Staða umferðarslysa 2022

Þegar búið var að skrá fyrstu sex mánuði ársins 2022 skoðaði öryggis- og fræðsludeild hver staðan væri, í hvað stefndi, hvort við værum að missa tökin á einhverju o.s.frv. Spáum við þá fyrir um hvernig árið mun enda, byggt á tölum sex fyrstu mánaðanna og því hvernig síðari hluti ársins er yfirleitt m.v. þann fyrri.

Skemmst er frá því að segja að í heildina lítur árið ögn skárra út en í fyrra. Við stefnum í að 193 muni látast eða slasast alvarlega þegar upp verður staðið m.v. 208 manns í fyrra. 193 er auðvitað allt of há tala en hlutirnir líta þó aðeins betur út en í fyrra. Fjöldi látinna og alvarlega slasaðra er yfirmarkmið okkar þegar kemur að fækkun slysa en við höfum einnig nokkur undirmarkmið sem hjálpa okkur að stilla fókusinn rétt og bregðast við því sem krefst viðbragða.

Af undirmarkmiðum sem líta vel út má nefna að ungir ökumenn virðast vera að standa sig talsvert betur en í fyrra. Stefnir nú í að 7 ungir ökumenn muni lenda í alvarlegu slysi á árinu m.v. 27 í fyrra. Sömuleiðis stefnir í aðeins 4-5 alvarleg slys vegna ölvunar eða fíkniefnaakstur m.v. 8 slík slys í fyrra. Alvarleg slys vegna útafaksturs og vegna framanákeyrslna fækkar einnig talsvert á milli ára. Þeir mælikvarðar sem líta ekki eins vel út eru fyrst og fremst alvarlega slasaðir fótgangandi og á hjóli. Líklegt má telja að fjölgað hafi í báðum þessum vegfarendahópum en að auki hafa rafhlaupahjólin bæst við hjólaflóruna og vega slys á þeim ansi hátt.

Hér að neðan eru tvö gröf til fróðleiks, annars vegar Slasaðir á reið hjólum og rafmagnshjólum jan-júní og hins vegar Alvarlega slasaðir á reiðhjólum og rafmagnshjólum jan-júní (rafmagnshlaupahjólin tilheyra þessum gröfum báðum):