Vefur Samgöngustofu á ísland.is


Eins og kom fram í kynningu í morgunkaffinu á föstudaginn og í pósti frá forstjóra sama dag, hefur nú verið tekið ákvörðun um að hefja samstarf við Stafrænt Ísland um flutning vefs Samgöngustofu yfir á island.is.

Um skeið hefur verið ljóst að huga þyrfti að endurskoðun á vefnum okkar. Fyrir því eru aðallega tvær ástæður. Í fyrsta lagi hefur Hugsmiðjan sem sér um vefumsjónarkerfið okkar (Eplicu) hætt þróun þess og hefur tilkynnt þeim aðilum sem nota hana að finna þurfi aðra lausn fyrr en síðar. Í öðru lagi er vefurinn okkar orðinn átta ára gamall sem er mjög langur tími í vefheimum. Því er orðið tímabært að endurskoða efnið, uppsetningu og innleiða þær nýjungar sem komið hafa fram á þessum tíma.

Undanfarin misseri höfum við því verið að skoða þá möguleika sem koma til greina varðandi framtíð vefsins. Tveir kostir komu til greina eftir skoðun:

  1. Annars vegar er það að fara í nýjan vef á okkar eigin vegum. Helstu kostir þeirrar leiðar eru mikill sveigjanleiki, við myndum ráða okkur alfarið sjálf t.d. hvað varðar útlit, virkni og annað. Helstu gallar eru að slíkt verkefni er mjög kostnaðarsamt, tímafrekt og krefst mikillar vinnu. Engin samlegðaráhrif með öðrum aðilum fylgir þessum kosti.
  2. Hins vegar er það að færa vefinn yfir á island.is eins og t.d. sýslumenn og Sjúkratryggingar hafa gert og fleiri stofnanir hafa tekið ákvörðun um að gera. Helstu kostnirnir við þessa leið er að hún er mjög hagkvæm, enginn kostnaður fellur á stofnunina fyrir utan vinnu starfsfólks. Við fáum mikla aðstoð við efnisvinnuna, fáum ýmis tæki og tól og njótum mikillar fagþekkingar Stafræns Íslands í verkefninu. Helstu gallarnir eru þeir að lítill sveigjanleiki er í boði, við göngum inní fastmótað form og höfum litla möguleika á að skapa okkur sérstöðu, t.d. með útliti.


Greining og ákvörðun

Greiningarvinna fólst m.a. í nokkrum fundum með Stafrænu íslandi þar sem farið var ítarlega yfir kosti og galla þess að færa vefinn yfir til þeirra, fundi með verkefnastjóra hjá sýslumönnum um þeirra reynslu, fundi með vefstjóra Stjórnarráðsins og greining á kostum og göllum hvorrar leiðar hér innanhúss.

Niðurstaða þessarar vinnu var sú að gerð var tillaga til framkvæmdastjórnar um að sækja um að færa vef stofnunarinnar yfir á island.is og þar var hún samþykkt. Búið er að sækja um hjá island.is og hefur umsóknin verið samþykkt þar.


Stafrænt Ísland og stofnanavefir

Stafrænt Ísland býður stofnunum að koma með vefi sína inn á island.is og hafa sýslumenn og Sjúkratryggingar Íslands þegar opnað vefi sína þar. Fleiri stofnanir hafa tekið ákvörðun um að flytja vefi sína þar inn. Þær stofnanir sem nú þegar hafa sótt um og hafið vinnu:

Lesa má um þetta verkefni Stafræns Íslands á vef þeirra, þ.e. það að bjóða stofnunum að koma með vefi sína til þeirra.



Helstu kostir við að fara inn á island.is

Ýmsir kostir fylgja því að fara með vefinn inn á island.is:

Notendur

  • Notendamiðuð nálgun hjá island.is, allt byggt útfrá notendamiðaðri nálgun
  • Kostur fyrir notendur að svipað viðmót sé hjá öllum stofnunum. Þeir þurfa ekki að vita hvaða stofnun sér um einstaka málaflokka.

Stuðningur

  • Fyrirtækið Stefna sér um efnisstefnu og hjálpar okkur að flytja efnið yfir á island.is, þ.e. kennir okkur vinnubrögðin og aðstoðar eftir þörfum.
  • Hönnunarkerfi er til staðar og þurfum við ekki að huga að því.
  • Við fáum hjálp við að skipuleggja veftréð okkar.
  • Aðgengismál eru upp á 10 og þurfum við því ekki að huga að því, getum t.d. hætt að borga fyrir Siteimprove.
  • Þekking Stafræns Íslands er mjög mikil og getum við leitað í þeirra smiðju að vild.
  • Okkur er boðinn verktaki í einn mánuð til þess að styðja við verkefnið.

Hagkvæmni

  • Betri nýting á skattfé – mikil samlegðaráhrif
  • Enginn rekstrarkostnaður
  • Sjálfkrafa uppfærslur
  • Engin leyfisgjöld
  • Engin þjónustugjöld
  • Enginn hýsingarkostnaður
  • Enginn þróunarkostnaður

Tæki og tól til að auka þjónustu

Við munum fá aðgang að ýmsum tækjum og tólum þegar við erum komin inn á island.is sem öll munu styðja við starfsemina og hjálpa okkur að bæta þjónustu stofnunarinnar. Hér eru þau helstu:

  • Spjallmenni (AI chatbot)
  • Þjónustugátt (knowledge based)
  • Zendesk þjónustukerfi
  • Tungumálastuðningur, tól sem hefur verið þróað af Miðeind og byggist á máltækni og gervigreind. Með því getum við t.d. komið ensku síðunum okkar í betra horf.
  • Upplestur texta á síðum, fyrir blinda og sjónskerta
  • Tölfræðitól til þess að sjá umferð um vefinn og forgangsraða efni eftir því
  • Aðgengistól (getum hætt að nota Siteimprove)


Skipulag og tímalína

Verkefnastjóri verkefnisins er er Sigfús Þ. Sigmundsson vefstjóri. Yfir verkefninu verður stýrihópur sem í sitja forstjóri, framkvæmdastjórar sviða, samskiptastjóri og deildarstjóri upplýsingatæknideildar. Verkefnahóp skipa Sigfús, Lárus, Þórhildur og fulltrúar allra sviða tilnefndir af framkvæmdastjórum. Minni vinnuhópar munu vinna að einstaka verkefnum eftir þörfum.

Reiknað er með að vinna við að flytja efni af núverandi vef yfir á island.is muni taka um sex mánuði. Eftir það hefst vinna við að setja upp spjallmenni og þjónustugátt. Unnið er að nákvæmara tímaplani og er reiknað með að það liggi fyrir eftir 2-3 vikur. Áætlað er að byrja að vinna að flutningi miðlægs efnis og svo hefst vinna með einstaka sviðum, allt eftir því hvernig hentar hverju sviði hvað varðar vinnuálag.