
Þann 15. október síðastliðinn fóru Vatnadrekar í langþráða jeppaferð. Þar sem liðið var langt inn í október var erfitt að skipuleggja ferðina með miklum fyrirvara, þar sem þurfti að athuga með veður og færð áður en farið var. Vegna veðurs og færis á hálendinu var ákveðið að fara styttri ferð og aðeins nær höfuðborgarsvæðinu. Föstudaginn 14. október var legið yfir kortum og leiðum þar sem óvissa var í veðurkortunum, spáð var vaxandi norðanátt þegar liði á daginn með tilheyrandi kulda og mögulegum skafrenning. Því var ákveðið að hittast um 9 leytið á Orku bílastæðinu við Vesturlandsveg og fara leið sem er stundum kölluð Þúsundvatnaleiðin. Þrátt fyrir að vindurinn blési kaldri norðanátt á okkur í ferðinni þá var gott skjól í heitum jeppunum og ekki væsti um okkur.

Beygt var af þjóðveginum við Litlu kaffistofuna og haldið norður fyrir Svínahraun í átt að Heillisheiðarvirkjun, en vegna lokunar á slóðum á virkjunarsvæðinu var tekin lengri leið upp á Hellisheiði framhjá skíðaskálanum í Hveradölum. Eftir að hafa skoðað virkjanasvæðið var haldið inn í Innstadal en þurftum að snúa við þegar vegaslóðinn var orðinn ansi torfærinn og grýttur. Það má segja að við höfum tekið hring í kringum Orustuhólshraun en við keyrðum niður Hengladalaá og komum aftur inn á þjóðveginn á miðri Hellisheiði.
Myndband:
Það var mat þeirra sem fóru í ferðina að þessi ferð hefði heppnast gríðarlega vel og ekki væri alltaf þörf að keyra langt frá höfuðborgarsvæðinu til þess að komast í alvöru jeppaferð (þó stutt væri). Þrátt fyrir að kuldi væri í loftinu var útsýnið upp á 10 eins og svo oft er málið þegar norðanvindur blæs á Höfuðborgarsvæðinu á haustin.
Þeir sem fóru í ferðina voru: Ólafur Arnar Gunnarsson á Grænum Nissan Patrol, Guðbjörn Jensson á Svörtum Hilux og Jón Hjalti Ásmundsson á Hvítum Mercedez Benz Sprinter. Farþegar voru Markús Benediktsson og Jón Ragnars.
Hafið samband við Bubba/Guðbjörn ef þið viljið taka þátt í ævintýrum framtíðar með Vatnadrekum. Öll velkomin!
Sjá myndir:



















