinnu. Engin samlegðaráhrif með öðrum aðilum fylgir þessum kosti.
  2. Hins vegar er það að færa vefinn yfir á island.is eins og t.d. sýslumenn og Sjúkratryggingar hafa gert og fleiri stofnanir hafa tekið ákvörðun um að gera. Helstu kostnirnir við þessa leið er að hún er mjög hagkvæm, enginn kostnaður fellur á stofnunina fyrir utan vinnu starfsfólks. Við fáum mikla aðstoð við efnisvinnuna, fáum ýmis tæki og tól og njótum mikillar fagþekkingar Stafræns Íslands í verkefninu. Helstu gallarnir eru þeir að lítill sveigjanleiki er í boði, við göngum inní fastmótað form og höfum litla möguleika á að skapa okkur sérstöðu, t.d. með útliti.


Greining og ákvörðun

Greiningarvinna fólst m.a. í nokkrum fundum með Stafrænu íslandi þar sem farið var ítarlega yfir kosti og galla þess að færa vefinn yfir til þeirra, fundi með verkefnastjóra hjá sýslumönnum um þeirra reynslu, fundi með vefstjóra Stjórnarráðsins og greining á kostum og göllum hvorrar leiðar hér innanhúss.

Niðurstaða þessarar vinnu var sú að gerð var tillaga til framkvæmdastjórnar um að sækja um að færa vef stofnunarinnar yfir á island.is og þar var hún samþykkt. Búið er að sækja um hjá island.is og hefur umsóknin verið samþykkt þar.


Stafrænt Ísland og stofnanavefir

Stafrænt Ísland býður stofnunum að koma með vefi sína inn á island.is og hafa sýslumenn og Sjúkratryggingar Íslands þegar opnað vefi sína þar. Fleiri stofnanir hafa tekið ákvörðun um að flytja vefi sína þar inn. Þær stofnanir sem nú þegar hafa sótt um og hafið vinnu:

Lesa má um þetta verkefni Stafræns Íslands á vef þeirra, þ.e. það að bjóða stofnunum að koma með vefi sína til þeirra.



Helstu kostir við að fara inn á island.is

Ýmsir kostir fylgja því að fara með vefinn inn á island.is:

Notendur

  • Notendamiðuð nálgun hjá island.is, allt byggt útfrá notendamiðaðri nálgun
  • Kostur fyrir notendur að svipað viðmót sé hjá öllum stofnunum. Þeir þurfa ekki að vita hvaða stofnun sér um einstaka málaflokka.

Stuðningur

  • Fyrirtækið Stefna sér um efnisstefnu og hjálpar okkur að flytja efnið yfir á island.is, þ.e. kennir okkur vinnubrögðin og aðstoðar eftir þörfum.
  • Hönnunarkerfi er til staðar og þurfum við ekki að huga að því.
  • Við fáum hjálp við að skipuleggja veftréð okkar.
  • Aðgengismál eru upp á 10 og þurfum við því ekki að huga að því, getum t.d. hætt að borga fyrir Siteimprove.
  • Þekking Stafræns Íslands er mjög mikil og getum við leitað í þeirra smiðju að vild.
  • Okkur er boðinn verktaki í einn mánuð til þess að styðja við verkefnið.

Hagkvæmni

  • Betri nýting á skattfé – mikil samlegðaráhrif
  • Enginn rekstrarkostnaður
  • Sjálfkrafa uppfærslur
  • Engin leyfisgjöld
  • Engin þjónustugjöld
  • Enginn hýsingarkostnaður
  • Enginn þróunarkostnaður

Tæki og tól til að auka þjónustu

Við munum fá aðgang að ýmsum tækjum og tólum þegar við erum komin inn á island.is sem öll munu styðja við starfsemina og hjálpa okkur að bæta þjónustu stofnunarinnar. Hér eru þau helstu:

  • Spjallmenni (AI chatbot)
  • Þjónustugátt (knowledge based)
  • Zendesk þjónustukerfi
  • Tungumálastuðningur, tól sem hefur verið þróað af Miðeind og byggist á máltækni og gervigreind. Með því getum við t.d. komið ensku síðunum okkar í betra horf.
  • Upplestur texta á síðum, fyrir blinda og sjónskerta
  • Tölfræðitól til þess að sjá umferð um vefinn og forgangsraða efni eftir því
  • Aðgengistól (getum hætt að nota Siteimprove)


