
Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa var í gær og haldin var athöfn við Landspítalann Fossvogi. Þar komu saman fjöldi viðbragðsaðilum ásamt gestum. Í erindum dagsins kom fram þakklæti til viðbragðsaðila fyrir þeirra störf á vettvangi slysa og við björgun fólks. Jafnframt eru haldnir fjöldi viðburða víða um land í tilefni dagsins.
Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson lagði áherslu á ábyrgð okkar allra í umferðinni og boðaði síðan mínútu þögn til að heiðra minningu þeirra sem látist hafa í umferðinni. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra talaði m.a. um mikilvægi þess að þeir sem verða valdir að umferðarslysum gleymist ekki við andlega aðhlynningu og hjálp í kjölfar slysa.
Að loknum erindum þeirra sagði Jónína Snorradóttur frá reynslu sinni en hún varð völd að banaslysi fyrir 30 árum síðan. Örstutta stund fór athygli hennar af veginum og varð þess valdandi að hún ók á lítinn dreng og móður hans en drengurinn lést í slysinu. Jónína sagði frá hvernig þessi hörmulega reynsla hefur markað líf hennar alla tíð síðan.
Athöfninni stýrði Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar.#minningardagur







