Mun Samgöngustofa hita upp fyrir Sufjan Stevens?


Þær eru yfirleitt frekar alvarlegar fréttirnar af okkur hjá Samgöngustofu enda snúast okkar daglegu störf ekki um eitthvað grín og glens. Í dag komumst við hinsvegar í liðinn Lífið hjá Fréttablaðinu og við gefum okkur að sjálfsögðu nokkur rokkstig fyrir þann árangur. Það sem skilar okkur svona ofarlega á Spotify eru náttúrulega vinirnir í Kátugötu sem við gefum út en bækurnar eru allar aðgengilegar á veitunni og greinilega mikið spilaðar fyrir börnin 🙂

Fréttin hljóðar svo:

„Samgöngustofa hitar upp fyrir Sufjan Stevens

Notendur tónlistarstreymisveitunnar Spotify bíða í ofvæni eftir Spotify Wrapped-listanum, árlegu tónlistaruppgjöri sem gefur notendum innsýn í sinn eigin tónlistarsmekk og hlustunarmynstur.

Nú á meðan beðið er hafa notendur þó fengið aðgang að eins konar forsmekk, en vefsíða sem kallast instafest.app gerir notendum kleift að sjá hvernig tónlistarhátíð, byggð á þeirra eigin hlustunarmynstri, myndi líta út. Niðurstaðan er plakat fyrir þriggja kvölda tónlistarhátíð í anda Airwaves eða Hróarskeldu.

Íslenskir foreldrar ungra barna hafa margir hverjir hlegið sig máttlausa yfir niðurstöðunum en algrímið tekur ekki tillit til þess að Samgöngustofa og Leikhópurinn Karíus eigi hugsanlega ekki heima, eða stingi í það minnsta í stúf, á dagskrá við hliðina á popprisunum Dua Lipa, Beck og The Weeknd. Í hjálögðu dæmi lokar Kristjana Skúladóttir lokakvöldinu með sögum fyrir yngstu börnin á borð við Geiturnar þrjár, að loknu teknókvöldi með Berlínarbandinu Moderat og Íslandsvinunum í Metronomy.

Þeir Spotify-notendur sem vilja prófa að vera með og sjá hvernig þeirra tónleikahátíð liti út, geta farið á vefsíðuna Instafest.app og skráð sig inn með Spotify-aðgangi.

Í framhaldinu birtast möguleikar, að unnið sé úr hlustunargögnum síðasta hálfa árs, síðasta heila árs eða frá stofnun aðgangsins. Leikurinn er ókeypis.“

Tónlistarhátíð Fúsans

Undirritaður prufaði síðuna góðu (instafest.app) og fékk eftirfarandi auglýsingaplaggat fyrir tónlitarhátíð sniðna að Spotifyspiluninni:

Þess ber að geta að aðgangur undirritaðs er notaður fyrir spilun allrar fjölskyldunar og skal ekki dæma tónlistarsmekkinn alfarið útfrá þessu. En þetta er þó nokkuð nærri lagi 🙂

Prufið endilega að gera ykkar plaggat.