Skipulag og tímalína

Verkefnastjóri verkefnisins er er Sigfús Þ. Sigmundsson vefstjóri. Yfir verkefninu verður stýrihópur sem í sitja forstjóri, framkvæmdastjórar sviða, samskiptastjóri og deildarstjóri upplýsingatæknideildar. Verkefnahóp skipa Sigfús, Lárus, Þórhildur og fulltrúar allra sviða tilnefndir af framkvæmdastjórum. Minni vinnuhópar munu vinna að einstaka verkefnum eftir þörfum.

Reiknað er með að vinna við að flytja efni af núverandi vef yfir á island.is muni taka um sex mánuði. Eftir það hefst vinna við að setja upp spjallmenni og þjónustugátt. Unnið er að nákvæmara tímaplani og er reiknað með að það liggi fyrir eftir 2-3 vikur. Áætlað er að byrja að vinna að flutningi miðlægs efnis og svo hefst vinna með einstaka sviðum, allt eftir því hvernig hentar hverju sviði hvað varðar vinnuálag.


Starfsdagur Umferðarsviðs

Starfsdagur Umferðarsviðs var haldinn eftir hádegi þann 3. nóvember í mötuneyti Samgöngustofu. Gleði og ánægja yfir því að geta loksins hist og verið öll saman sveif yfir vötnum en alls tóku 39 starfsmenn Umferðarsviðs þátt í deginum. Á dagskrá voru stuttar kynningar á deildum og starfsfólki sviðsins en að því loknu var gætt sér á gúmmilaði sem Bjössi kokkur var búinn að undirbúa. Ekki veitti af að fá orku fyrir nákvæmnisvinnuna sem starfsmenn spreyttu sig á við að byggja háan turn út spaghetti og sykurpúðum.

Hópur 2 bar sigur úr býtum og byggði 129,5 cm háan turn, geri aðrir betur! Eftir gúmmilaðipásu númer tvö var skipt í 6 vinnuhópa og unnið var með lykilspurninguna “hvaða umbætur sérð þú fyrir þér á sviðinu/deildinni 2023” og voru umræður tengdar við stefnu Samgöngustofu. Frábærar umræður sköpuðust í hópunum og spennandi verður að vinna úr þeim tillögum. 

Í lok starfsdagsins var tilkynnt um sigurvegara barnamyndakeppni Umferðarsviðs en starfsmenn fengu 2 daga til að ráða fram úr hver er hvað á sviðinu, út frá barnamyndum. Í 2. sæti varð Kristinn Jóhannesson (Tæknimál ökutækja og innviðir) en sigurvegarinn er Íris Hlín Heiðarsdóttir í NorType, en hún hafði 29 myndir réttar af 33.  Að loknum vel heppnuðum starfsdegi var haldið í pizzu og keilu í Egilshöllina.

Myndir frá Spagettiturnakeppninni:





Föstudagslagið í boði Þóru

Eurovision 1986 - eurovision-spain.com

Það er hún Þóra Halldórsdóttir sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt segir Þóra:

Sem föstudagslag þessa vikuna vel ég Gleðibankann, sem söngflokkurinn ICY flutti svo ógleymanlega í Eurovision árið 1986. Fyrsta Eurovision lag Íslendinga – alltaf jafn skemmtilegt. Þetta lag er klassík á sinn hátt 🙂

Með gleðinni glæða má birtu í lífið,
svo gaman og alvara verða sem eitt.
Þá lífsgleðin lifnar og burtu þið svífið,
á ljómandi hamingjuskýinu sveitt.


(TO)

Ég skora á Sigurjón Hreinsson fyrir næstu viku.

https://www.youtube.com/watch?v=2iVBtSVpYio





Fréttir af ráðningarmálum

Nýlega var gengið frá tveimur ráðningum. Það er staða deildarstjóra áhafna, skráninga og leyfa (siglingasviði) og aðstoð í mötuneyti (mannauðsdeild).

Helgi Jóhannesson var ráðinn í starf deildarstjóra áhafna, skráninga og leyfa, Helgi tók formlega við starfi deildarstjóra 1. nóv sl., áður var Helgi fagstjóri hjá sömu deild. Helgi Jóhannesson er menntaður lögfræðingur. Starfsreynsla Helga samanstendur aðallega af störfum og stjórnendastörfum innan stjórnsýslunnar, t.a.m. sem deildarstjóri í samgönguráðuneytinu í um 10 ár. Þá starfaði Helgi sem forstöðumaður hjá Siglingastofnun Íslands í um 10 ár.

Örn Arnarson var ráðinn til aðstoðar í mötuneytinu. Örn hefur frá unga aldri unnið ýmis störf tengd sjávarútvegi, hann stofnaði útgerðarfélag og stundaði sjómennsku af krafti til lok árs 2018. Örn hefur starfað sem hafnarstarfsmaður hjá höfnum Snæfellsbæjar til ársloka 2021. Undanfarið hefur Örn starfað í mötuneyti og við veislur og viðburði. Örn hefur störf 7. nóvember.





Mötuneytið opið 11:15-12:30 í dag!

Í dag, 3. nóvember, verður mötuneytið opið frá kl. 11:15 – 12:30 en venjulegur opnunartími er frá kl. 11:30 til kl. 13:00.

Umferðarsvið er með stóran fund í matsalnum sem hefst kl. 13:00 og þarf starfsfólk mötuneytis að ná að þrífa salinn fyrir þann tíma.  

Afgreiðslan lokuð frá kl. 13 á morgun fimmtudag

Afreiðslan í Ármúla 2 verður lokuð fimmtudaginn 3. nóvember eftir klukkan 13:00 vegna starfsdags hjá Umferðarsviði.

Við bendum viðskiptavinum á að Mitt svæði er opið allan sólarhringinn, en þar má skrá kaup og sölu ökutækja.

Erindi og spurningar má senda á samgongustofa@samgongustofa.is og verður öllum fyrirspurnum svarað eins fljótt og auðið er.







Staða umferðarslysa 2022

Þegar búið var að skrá fyrstu sex mánuði ársins 2022 skoðaði öryggis- og fræðsludeild hver staðan væri, í hvað stefndi, hvort við værum að missa tökin á einhverju o.s.frv. Spáum við þá fyrir um hvernig árið mun enda, byggt á tölum sex fyrstu mánaðanna og því hvernig síðari hluti ársins er yfirleitt m.v. þann fyrri.

Skemmst er frá því að segja að í heildina lítur árið ögn skárra út en í fyrra. Við stefnum í að 193 muni látast eða slasast alvarlega þegar upp verður staðið m.v. 208 manns í fyrra. 193 er auðvitað allt of há tala en hlutirnir líta þó aðeins betur út en í fyrra. Fjöldi látinna og alvarlega slasaðra er yfirmarkmið okkar þegar kemur að fækkun slysa en við höfum einnig nokkur undirmarkmið sem hjálpa okkur að stilla fókusinn rétt og bregðast við því sem krefst viðbragða.

Af undirmarkmiðum sem líta vel út má nefna að ungir ökumenn virðast vera að standa sig talsvert betur en í fyrra. Stefnir nú í að 7 ungir ökumenn muni lenda í alvarlegu slysi á árinu m.v. 27 í fyrra. Sömuleiðis stefnir í aðeins 4-5 alvarleg slys vegna ölvunar eða fíkniefnaakstur m.v. 8 slík slys í fyrra. Alvarleg slys vegna útafaksturs og vegna framanákeyrslna fækkar einnig talsvert á milli ára. Þeir mælikvarðar sem líta ekki eins vel út eru fyrst og fremst alvarlega slasaðir fótgangandi og á hjóli. Líklegt má telja að fjölgað hafi í báðum þessum vegfarendahópum en að auki hafa rafhlaupahjólin bæst við hjólaflóruna og vega slys á þeim ansi hátt.

Hér að neðan eru tvö gröf til fróðleiks, annars vegar Slasaðir á reið hjólum og rafmagnshjólum jan-júní og hins vegar Alvarlega slasaðir á reiðhjólum og rafmagnshjólum jan-júní (rafmagnshlaupahjólin tilheyra þessum gröfum báðum):






Skráning atvika og slysa tengd sjómönnum

Samgöngustofa í samvinnu við Rannsóknarnefnd Samgönguslysa (RNSA) boðar til blaðamannafundar kl. 15:00 á morgun, miðvikudag 2. nóvember, um borð í Sæbjörgu, skólaskipi slysavarnaskóla sjómanna í Reykjavíkurhöfn.

Á blaðamannafundinum verður miðlægt skráningarkerfi, ATVIK – sjómenn, kynnt en það gerir útgerðum kleift að tilkynna slys og atvik tengd sjómönnum rafrænt. Það mun auðvelda útgerðum að uppfylla lagalega tilkynningarskyldu sína en auk þeirra geta sjómenn sjálfir, bæði yfir- og undirmenn, skráð slys og næstum því slys á sjó. Sýnd verða dæmi um atvik þar sem litlu má muna að verði slys.

Tryggingarfélagið VÍS bjó til og þróaði kerfið og veitti RNSA það að gjöf. Kerfið hefur svo verið aðlagað að kerfum RNSA með stuðningi Siglingaráðs og innviðaráðuneytisins. Samgöngustofa mun sjá um notendaþjónustu þess.


Af hverju Atvik-Sjómenn?

Hingað til hafa slys verið skráð hjá þremur aðilum þ.e. rannsóknarnefnd samgönguslysa, lögreglu og hjá Sjúkratryggingum Íslands. Gögn hafa þar af leiðandi ekki verið miðlæg og hafa þau einskorðast við slys með meiðslum. Með tilkomu ATVIK – sjómenn gefst loks kostur á að skrá atvik þar sem næstum því slys á sér stað auk þess sem öll skráning verður nú hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa.

Með því að skrá „næstum því slys” verður hægt að fyrirbyggja að atvikið endurtaki sig með mögulegum alvarlegum afleiðingum.

Náðst hefur ótrúlegur árangur í fækkun alvarlegra slysa á sjó og mörg undanfarin ár hefur ekki orðið banaslys á sjó við Ísland. ATVIK – sjómenn mun verða mikilvægur hlekkur í að tryggja enn meira öryggi til sjós.

Nokkrir áhugaverðir punktar:

  • Þótt tekist hafi að fækka og vonandi útrýma banaslysum á sjó þá verða samt á hverju ári á annað hundruð sjómannslys. Oft getur litlu munað að þau verði mjög alvarleg og því þarf að efla öryggismál sjómanna enn frekar.
  • ATVIK-sjómenn er nú aðgengilegt öllum útgerðum á Íslandi og veitir yfirsýn yfir atvik, hættur og slys um borð í skipum.
  • Með þessu verður til miðlægur tölfræðilegur gagnagrunnur með mikilvægum upplýsingum um atvik, hættur og slys til sjós sem hægt verður að nýta í gagnadrifið forvarnastarf.
  • Væntingar eru um að ATVIK-sjómenn efli rannsóknir á sjómannaslysum sem þá munu auka forvarnir sem að lokum leiðir til fækkunar slysa.
  • Hér má sjá tölfræði um sjómannaslys – Yfirlit ársins 2021 – sjá bls.15.





Skipaeftirlitsdeild í vettvangsferð

Starfsmenn skipaeftirlitsdeildar fóru 28. október síðastliðinn á kynningu á eftirliti með krönun, MOB-bátum og davíðum um borð í skólaskipið Sæbjörgu og varðskipinu Þór í Reykjavíkurhöfn.
Það voru þýskir sérfræðingar frá fyrirtækinu Viking Life-Saving Equipment sem sáu um kynninguna.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá heimsókninni:

Svend sá þýski sýnir vatnsmæli sem notaður er við álagsprófun á krana.

Verið að undirbúa álagsprófun á davíðum í Sæbjörginni.
Búið er að opna inn í davíður á Sæbjörginni.

FRC bátur um borð í varðskipinu Þór